25.02.1944
Efri deild: 15. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 163 í B-deild Alþingistíðinda. (268)
27. mál, skipun læknishéraða
Eiríkur Einarsson:
Herra forseti. — Ég býst við, að þessu máli verði vísað til hv. heilbr.- og félmn. d. En ég vildi aðeins taka það fram, áður en n. tekur við frv., að ég hef hugsað mér að bera fram brtt. við frv., þó að hún sé ekki prentuð enn, því að málið gengur nú mjög hratt áfram. Málið var afgreitt frá hv. Nd. í gær og er hér tekið fyrir með afbrigðum. En brtt. mín mun lúta að því, að núverandi Eyrarbakkalæknishéraði verði skipt í tvö læknishéruð, sem verði Eyrarbakkalæknishérað og Selfosslæknishérað. — Það var í raun og veru ekki ætlun mín að bera þessa brtt. fram, en okkur fulltrúum Árnesinga hér á Alþ. þótti eftir atvikum réttast að taka tillit til þess, sem við vissum, að væri vilji heilbrigðisstjórnarinnar, að opna ekki gáttirnar fyrir fjölgun læknisembætta, en örva hins vegar möguleika til þess að skipa aðstoðarlækna. Og þetta var meiningin að láta sér lynda. En þegar svo fór, sem raun varð á við 3. umr. í hv. Nd., að sú hv. d. gekk í bága við þetta og samþ. klofningu á tveimur læknishéruðum, þá er, — ja, ég ætlaði að fara að segja óvandari eftirleikurinn, og það því fremur sem það er ekki eftirleikur aðeins af kappi, heldur er hann líka af forsjá. Og ég tel, að þetta læknishérað eigi frumburðarréttinn á því að fá tvo lækna, ef nokkurs staðar er lagt í að kljúfa læknishérað í sundur.
Ég vil vekja athygli n. á því, að þessi brtt. er í uppsiglingu.