28.11.1944
Neðri deild: 83. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 76 í C-deild Alþingistíðinda. (2536)
119. mál, áburðarverksmiðja
Barði Guðmundsson:
Hv. þm. Mýr. hefur misskilið mig. Ég hef aldrei haldið því fram, að víst væri, að hin fyrirhugaða áburðarverksmiðja gæti ekki borið sig. Ég get að sjálfsögðu ekkert um það sagt með vissu. En ég benti aðeins á það, að það væri algerlega óvíst, að verksmiðjan bæri sig. (BÁ: Hvað er það, sem ber sig?). Og það er einmitt vegna þeirrar skoðunar minnar, að líkur bendi þó frekast til þess, að áburðarverksmiðjan mundi trauðlega bera sig, að ég hef gerzt flutningsmaður að bráðabirgðaákvæðinu, sem um er deilt nú. Mér er það alveg óskiljanlegt, hvers vegna ekki má athuga þetta mál betur, þar sem óvissan er slík sem raun ber vitni um. Ég fæ ekki séð, að tjón geti af því hlotizt, þótt málið fái forsvaranlega athugun einmitt nú á næstunni, þar sem fyrirsjáanlegt er að komið er að lokum þessa hildarleiks, sem nú er háður.