22.02.1944
Neðri deild: 16. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 151 í B-deild Alþingistíðinda. (238)
27. mál, skipun læknishéraða
Helgi Jónasson:
Þegar þetta mál var hér til 2. umr., voru bornar fram brtt. frá tveim aðilum, önnur frá heilbr.- og félmn., en hin frá hv. þm. G.-K.
Brtt. n. er aðallega orðabreyt. Eina efnisbreyt. er um að fjölga aðstoðarlæknum úr fjórum upp í sex. Ég veit, að það er mikil eftirspurn meðal lækna um að fá aðstoðarlækna, svo að með þessu yrði hægt að fá fleiri lækna út um land, áður en langt um liði. Samkv. eldri l. var ekki hægt að hafa nema einn aðstoðarlækni í hverjum fjórðungi, og var slíkt mjög óheppilegt. Þess vegna tel ég, að þessi brtt. sé til bóta.
Um brtt. á þskj. 64, frá hv. þm. G.-K., er nokkuð svipað að segja og um brtt. hv. 11. landsk., sem var hér við 2. umr. og fór fram á að skipta Selfosshéraði í tvö læknishéruð. Brtt. þessi var felld hér í d., en brtt. hv. þm: G.-K. viðvíkjandi Keflavíkurhéraði er mjög svipuð henni. Mikil fólksfjölgun hefur átt sér stað í Keflavíkurhéraði, en það er þéttbýlt og hægt yfirferðar, svo að öllu jöfnu held ég, að það sé hægara fyrir einn lækni að þjóna Keflavíkurhéraði en Selfosshéraði. Ég er viss um það, að ungur og duglegur maður mundi ekki láta sér vaxa í augum að taka að sér Keflavíkurhérað og stunda þar lækningar um nokkurra ára skeið. Þetta hérað telur nú um þrjú þús. íbúa, en á vertíðinni er þar töluvert fleira, því að fólk sækir þangað mjög í atvinnuleit. Undanfarið hefur verið hjálparstöð í Sandgerði, og tel ég það því miklu heppilegri leið, að læknir eigi kost á að hafa þar aðstoðarlækni, þegar mikið er að gera, en að skipta héraðinu í tvennt. Þess vegna er ég á móti því að skipta Eyrarbakkahéraði, og hið sama gildir einnig um brtt. þá, er hér liggur fyrir. Ég álít það heppilegra fyrir héruðin, að þau séu óskipt, og að meiri von sé fyrir íbúa Selfoss og Keflavíkur, að þeir fái þangað lækni, en ef þessum héruðum yrði skipt í tvo eða fleiri hluta. Eins og nú standa sakir, mundi roskinn maður fúslega ráða sér aðstoðarmann, þegar mest er að gera, og veit ég ekki betur en komið hafi fram uppástunga um að ráða þangað mann um vetrartímann, meðan útræði er mest og fólksfjöldi mestur. Keflavíkurhérað er alls ekki fyrir meira en einn lækni nema kannske á vertíðinni, og þá hefur því verið hugsað fyrir aðstoðarlækni. Við vitum, að komið hefur fyrir, þegar átt hefur að skipta svona héruðum, að íbúarnir hafa horfið algerlega frá þessu, þegar þeir hafa athugað þetta nánar. Og öll aðstaða varðandi aðbúð lækna er ólíkt erfiðari og kostnaðarsamari fyrir lítil og fámenn héruð en hin stærri.
Ég legg því til, að brtt. á þskj. 64 verði felld, en till. um að fjölga aðstoðarlæknunum verði samþ., því að með því er von til, að Keflvíkingar geti ráðið til sín aðstoðarlækni, þegar þörfin er mest, og fjölmennari héruðin geti bætt við sig aðstoðarlæknum.