28.11.1944
Neðri deild: 83. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 73 í C-deild Alþingistíðinda. (2532)
119. mál, áburðarverksmiðja
Barði Guðmundsson:
Herra forseti. Mér finnst ekki þurfa kjark til þess að benda á þá augljósu staðreynd, að fjármála- og atvinnulíf íslenzku þjóðarinnar sé nú á hverfanda hveli, og það sé ákaflega erfitt að gera áætlanir fram í tímann um slíkar framkvæmdir sem stofnun áburðarverksmiðju. En ég vil nú spyrja: Hvers vegna leggja hv. þm., sem tala á móti brtt., svo ríka áherzlu á það, að frv. í óbreyttu formi nái fram að ganga nú? Hvers vegna gera þeir sér svo mikið far um að gera suma nm. í landbn. tortryggilega að því leyti, að þeir séu á móti hagsmunum bænda? Vegna þess, að þessir þm. vita, að áburðarverksmiðjumálið var vinsælt víða í sveitum. En þær vinsældir áttu rót sína að rekja til þess, að fyrir stríð var oft erfiðleikum bundið að fá erlendan áburð með viðunandi kjörum. Er ekki rétt að bíða og athuga ofurlítið, hvort ekki verða á næstunni allmiklar breytingar á þessu sviði? Væri það sízt til hagsbóta fyrir bændastéttina að byggja nú áburðarverksmiðju, sem rekin yrði með halla og gæti ekki staðizt samkeppni við hinar stóru erlendu áburðarverksmiðjur um áburðarverðið. Það er áreiðanlegt, að á þessu máli verður auðveldara að glöggva sig þá er friður er á kominn í heiminum.