15.09.1944
Neðri deild: 50. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í C-deild Alþingistíðinda. (2514)

119. mál, áburðarverksmiðja

Atvmrh. (Vilhjálmur Þór):

Það hefur mörg undanfarin ár verið mikið rætt um það, að æskilegt væri og nauðsynlegt að koma upp í landinu verksmiðju, sem framleiddi köfnunarefnisáburð handa landbúnaðinum. Fyrir allmörgum árum var gerð athugun á þeim möguleikum með því að fenginn var að ég held danskur verkfræðingur til að gera athuganir og till. Ekkert varð þó úr framkvæmdum í það skiptið, af ýmsum ástæðum. Síðan er svo langt liðið, að miklar breyt. hafa orðið um tilbúning og meðferð áburðar. Er því augljóst, að þær athuganir, sem þá voru gerðar, voru allsendis ónógar að byggja á.

Árið 1941, þegar ég var staddur í Washington sem sendimaður ríkisstj. ásamt fleirum í samningum við Bandaríkjastjórn, notaði ég tækifærið til að spyrjast fyrir þar hjá stj., hverjir í landinu væru líklegastir til að láta í té góða verkfræðilega umsögn um þetta mikla mál fyrir íslenzkan landbúnað. Þær upplýsingar voru mér látnar í té, og átti ég þegar viðræður við það firma, sem var efst á þeim lista, og fékk nokkrar bráðabirgðaupplýsingar. Síðar fól þáverandi landbrh. Sigurði Jónassyni forstjóra, sem var á förum til Ameríku, að tala við firmað frekar og kynna sér málið. Árið 1943 varð það úr, að atvinnumálaráðuneytið ákvað að snúa sér til eins af stærstu verkfræðingafélögum Bandaríkjanna, þess, sem stj. á sínum tíma hafði gefið mér upplýsingar um, og biðja það um að láta okkur í té góðan verkfræðing hingað heim til að athuga staðhætti og ræða málið við okkur hér á staðnum, og gera síðan till. í málinu. Þessi verkfræðingur var svo hér seint á árinu 1943. Hann kynnti sér eftir beztu getu og með aðstoð margra manna, sem hann átti viðræður við, staðhætti hér á landi, og gaf þá þegar bráðabirgðaálit sitt um málið, sem var í þá átt, að hann taldi það ekki aðeins æskilegt, heldur sjálfsagt fyrir Ísland að búa sig undir að hefjast brátt handa um að reisa hér áburðarverksmiðju. Við höfðum beðið um það, að þessi athugun hans yrði fyrst og fremst byggð á því, að framleiða skyldi kalísaltpétur, en það er sá áburður, sem okkar bændum hafði geðjazt bezt að fram að þeim tíma.

Gerði hann bráðabirgðaáætlun um verksmiðjuna og var gert ráð fyrir, að þegar heim kæmi, léti hann í té betri gögn og frekari till. Frá félagi hans kom á þessu ári álitleg greinargerð og bráðabirgðaáætlun um að reisa köfnunarefnisverksmiðju, byggt á því, að þetta væri ekki kalísaltpétur, heldur án þess að kalk þyrfti til.

Nú er fyrirliggjandi í íslenzkri þýðingu álit þessa verkfræðings um þetta væntanlega fyrirtæki. Því miður hefur ekki getað orðið úr því nú að útbýta þessu áliti ásamt frv., en ég vona, að það komi seint í dag eða í síðasta lagi á mánudag. Hv. þm. geta þá haft það til athugunar.

Vegna þess að hér var um nýjan áburð að ræða, þá vildi ég hafa um það frekari vissu en umsögn þessa eina verkfræðings. Ég vildi vita, hvort þessi áburður væri í alla staði jafnhentugur, bæði til þess að geymast og eins til þess að gefa þá raun, sem gefa þyrfti. Varð úr, að ég sneri mér til íslenzka konsúlatsins í New York, og bentu þeir mér á ungan og efnilegan íslenzkan vísindamann, Björn Jóhannesson, sem stundar nám við Cornellháskólann, og bað ég hann sérstaklega að láta í té álit sitt á notagildi áburðarins og geymsluþoli hans. Þetta álit fengum við fyrir nokkru síðan, og mun því verða útbýtt á morgun, eða mánudag. Eins og hv. þm. munu sjá, er álit hans á þann veg, að hann telji áburðinn ágætan og geymslu hans ekki neinum verulegum vandkvæðum bundna, en til frekari vissu fékk ég nokkra poka heim til þess að sjá, hvernig áburðurinn geymdist í þessu loftslagi.

Fyrst þessu máli var nú svo langt komið, þá virtist mér ekki ástæða til og ekki rétt að draga það lengur, heldur beinlínis skylda að bera málið fram á Alþ. í frumvarpsformi, og tel ég það nauðsynlegt, að hv. Alþ. geti fjallað um þetta mál og tekið ákveðna afstöðu, svo að ekki verði frekari bið á, að þetta mjög merkilega mál fyrir landbúnaðinn fái fast form og undirbúningur verði hafinn undir fastar framkvæmdir.

