28.11.1944
Neðri deild: 83. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 71 í C-deild Alþingistíðinda. (2528)
119. mál, áburðarverksmiðja
Frsm. (Jón Pálmason):
Síðasti ræðumaður talaði mjög undarlega. Hann lét sem ætti að vísa málinu frá, en það liggur alls ekki fyrir. Við viljum aðeins láta ríkisstj. annast undirbúning málsins, með þeim starfskröftum, sem hún hefur yfir að ráða, en ekki kjósa verksmiðjustjórnina strax.
Þá taldi hann okkur ósammála hæstv. forsætisráðherra. Það þarf ekki að vera.
Það skiptir öðru máli um það, sem snertir lífsafkomu þjóðarinnar. Tæki til reksturs sjávarútvegsins þarf að kaupa og verksmiðjur þarf til að vinna úr sjávarafurðunum. Þessu verður að halda gangandi. Hitt er svo annað mál, hvort verksmiðjurnar bera sig, og gegnir allt öðru máli en um áburðarverksmiðjuna.
Að öðru leyti fer ég ekki út í að svara hv. þm. V.-Sk.