29.01.1945
Neðri deild: 114. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 108 í C-deild Alþingistíðinda. (2612)
216. mál, sala mjólkur og rjóma o.fl.
Frsm. (Jón Pálmason):
Herra forseti. Hv. þm. Mýr. lét svo í ræðu sinni sem það væri meiri ágreiningur um þessa dagskrártill. heldur en í raun og veru er, enda er hún undirskrifuð af öllum nm. ágreiningslaust. Vitanlega komu ýmis form á dagskrártill. til athugunar í n. En ég skoðaði það svo, að þetta væri samkomulagstill. Og það er óþarfi að véfengja það.
Ég sé ástæðu til að minnast á afstöðu mþn. mjólkurmála í sambandi við þetta mál. Landbn. þessarar háttv. d. sendi þeirri n. þetta litla frv. til umsagnar og fékk frá henni bréf, sem er hið fáránlegasta plagg. Það er að vísu á því hin fagra rithönd hv. þm. Ak., en mér virðist andinn í því vera fenginn frá hv. þm. V.-Sk. Því að aðalatriðið í þessu bréfi var, að það skyldi að vísu mega selja rjóma og skyr á markaðinum frá öðrum héruðum en sem eru á verðjöfnunarsvæðum, þegar þeir, sem á verðjöfnunarsvæðunum búa, hefðu þessar vörur ekki til. M. ö. o., við, sem ekki búum á verðjöfnunarsvæðunum, eigum að fá þá náð að mega selja hér skyr og rjóma á þeim tímum árs, þegar minnst er til af þessum vörum, minnst af þeim framleitt á þeim svæðum, sem einkarétt hafa nú til sölu á mjólk og mjólkurafurðum á aðalmarkaðsstöðunum. Þetta bréf er kostulegt plagg, því að það sýnir hugsunarhátt, sem er einstakur í sinni röð varðandi afurðasölumál. Því að vitanlegt er, að því aðeins gagnar það þeim svæðum, sem fyrir utan verðjöfnunarsvæðin eru, að fá þennan rétt, að þau fái hann árið um kring, a. m. k. jafnhliða því, sem þörfin er fyrir þessar vörur. Og reynslan hefur sýnt það, upp á síðkastið a. m. k., að það er alltaf skortur á rjóma og mjög mikill skortur á skyri, sem hægt sé að segja, að sé frambærileg vara. Þess vegna er það hin lægsta krafa, sem hægt er að gera af hálfu þeirra manna, sem reka landbúnað utan þessara einkaréttarsvæða, að það sé heimilt að flytja inn á þau svæði þessar vörur, rjóma og skyr, ekki aðeins á þeim tíma á árinu, þegar þær eru ekki til á verðjöfnunarsvæðunum, heldur líka endranær.
Ég vil svo víkja að ræðu hv. þm. V.-Sk., sem hann flutti nú. Ég gerði nú ráð fyrir, úr því að samkomulag varð um það í landbn. að vísa þessu frv. frá afgreiðslu í trausti þess, að það yrði tekið til nánari athugunar, hvaða breyt. þyrfti að gera á mjólkurl. síðar, þá þyrfti ekki að verða hér nein mjólkurræða út af því máli nú. En önnur er samt raunin á um það.
Ég skal ekki ganga langt í því að verja grg. þessa frv., sem fyrir liggur, því að hún er ekki hér til samþykktar eða atkvgr., og landbn. hefur ekki gert neitt í því að segja um það, hvort þar væri allt rétt sagt eða ekki. En óhætt er þó að segja, að það er rétt sagt í þessari grg., að það er starfandi einkasala á mjólkurmálasviðinu. Og um það höfum við rætt áður á þessu þingi, þó að frv. okkar hv. þm. Snæf. hafi verið stöðvað fram að þessu, og það með mjög undarlegum hætti. Ég get ekki látið hjá líða, úr því að inn á það er farið, að víkja að því við hæstv. forseta, hve langt eigi að líða formönnum nefnda að ganga í því að stöðva frv. Þessu áminnzta frv. var vísað til landbn. um miðjan sept. eða upp úr því. Ég skilaði áliti minni hl. landbn. fyrir jól. Nál. meiri hl. landbn. um það frv. er ekki komið enn, og nú er kominn 29. janúar. — Um þetta skal ég svo ekki segja meira. En þessi meðferð á frv. er náttúrlega þannig, að það er illt við slíkt að búa.
