31.01.1945
Efri deild: 115. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í C-deild Alþingistíðinda. (2510)

95. mál, loðdýrarækt

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):

Herra forseti. — Eins og þetta mál liggur nú fyrir, þarfnast það ekki mikilla skýringa, því að hæstv. fyrrv. atvmrh. (Vilhj. Þór) skýrði efni þess við fyrstu umr.

Breyt. þær, sem gert er ráð fyrir við núverandi loðdýraræktarl., eru í fyrsta lagi, hvernig veita skuli leyfi til að hafa loðdýrarækt, í öðru lagi er gert ráð fyrir breyt. á starfi loðdýraræktarráðunautar frá því, sem nú er, og í þriðja lagi er farið fram á, að landbrh. eða ríkisstj. fái heimild til að reka loðdýraverzlun.

Þetta frv. var lengi til athugunar í landbn., og var leitað umsagnar um það bæði frá Loðdýraræktarfélagi Íslands og Búnaðarfélagi Íslands. Báðar stofnanirnar höfðu ýmislegt við það að athuga og lögðu á móti því, að það væri samþ. — Að þessu athuguðu og eins hinu, að þetta er mál, sem þarf mikils og góðs undirbúnings við, ef það á fram að ganga, leggur landbn. til, að málið verði afgreitt með rökstuddri dagskrá, sem hljóðar þannig, með leyfi hæstv. forseta:

Þar sem búnaðarþing kemur saman til funda í febrúarmánuði næstkomandi og ætla má, að loðdýraræktarmálin verði tekin þar til endurskoðunar, telur d. rétt að bíða eftir þeim till., sem þaðan kunna að koma, áður en afgreiddar verða breytingar á loðdýraræktarl., og tekur fyrir næsta mál á dagskrá.

Fjhn. hefur tekið loðdýraræktarráðunautinn inn á launal., en ætlazt er til í frv., að hann heyri undir Búnaðarfélag Íslands. En hvorum megin, sem hann nú verður, verða laun hans sennilega svipuð.

Ég býst við, að óþarft sé að hafa langar umr. um þetta mál, og vænti, að rökstudda dagskráin verði samþ., eins og landbn. leggur til.