16.02.1944
Neðri deild: 14. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 148 í B-deild Alþingistíðinda. (228)

27. mál, skipun læknishéraða

Forsrh. (Björn Þórðarson):

Herra forseti. — Það er nú í rauninni óþarft af mér að taka þátt í umr. um þetta mál, þar sem hv. 1. þm. N.-M. er búinn að tala um það af „héraðslegri“ þekkingu og hv. 1. þm. Rang. af faglegri þekkingu og hafa báðir lagzt á sveif með málinu. — Aðeins sá hv. þm., sem hvorki hefur til að bera faglega né héraðslega þekkingu, hefur lagzt á móti því og notað harðyrði um landlækni, talað um, að hann hafi ýmist beitt Héraðsbúa blíðmælum eða hótunum. Í öðru lagi hélt hann því fram, að sparnaður væri höfuðmarkmið heilbrigðisstjórnarinnar í þessu máli. Þessu mótmæli ég algerlega. Þessi ummæli eru ekkert nema orð út í loftið. Það hefur alltaf verið markmið heilbrigðisstjórnarinnar að útvega sem flestum nauðsynlega læknishjálp, og að því stefnir þetta frv. Ef ekki þyrfti annað en skipta héruðunum niður eftir stærð eða íbúafjölda, þá væri málið auðvelt. En þetta er nú eitthvað annað. Núverandi ástand á Fljótsdalshéraði er algerlega óviðunandi, og hætt er við, að það lagist ekki, fyrr en læknirinn verður settur á bezta stað í héraðinu. Nú hefur það óhapp hent, að læknisbústaðurinn á Brekku hefur brunnið, og er þá sjálfsagt að nota tækifærið, eins og gert er í þessu frv., til að ná sem heppilegastri úrlausn í þessum málum öllum.

Hvað viðvíkur Borgarfjarðarhéraði, þá skerst það aðeins frá á pappírnum, því að það verður ekki heimsótt í bráð af föstum héraðslækni.

Um flutning læknisbústaðarins í Árnessýslu er það að segja, að þar er stefnt inn á nýja braut, að tveir læknar verði saman. Þó verður e.t.v. hnigið að því með suðurhéraðið að fá þangað fastan aðstoðarlækni til þess að svipta það ekki læknisþjónustu.

Meginstefnan er sú um mannfá og víðlend héruð, að þar séu tveir læknar saman, aukalæknir og aðallæknir. Ég tel þá tilraun þess verða, að hún sé gerð sem fyrst.