13.09.1944
Efri deild: 42. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 55 í C-deild Alþingistíðinda. (2504)
95. mál, loðdýrarækt
Gísli Jónsson:
Herra forseti. — Mér finnst einmitt ræða hæstv. ráðh. sanna það, að engin ástæða sé til þess að stofna til ríkisrekstrar til tryggingar góðum stofni, heldur sé hitt nauðsynlegt, að tryggja það, að loðdýraræktarráðunauturinn, sem á að hafa umráð með þessum málum, sé starfa sínum vaxinn. Það hlýtur að verða þjóðinni fyrir beztu, að þeir einstaklingar, sem stunda þessa atvinnugrein, séu það vel upplýstir um uppeldi dýranna, að þeir geti jafnan sjálfir valið sér uppeldishæf dýr, en séu ekki að ala upp dýr, sem ekki borgar sig að ala upp. Mér finnst því nauðsynlegt, að eftirlitið sé skerpt, en ekki farnir þeir útúrkrókar, eins og lagt er til í þessu frv., að ríkið taki að sér að setja upp loðdýrabú, nema ríkið taki að sér alla loðdýrarækt á Íslandi, sé það eitt talið nauðsynlegt til tryggingar því, að ekkert dýr sé alið upp nema það, sem uppfyllir ströngustu fyrirmæli. Þá horfir málið öðruvísi við.
Eins og bent hefur verið á, hefur mikið verið um það rætt, hvort leyft skuli að ala upp minka hér á landi. Fyrr en úr því er skorið, er vafasamt, að hæstv. Alþ. geti heimilað ríkisstj. að setja upp minkabú, máske í trássi við fjöldamarga bændur landsins og a. m. k. í óþökk margra manna, sem hafa þá skoðun, að ekki eigi að fjölga þessum dýrum, heldur miklu frekar að gera róttækar aðgerðir til þess að útrýma þeim alveg. Ég vildi aðeins benda á þetta atriði og veit, að hv. landbn. mun athuga þetta mál gaumgæfilega, einnig þær aths., sem komið hafa fram við 6. gr. frv.