17.11.1944
Neðri deild: 76. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 121 í C-deild Alþingistíðinda. (2647)
104. mál, húsmæðrafræðsla í sveitum
Jón Sigurðsson:
Till. okkar þm. Skagf. styðst við hin sömu almennu rök og þær till., sem nú hefur verið mælt fyrir, svo að ég get verið stuttorður. Í Skagafirði er að vísu ekki mjög langt til kvennaskólanna á Laugalandi og Blönduósi. Engu að síður höfum við Skagfirðingar ekki mjög miklar vonir um að geta komið stúlkum í þá skóla. Innanhéraðsmenn eru oft fyrri til að sækja um skólavist, en auk þess hefur okkur virzt, að forstöðumenn skólanna létu oft þeirra umsóknir sitja fyrir, svo að lítið þýddi fyrir utanhéraðsmenn að sækja. Ég treysti lítið á, að til þeirra gagni að leita framvegis. Í Skagafirði var í haust stofnaður vísir að kvennaskóla. Þar er hægt að taka við allt að 20 nemendum, en 60 sóttu um að komast að. Af því einu má ráða, hve brýn er þörfin, og var þetta þó ekki auglýst fyrr en seint í haust, þegar þorri stúlkna var búinn að binda sig yfir veturinn. Það er fyrrverandi forstöðukona Staðarfellsskólans, mikil dugnaðarkona, sem hefur sett þennan skóla upp skammt frá Varmahlíð. Enginn vafi er á, að framhald verður á þessu, sýslufélag og aðrir aðilar bindast fyrir málið. Þegar hreyft er því að löggilda nýja húsmæðraskóla í öðrum héruðum virðist okkur flm. brtt. einsætt, að þar með fylgi þessi skóli. Ég er sannfærður um, að full þörf er fyrir alla þessa skóla. Sérmenntun kvenna hefur mjög verið vanrækt, og eru þó störf þeirra ekki þýðingarlítil þjóðarbúinu. Eins og hv. 10. landsk. drap á, eru þetta heimildar lög, og fer eftir ástæðum á hverjum tíma um framkvæmdir á hverjum skólastað. Ég sé ekki, hvaða ástæður Alþingi ætti að hafa til að bregða fæti fyrir slíka skóla.
Ég get fallizt á að taka aftur brtt. til 3. umr., ef það þykir hentara en að fresta þessari umr., þangað til n. hefur athugað tillögurnar.