01.02.1945
Efri deild: 116. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 102 í C-deild Alþingistíðinda. (2594)
91. mál, lögreglumenn
Frsm. (Bjarni Benediktsson):
Allshn. hefur haft þetta mál til meðferðar, en ekki getað orðið sammála um að mæla með því að svo stöddu. Þó mun n. hafa verið sammála um, að núverandi skipting á lögreglukostnaði milli ríkis og bæja væri óréttlát, en var hins vegar ekki sammála um, hvernig skipta ætti kostnaðinum.
Leitað var álits sakadómara, sem skrifaði um þetta ýtarlega grg., sem hér fylgir með, og virðist hann hallast að því, að lögreglukostnaður verði að mestu færður yfir á ríkið.
N. sannfærðist af þeim rökum, sem þar eru greind, og þess vegna er þessi rökst. dagskrá fram komin, í trausti þess, að hæstv. ríkisstj. athugi þetta. Vil ég biðja hæstv. forseta að sjá um, að hin rökst. dagskrá berist ríkisstj. í hendur, og mun ég ganga eftir þessu á næsta hausti.
Bréf hefur borizt um þetta mál frá lögreglustjóranum í Reykjavík. Efni þess er hið sama að öðru leyti en því, að hann leggur til, að skipuð verði mþn. í málið. En ég hygg, að það sé nær vilja Alþ. að fela ríkisstj. þetta. Með leyfi hæstv. forseta ætla ég að lesa hér upp bréf lögreglustjóra, sem ekki hefur verið prentað, en það hljóðar svo:
„Hin heiðraða allsherjarnefnd efri deildar Alþingis hefur sent mér til umsagnar frumvarp það til laga um lögreglumenn, er nú liggur fyrir hinu háa Alþingi. Óskar nefndin sérstaklega álits um, hvernig skipta beri kostnaði milli ríkis og bæjarfélaga.
Við athugun og samanburð á frumvarpi þessu við núgildandi lög um löggæzlumenn, nr. 50 frá 1940, kemur í ljós, að frv. gerir ráð fyrir þeim höfuðbreytingum á núgildandi löggjöf, að ríkisvaldið fái óskoraðan rétt til skipunar lögreglumála, enda beri ríkissjóður einn allan kostnað af þeim málum.
Löggæzlan er eðli sínu samkvæmt ein meginmáttarstoð hvers þjóðfélags. Veltur því á miklu, að vel sé vandað til allrar löggjafar, er snertir hana. — Núgildandi lög um lögreglumenn eru að ýmsu leyti ófullkomin og úrelt, en það virðist hins vegar vera nauðsynlegt, að hið unga lýðveldi búi svo vel um þessi mál sem unnt er.
Ég leyfi mér því að leggja til, að skipuð verði nefnd, sem taki lögreglumálin í heild til meðferðar og geri tillögu um nýja löggjöf um lögreglumenn. Mætti t. d. skipa í nefnd þessa borgarstjóra og einhvern af starfsmönnum dómsmálaráðherra, einn mann úr hverjum þingflokki, sakadómara, lögreglustjórann í Reykjavík og einhverja úr hópi sýslumanna.“
Eins og ég áður gat um, er þetta bréf að mestu samhljóða hinni rökstuddu dagskrá.
Ég sé svo ekki ástæðu til að ræða þetta nánar, nema tilefni gefist.