29.01.1945
Neðri deild: 114. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 106 í C-deild Alþingistíðinda. (2610)

216. mál, sala mjólkur og rjóma o.fl.

Bjarni Ásgeirsson:

N. var sammála um að vísa málinu frá með rökstuddri dagskrá. En ég var ekki alls kostar samþykkur orðalagi n. og áskildi mér rétt til að gera grein fyrir því hér. Það má segja, að mjólkurl. hafi staðizt vel sitt próf, en eins og líklegt er um svo umfangsmikið mál, þá er þörf endurskoðunar, þegar reynsla og breyttir tímar hafa gert sitt að. Nú situr mþn., sem hefur þessi mál til meðferðar, og þykir mér ástæða til að bíða eftir hennar áliti.

Um efni frv. er það að segja, að landbn. sendi mþn. frv., og var álit hennar á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta.

„Nefndin hefur athugað frv. það á þskj. 640, um breyt. á l. um meðferð og sölu mjólkur og rjóma, sem landbn. hefur sent henni til umsagnar. Nefndin lítur svo á, að hægt sé að mæla með samþykkt frv., með þeirri breyt., að heimildir þær til sölu á rjóma og nýju skyri í l. gr. fyrir þá, sem eru utan verðjöfnunarsvæðanna, séu bundnar við það, að skortur sé á þeim vörum á verðjöfnunarsvæðunum sjálfum, eða þann tíma árs, sem slíkur skortur kemur fram. Enn fremur, að heimild 2. gr. sé gefin sölustjórnum verðjöfnunarsvæðanna, en ekki hverju mjólkurbúi um sig.

Þannig breytt getur nefndin fallizt á, að frv. sé til bóta.“

Ég er mþn. sammála um aðalatriðin í þessu áliti hennar, og þegar talað er um breyt. á þessum l., þá á ég við þau atriði, sem mþn. hefur tekið fram. Á þessum grundvelli get ég greitt þessari rökstuddu dagskrá mitt atkvæði.