Ég leyfi mér að leggja fyrir hv. d. það frv., sem hér liggur fyrir. Það er gerð till. við frv. um það, að reist verði köfnunarefnisverksmiðja, sem verði sjálfseignarstofnun, og að ríkissjóður leggi fram til verksmiðjunnar fé á fjárlögum. Það er engu slegið föstu um, hvað það verði mikið, en ég vil benda á í því sambandi, að á fjárl. í fyrra var samþ., að varið yrði 2 millj. kr. til slíkrar verksmiðju, og ráðuneytið fór fram á, að á fjárl. 1944 yrði varið 3 millj. kr. til sama fyrirtækis. Ég leyfi mér að beina því til hv. Alþ, að það verði lagt kapp á að leggja sem mest fé úr ríkissjóði á næstu fjárl. og næstu árum, svo að þessi verksmiðja, þegar hún kemst upp, verði alskuldlaus.

Það er ráð fyrir gert í frv., að verksmiðjustjórnin verði skipuð strax eftir gildistöku þessara l. Það er lagt til, að í stjórninni verði 3 menn, 2 þeirra tilnefndir af þeim félögum, sem eru sjálfkjörnir umboðsmenn fyrir bændur eða landbúnaðarframleiðsluna, þ. e. Búnaðarfélag Íslands og Samband íslenzkra samvinnufélaga, en eins og getið er um í aths. frv., þá hefur landbúnaðardeild S.Í.S. keypt langsamlega mestan hluta af þeim köfnunarefnisáburði, sem komið hefur til landsins á síðustu árum. Þriðja manninn tilnefnir ráðh. sá, sem fer með landbúnaðarmál. Þessa stjórn skal skipa strax eftir gildistöku l. og skal henni falið að annast um byggingu verksmiðjunnar, staðarval fyrir hana og rekstur hennar, þegar hún kemst upp. Ég lít svo á, að þessu máli muni vera bezt fyrir komið á þann veg, því að stjórn þannig kosin mun verða færust um að sjá um, að verksmiðjan hagnist en skaðist ekki, og hún verður líka færust um að sjá um framkvæmdir og byggingu verksmiðjunnar, svo að vel fari og úr leysist.

Það er ekki slegið neinu föstu um stærð verksmiðjunnar. Um það kann að vera nokkur ágreiningur. Mér finnst nokkuð eðlilegt, að verksmiðjan verði byggð það stór, að hún geti framleitt 5 þús. smálestir á ári, miðað við þann áburð, sem inniheldur 201/2% af köfnunarefni. Það væri heppilegast að byggja verksmiðjuna stóra eða að minnsta kosti þannig úr garði gerða, að hægt sé með auðveldu móti að stækka hana, þegar þess þarf með. Ég hélt því fram við verkfræðingana, að það hefði iðulega reynzt svo hér á landi, að fyrirtæki hefðu verið byggð of smá, og fljótlega þurft að stækka þau, en eftir að þessi aths. mín hafði sérstaklega verið tekin til athugunar og yfirvegunar, þá varð það niðurstaða verkfræðinganna, að bezt væri að hugsa sér stærð verksmiðjunnar eins og ég sagði áðan, þannig að nokkur hluti hennar væri byggður þannig, að það væri lögð undirstaða að nokkuð stærri verksmiðju. Þessu verður samt ekki slegið föstu opinberlega, fyrr en væntanleg verksmiðjustjórn getur kynnt sér öll mál til hlítar.

Það er gert ráð fyrir, að verksmiðjan verði ekki verzlunarfyrirtæki, heldur afhendi hún áburðinn til Áburðarsölu ríkisins, sem annist um söluna eins og hingað til. Það kom til mála að láta verksmiðjuna sjálfa selja áburðinn, en mér finnst eðlilegast og réttast, að Áburðareinkasalan haldi áfram að starfa, þar sem einhver aðili verður að hafa á hendi innflutning og verzlun með aðrar tegundir áburðar en þær, sem framleiddar eru í verksmiðjunni. Verksmiðjan ætti því aðeins að framleiða og afhenda áburðinn til verzlunarinnar, eins og hún hefur áður fengið áburð sinn afhentan frá útlöndum.

Þetta er í stórum dráttum það, sem frv. fer fram á. Ég vildi að lokum aðeins endurtaka og undirstrika það, sem ég sagði áðan, að það er von mín og ósk og trú, að hv. Alþ. fallist á þá till., að þessi verksmiðja verði sjálfseignarstofnun og að ríkissjóður sjái sér fært að leggja til allan stofnkostnað á næstu árum, þannig að hið háa Alþ. afhendir landbúnaðinum þessa verksmiðju, sem ég hef trú á að geti orðið styrk stoð á komandi árum fyrir landbúnaðinn, afhendi hana þannig til landbúnaðarins með það fyrir augum að sýna með því þessum elzta og nauðsynlega og góða atvinnuvegi landsmanna hæfilegan sóma og ljá honum með því þann styrk á komandi árum, sem hann á skilið.

Ég vil svo leyfa mér, að þessari fyrstu umr. lokinni, að leggja til, að frv. verði vísað til hv. landbn.