28.11.1944
Neðri deild: 83. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 71 í C-deild Alþingistíðinda. (2529)

119. mál, áburðarverksmiðja

Sveinbjörn Högnason:

Herra forseti. Mér þykir þetta furðuleg túlkun á stefnu ríkisstjórnarinnar. Hann segir, að áburðarverksmiðjumálið þurfi frekari undirbúning áður en í framkvæmdir sé ráðizt og að það sé annað mál, hvort atvinnurekstur á jörð beri sig eða skip. Er þá ekki áburðarverksmiðjan svipað þýðingarmikil fyrir landbúnaðinn og skip fyrir sjávarútveginn? Hví heldur þessi fulltrúi bændastéttarinnar, sem svo kallar sig, þessu fram hér á Alþingi? Ég sé engan mun á því, hvort reist er áburðarverksmiðja fyrir landbúnaðinn eða síldarverksmiðja fyrir sjávarútveginn. Það er ekki hægt að segja, að það sé sama, hvort sjávarútvegurinn ber sig eða ekki. — Ég er sannfærður um, að hv. þm. A.-Húnv. er ekki í samræmi við stefnu stjórnarinnar í þessu efni. Í grein í Mogganum fer hann háðulegum orðum um, að blaðið Vísir hafi sagt, að þetta og hitt þyrfti að bera sig. En það er nú svo mikið moldviðri í Morgunblaðinu, að ekki er gott að átta sig á því, sem þar stendur. Ef kaupa þarf framleiðslutæki fyrir landbúnaðinn, verða þau að bera sig, en ef sjávarútvegurinn er annars vegar, er sama hvort þau tæki, sem hann þarfnast, bera sig eða ekki.

Ég vil að lokum benda hv. þm. A.-Húnv. á að lesa vel það, sem stendur í Mogganum. Hann á þar svo mörg og góð spakmæli, sem hann hefði gott af að lesa.