09.01.1945
Efri deild: 96. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1181 í B-deild Alþingistíðinda. (2325)
56. mál, hafnarlög fyrir Hrísey
Bernharð Stefánsson:
Ég get vel skilið afstöðu hv. sjútvn., að hún vilji hafa hafnarl. fyrir Hrísey í samræmi við önnur hafnarl. En eins og hv. frsm. gat um, hefur þessu verið þannig farið um hafnir utan bæja, að það hefur verið áskilin bakábyrgð viðkomandi sýslu fyrir því láni, sem hafnarsjóðir þeirra hafa tekið og ríkið ábyrgist. En því er ekki að leyna, þó að ég geti skilið þessa afstöðu sjútvn., að ég geri ráð fyrir, þegar litið er til afstöðu sýslun. Eyjafjarðarsýslu til ábyrgðarinnar vegna hafnarinnar í Ólafsfirði, að samþykkt þessarar brtt. er það sama og að stöðva framkvæmdir í Hrísey.
Ég býst við, að það sé alveg rétt hjá hv. frsm. n., að orðið sé tímabært og nauðsynlegt að setja heildarl. um hafnargerðir hér á landi. Ég er n. alveg sammála um það, að þau lög ættu helzt að koma á næsta þingi, og mér þætti vænt um það, ef jafnhliða því, að þetta mál er afgr. og þessi brtt. n. ef til vill samþ., sem eins og ég hef upplýst, verður til að stöðva þessar framkvæmdir, kæmi eitthvað frá hæstv. stj. um það, hvað hún hyggst fyrir í þessu máli, þ.e., hvað hún hyggst fyrir um heildarlöggjöf viðvíkjandi hafnargerðum, og þá, hvort hún hugsar sér ekki einhver heildarákvæði um það, hvað ætti að vera skilyrði fyrir ábyrgð ríkissjóðs á lánum til slíkra framkvæmda.
Ég get ekki beinlínis farið að mótmæla þessari brtt., af því að ég finn, að hún er alveg í samræmi við önnur hafnarl., en sem þm. kjördæmisins get ég þó ekki léð henni fylgi mitt.