04.12.1944
Neðri deild: 86. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 126 í C-deild Alþingistíðinda. (2684)
104. mál, húsmæðrafræðsla í sveitum
Frsm. (Páll Þorsteinsson):
Herra forseti. — Eins og hv. dm. er kunnugt, óskaði menntmn. að fá brtt. þær, sem komið hafa fram við frv., til athugunar. Hæstv. forseti varð við því að veita n. tóm til þeirra hluta. Hins vegar hefur n. aldrei sagt, að hún ætlaði að gefa út álit sitt um till., en fór aðeins fram á að fá sjálf aðstöðu til að ræða málið sín á milli. Við fyrri umr. hefur verið gerð grein fyrir því, að n. hefði rætt málið og ekki verið alls kostar á einu máli, og hafa mismunandi sjónarmið komið fram. Telur n. eðlilegast, úr því sem komið er, að málið gangi undir atkvgr. í d. og því sé ráðið til lykta samkv. þingsköpum.