22.02.1944
Neðri deild: 16. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 152 í B-deild Alþingistíðinda. (239)

27. mál, skipun læknishéraða

Ólafur Thors:

Mér láðist víst að geta þess, að till. þessi, sem ég er flm. að, er flutt samkv. áskorunum frá almennum borgarafundi í Keflavík, þar sem allir voru sammála um nauðsyn þess, að þetta næði fram að ganga á þennan hátt, sem í till. greinir. Íbúarnir þarna eru kunnugastir þessu, og því verður að taka tillit til þess, hvað þeir vilja, en ekki aðeins, hvað læknar treysta sér til.

Ég vil taka það fram út af ummælum hv. 11. landsk., þess efnis, að orkað gæti tvímælis, hvort þessi takmarkalína sé eðlileg og hvort ekki væri eðlilegra, að Njarðvíkurhreppur tilheyrði Keflavíkurhreppi, að ég er að sjálfsögðu reiðubúinn til samkomulags um þetta og gæti sætt mig við, að þessari umr. yrði frestað og málinu vísað aftur til n. Ég legg enga sérstaka áherzlu á, hvort takmarkalínan verður svona eða einhvern veginn öðruvísi.

Loks vil ég taka það fram varðandi uppástungu síðasta ræðumanns um aðstoðarlækna, en hann er sjálfur læknir í stóru og erfiðu umdæmi, að hana mætti taka til athugunar. En ég álít, að eina viðunandi lausnin, eins og sakir standa, sé skipting, hvort sem markalínan verður eins og gert er ráð fyrir í till. eða ekki.