29.01.1945
Neðri deild: 114. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 110 í C-deild Alþingistíðinda. (2613)
216. mál, sala mjólkur og rjóma o.fl.
Forseti (JörB):
Út af orðum, sem hv. þm. A.-Húnv. lét falla um þann drátt, sem hefur orðið á afgreiðslu frv., sem hann var flm. að ásamt öðrum hv. þm., skal ég geta þess, að ég hef að vísu af minni hálfu ekki gert neinar sérstakar ráðstafanir til þess að fá nál. um málið. Og ég tók það svo, af því að hv. þm. A.-Húnv. hefur aldrei vikið að því einu orði við mig, að þetta mál kæmi fyrir, að honum væri ekki hugarhaldið, að það kæmi á dagskrá. Því að annars hefði ég átt tal við hv. meiri hl. landbn. um að afgreiða málið frá sér, og hefði það ekki fengizt, mundi ég hafa tekið málið á dagskrá þrátt fyrir það, ef ekki hefði verið annars úrkosta.