04.12.1944
Neðri deild: 86. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 128 í C-deild Alþingistíðinda. (2688)

104. mál, húsmæðrafræðsla í sveitum

Sveinbjörn Högnason:

Frsm. n., hv. þm. A.-Sk., taldi, að hann hefði skýrt þetta svo rækilega áður, hvers vegna n. gæti ekki fallizt á þessar till., að ég hlyti að hafa verið fjarverandi eða ég vissi ekki um ástæður hennar. Síður en svo, — ég hef verið hér við þessar umr. og hlustað á þær og ummæli hv. frsm. enn einu sinni, og ég er nokkurn veginn jafnnær. Það eina, sem mér skilst, er, að ástæðan til þess, að þeir mæla með frv., að stofna skóla í Norður-Þingeyjarsýslu, en eru á móti að stofna skóla annars staðar, í Skaftafellssýslu, Rangárvallasýslu, á Snæfellsnesi og í Skagafirði, sé sú, að þessi eini skóli, sem þeir mæla með, sé betur undirbúinn. Annað hef ég ekki fengið fram. Hvað er svo rétt í því? Af því, sem ég hef hlustað á hjá hv. flm. brtt., þá hef ég a. m. k. hlustað á það, að undirbúningi sé komið alllangt á veg á hinum stöðunum, bæði á Kirkjubæjarklaustri, Laugalandi og að Helgafelli á Snæfellsnesi. Hvernig talað var fyrir brtt. hv. þm. Skagf., er mér ekki kunnugt um. (JS: Hann er starfandi.) Enda er auðvitað mál, að þm. viðkomandi héraða eru ekki að flytja till. um að staðsetja húsmæðraskóla í héruðum sínum, nema þeir viti, að fullt samkomulag sé um, að þeir skuli vera og skólarnir þar settir. Þess vegna er þetta eina, sem n. hefur borið fram um, að undirbúningi þessa skóla, sem hún mælir með, sé lengra komið en hinna, aðeins fyrirsláttur. Aftur á móti er kannske einum skólanum lengra á veg komið, ef hann er þegar starfandi í Skagafirði. En hinir eru vitanlega allir í undirbúningi og tilbúnir að hefjast handa, ef búið er að lögfesta þá á hverjum stað.

Viðvíkjandi hinu atriðinu, að skólamál öll séu í athugun hjá mþn. í skólamálum, þá er vitað mál, að hæstv. Alþ. hefur ákveðið að stofna skóla, og m. a. mælir n. með því að stofna skóla í Norður-Þingeyjarsýslu, síðan þessi mþn. var sett, og ég hygg, að hæstv. Alþ. og þjóðin í heild mætti bíða töluvert um úrlausn skólamálanna, ef ekkert mætti gera, meðan mþn. situr. Hún er búin að sitja æði lengi, og ekki er enn kunnugt um, að mikið hafi komið frá henni. Hún hefur aðeins hugsað um barnafræðsluna, og þáltill. frá mér í fyrra var stöðvuð af þessari sök. Mér er ekki kunnugt um, að þessi n. sé neitt farin að hugsa um hana. Síðan er meiningin, að hún taki fyrir mál sérskóla, ef hún kemst þá nokkurn tíma að þeim. Einn nm., sem á sæti hér á hæstv. Alþ., hefur lýst yfir, að ef till. hennar um barnafræðslu verði ekki sæmilega tekið, muni hún hætta störfum.

Nú er vitanlega alveg undir hælinn lagt, hvernig till. n. um barnafræðslu verður tekið hér á hæstv. Alþ. Jafnvel þó að hún snúi sér að öðrum málum, þegar búið verður að berjast um barnafræðsluna, þá verður að bíða í nokkur ár enn til þess að fá úrlausn á mesta vandamáli í skólamálum, húsmæðrafræðslunni. Sú viðbára, að meiri ástæða sé að gera undanþágu um einn skóla en aðra, getur aðeins stafað af því, að n. sé hrædd um, að of mikill kostnaður verði við húsmæðrafræðsluna. Ég er alveg sannfærður um, að húsmæðrafræðslunni sé ekki of vel séð fyrir húsakosti, þó að fjórir skólar séu stofnaðir í viðbót.

Það er brýn nauðsyn að koma betra skipulagi á þessi mál. Þess vegna get ég ekki séð, að þær ástæður, sem n. hefur fyrir að mæla gegn því, að viss héruð fái sína húsmæðraskóla, þó að mþn. starfi almennt í skólamálum, — sem vitað er, að er mjög afkastalítil, — hafi við nein þau rök að styðjast, sem hægt er að taka gild, sérstaklega þegar litið er á, hve veigamikil þau mál eru, sem krefjast úrlausnar. Fjöldamörg héruð hafa beðið allt of lengi eftir að fá húsmæðraskóla, og það er því gersamlega ástæðulaust og mesta skammsýni, sem löggjafi þjóðarinnar getur sýnt, að banna viðkomandi héruðum að koma upp slíkum skólum.

Þess vegna vildi ég óska þess, að hv. n. taki þessum till. vel, og ég fyrir mitt leyti tel ekkert um of, heldur sjálfsagt, að hvert hérað fái, áður en langur tími líður, sinn eigin húsmæðraskóla.