17.01.1945
Neðri deild: 107. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1194 í B-deild Alþingistíðinda. (2490)

253. mál, innheimta ýmissa gjalda 1945 með viðauka

Fjmrh. (Pétur Magnússon):

Eftir tilmælum ríkisstj. hafa verið borin fram á Alþ. þrjú frv., sem ættu að auka tekjur ríkissjóðs. Tvö af þessum frv: eru flutt í hv. Ed., en þetta frv., sem hér liggur fyrir, hefur meiri hluti fjhn. þessarar d. flutt að beiðni ríkisstj. Þessir skattar, sem lagt er til í frv. þessu, að lagðir verði á, eru að miklu leyti gamlir kunningjar. Síðan þó nokkru fyrir stríð hafa ýmis þau gjöld, sem um ræðir í frv. þessu, verið innheimt með 40% viðauka. Það á við um aukatekjur, vitagjald og stimpilgjald, en lagt er til, að þau gjöld verði innheimt með 100% álagi frá því, sem upphaflega var til ætlazt, og bætt við leyfisbréfagjaldi með sama álagi. Þá er einnig lagt til, að gjald af innlendum kornvörum verði hækkað um 50% frá því, sem verið hefur, og eignarskatturinn verði með 50% álagi 1945. Samtals er gert ráð fyrir, að tekjuaukinn við þessa lagabreytingu nemi rúmlega 280 þús. kr. Þó er þess að gæta, að sú áætlun er miðuð við, að tekjuaukinn gildi fyrir allt árið 1945, en sum af þessum gjöldum hafa sjálfsagt verið innheimt.

Ég geri ráð fyrir, að ekki verði mjög mikill styr um þessa skattaálagningu. Flest af þeim gjöldum, sem hér er lagt til, að verði hækkuð, eru þannig, að þau eru miðuð við ákveðið magn, og hafa þess vegna raunverulega lækkað mikið, síðan peningagildið breyttist. Og enda þótt þau yrðu hækkuð um 100% frá því, sem upphaflega var ætlazt til, þá verður sú skattabyrði sízt þyngri en upphaflega var, þegar skatturinn var lagður bæði á vitagjald, leyfisbréfagjald, lestagjald af skipum og innlent tollvörugjald. Nokkuð öðru máli er að gegna um stimpilgjald, því að í flestum tilfellum er miðað við fjárhæð þess gjalds, sem stimplað er, hvort heldur hún er í afsalsbréfi, skuldabréfi eða víxli. Það má því segja, að sú aukning, sem þarna er gerð, komi þyngra niður en á hina tekjustofnana, sem ég nefndi. Nokkuð sama máli gegnir um eignarskattinn, að við lækkun peningagildisins hafa eignirnar hækkað að krónutali, og það má því segja, að það komi líka verr við en þau gjöld, sem staðið hafa óbreytt. Hins vegar er eignarskatturinn einn af þeim fáu sköttum hér, sem ekki verður talinn hár, og það er ekki gengið lengra en leggja til, að hann hækki um 50% á þessu ári. Ég geri því ekki ráð fyrir, að þetta sæti mikilli gagnrýni, þar sem þörf ríkissjóðs fyrir tekjur er óvéfengd.

Ég vildi aðeins á það minnast við þessa 1. umr. málsins, að áætlað er, að þau tekjuöflunarfrv., sem lögð hafa verið fyrir hv. Ed., auki tekjur ríkissjóðs um 11 til 12 millj. kr., og ef maður reiknar tekjuauka af þessu frv. tæpar 3 millj. kr., verður sú tekjuaukning, sem ríkisstj. hefur lagt til, samtals 14 til 15 millj. kr. Nú er það ljóst, að þessi fjárhæð mun ekki hrökkva til að greiða þau gjöld, sem haldið var uppi við afgreiðslu fjárl., sem sé uppbætur á landbúnaðarafurðirnar, því að uppbætur á kjöt og mjólk ein saman mundi nema a.m.k. 17 millj. kr., og er það sízt of hátt reiknað. Auk þess koma uppbætur á ull og gærur, ef útflutningur verður á því á þessu ári, en enn þá er að vísu allt í óvissu um það. Ég býst því við, að gagnrýni komi fram á því, að þær tekjuöflunarleiðir, sem teknar hafa verið af ríkisstj., muni ekki nægja til að standa undir þeim útgjöldum, sem óhjákvæmileg muni verða á þessu ári, en eins og ég gat um við fjárlagaumr., gerir ríkisstj. sér von um að fá nokkrar aukatekjur, sem ekki er reiknað með í fjárl. Ég gat þess þá, að útlit væri fyrir, að útflutningsleyfi fengist frá Ameríku fyrir nokkru af smjöri. Nú er fengið loforð fyrir 200 smálestum, og ef það smjör selst við sama verði og innlend framleiðsla, ætti það að gefa nokkrar tekjur í ríkissjóð, varla minna en kringum 2 millj. kr. Enn fremur má geta þess, að gengið hefur verið frá kaupum á ýmsum eignum setuliðsins, vélum og verkfærum, og enda þótt ég geri ekki ráð fyrir, að um verulegan söluhagnað verði að ræða á þeim eignum, — eða a.m.k. ekki gott að reikna með því að svo stöddu, — bætast þó við allmiklar tolltekjur, því að sjálfsagt er að reikna fullan toll af öllum þeim áhöldum, eins og þau hefðu verið flutt inn. Þá má loks geta þess, að þótt ekki verði með neinni vissu sagt, hve há sjóðseign ríkissjóðs var um síðustu áramót, því að enn þá vantar miklar upplýsingar til að gera endanlega upp, þá sé ekki ofmælt, að nettóeign sjóðsins hafi verið kringum 10 millj. um áramótin.

Þegar alls þessa er gætt, þá sýnist mér, að ekki væri kannske mjög mikil bjartsýni, þó að menn geri sér vonir um, að ríkissjóður komist af á þessu ári, þótt ekki séu á lagðir frekari skattar en nú hefur verið farið fram á. Komi til þess, að þær tekjur, sem gert er ráð fyrir, hrökkvi ekki fyrir útgjöldunum, þá er þó þess að gæta, að gert er ráð fyrir, að þing komi saman ekki síðar en í septembermánuði næsta haust, og væru þá möguleikar til annaðhvort að fá lántökuheimild eða ef til vill afla nýrra tekna þá. Það hefur því orðið samkomulag um það í ríkisstj. að leggja til, að á þessu stigi málsins verði ekki lagðir frekari skattar á þjóðina en þeir, sem felast í þessum 3 frv., sem ég hef minnzt á, enda geri ég ráð fyrir, að sú skattabyrði þyngi ærið, og er naumast fært, ef ekki á að eiga á hættu, að dýrtíðin hlaupi upp úr öllu valdi, að ganga lengra á þeirri braut.

Ég leyfi mér svo að leggja til, að þessu frv. verði að lokinni umr. vísað til 2. umr., en eins og gat um er það flutt af hv. fjhn., svo að ég veit ekki, hvort beinlínis sé ástæða til að vísa því til n., en þá mælist ég til við hv. form. fjhn., að hann til morguns taki þetta fyrir í n. og athugi það fyrir næstu umr.