24.02.1944
Neðri deild: 18. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 161 í B-deild Alþingistíðinda. (256)
27. mál, skipun læknishéraða
Gunnar Thoroddsen:
Ég tel það enga ofrausn af forseta, þótt hann bíði enn í nokkrar mínútur, þar sem vitað er, að tveir til þrír þm. eru á leið til atkvgr. Og þótt þetta sé forseta kappsmál mikið, þá vænti ég, að hann láti ekki persónulegan áhuga ráða gerðum sínum í máli þessu.