29.01.1945
Neðri deild: 114. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 113 í C-deild Alþingistíðinda. (2617)

216. mál, sala mjólkur og rjóma o.fl.

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Það er ekki í fyrsta sinn, sem hér er rætt um afurðasölu, og er e. t. v. alls ekki tiltökumál. En í sambandi við þetta mál vil ég minnast þess, að fyrir stuttu var hér rædd og samþ. þál. um skipulagning kjötframleiðslunnar, borin fram af sama þm. og þetta frv., varaþm., sem nú er horfinn héðan. Í þeirri till. var lagt til, að viss héruð, sem bezt væru fallin til kjötframleiðslu, sætu fyrir innanlandsmarkaði með kjötsölu sína eins og önnur héruð hefðu einkarétt til sölu mjólkur og rjóma. Meiri hl. landbn. mælti með till. og stuðlaði að samþykkt hennar. Nú breytir sami meiri hl. sömu n. öfugt um mál flutt af sama þm. á sama þinginu og vill endilega afnema þann einkarétt, sem þál. byggir á, að viss héruð hafi til sölu mjólkurafurða. Slík ósamkvæmni er lítt skiljanleg. Og hvað sem n. lætur sér sæma, finnst mér Alþ. ekki geta samþykkt dagskrártill., sem felur í sér slíka mótsögn við áður samþ. till. Það er ljóst, að meiri hl. n. er áttavilltur í málunum.