En í sambandi við þetta litla frv., sem hér liggur fyrir og gengur a. n. l. inn á sama svið og frv. það, sem ég flutti ásamt hv. þm. Snæf., er það að segja, að það er alveg hárrétt, sem ég tók fram í minni framsöguræðu áðan, að höfuðtilgangur þess er tvennur: að heimila sölu á rjóma og skyri inn á verðjöfnunarsvæði frá svæðum utan þeirra, og það jafnan, en hins vegar er hitt höfuðtilgangurinn með frv. að gefa þeim mjólkurvinnslustöðvum, sem til eru á verðjöfnunarsvæðunum, heimild til að taka mjólk til sölu annars staðar að, þegar þær sjá sér það fært. — Hv. þm. V.-Sk. hélt því fram, að það væri rangt, að þetta væri höfuðtilgangurinn með frv., heldur væri það hitt, að gera þeim hærra undir höfði um sölu á þessum vörum, sem utan verðjöfnunarsvæðanna búa, heldur en þeim, sem á þeim eru, og það með því að heimila þeim, sem utan svæðanna búa, að flytja skyr og rjóma árið um kring til sölu á verðjöfnunarsvæðunum, jafnvel þó að það væri á sumum tímum árs nóg til af þeim vörum framleitt til sölu innan verðjöfnunarsvæðanna.
Það er náttúrlega alls ekki hægt að segja, að það sé neinn tilgangur, sem í því felst, þó að þetta sé þannig orðað í frv., heldur er það tilgangurinn að tryggja það, að neytendur hafi alltaf nóg til boða af þessum vörum, og svo hitt, að þær séu framleiddar í landinu í svo stórum stíl, að alltaf sé nóg af þeim á markaðnum. — Hitt er út af fyrir sig annað atriði, hvort of langt sé gengið eins og frv. er orðað, og sem landbn. tekur ekki heldur afstöðu til, að skylda sölumiðstöðina til þess að hafa á hendi sölu á þessum vörum fyrir aðra en þá, sem á verðjöfnunarsvæðunum búa, ef þeir, sem þar búa, hafa þær til sjálfir. Það gæti komið til greina, að gerð væri sú breyt. á l. — því að til þess höfum við ekki tekið afstöðu í n. —, að þau félög og einstakir aðilar yrðu að sjá um sölu á sínum vörum sjálfir, sem utan verðlagssvæðanna búa, en fengju leyfi til þess í l. að selja þessar vörur á markaðinum, þegar sölumiðstöðin vildi ekki hafa þær á sínum markaði. — En að hér sé um einhverja afskræmingu á l. eða rétti að ræða, sem fram á sé farið í frv., það fæ ég ekki séð. En ég tel hitt fremur misrétti í mjólkursölumálum þjóðarinnar, að svo sé til hagað með löggjöf, að nauðsynlegasta neyzluvara þjóðarinnar sé tímum saman ekki til á markaðnum hér í höfuðstaðnum, svo að fullnægjandi sé, en að hinu leytinu sé heilum héruðum bannað að selja þessar vörur hér og lagðar háar sektir við, ef út af er brugðið. Þetta tel ég misrétti. Þess vegna er ég á móti því, að breyt. verði gerð á dagskrártill. landbn., og vænti þess, að hv. þm. geti yfirleitt allir á hana fallizt eins og hún liggur fyrir frá nefndinni.