21.02.1944
Neðri deild: 15. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 148 í B-deild Alþingistíðinda. (230)

27. mál, skipun læknishéraða

Forseti (JörB):

Mér hefur borizt ósk um, að málinu yrði frestað að þessu sinni. Einn hv. þm. d. óskar að fá tækifæri til að athuga það betur, áður en það fer úr deildinni. Ég vil verða við þessum tilmælum, og meðferð málsins er því frestað að þessu sinni.