26.01.1945
Efri deild: 111. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 132 í C-deild Alþingistíðinda. (2702)

104. mál, húsmæðrafræðsla í sveitum

Frsm. (Jónas Jónsson):

Herra forseti. Hv. þm. Dal. benti á það, sem rétt er, að það hefur á sínum tíma mikinn kostnað í för með sér að koma upp skóla. En honum er og kunnugt, hvers virði það er að hafa góðan skóla, því að hann hefur verið formaður skólanefndar hins vinsæla skóla á Staðarfelli, sem svo vel hefur tekizt með. Ég vona því, þar sem hann hefur svo góða reynslu úr héraði sínu, að hann verði fylgjandi þessu frv.

Út af ræðu hv. þm. Barð. vil ég taka það fram, að ég get ekki sagt um afstöðu meðnm. minna, en ég hefði frekar óskað, að hann kæmi fram með brtt. sína við 3. umr. Mér virðist till. réttlát og eðlileg, og væri réttmætt, að reistur yrði skóli á Vestfjörðum. Mundi hann ekki gera betur en að vega upp á móti Hallormsstaðaskólanum. En það yrði engum til ávinnings, ef frv. dagaði uppi vegna brtt. Ef skóli verður ekki settur nú á Reykhólum, verður það gert síðar, því að öll rök mæla með því, að það sé í alla staði réttlátt. Það er með Reykhóla eins og Kirkjubæjarklaustur og Helgafell, að þetta er gamalt höfuðból og hefur einn mikinn kost fram yfir, þar sem jarðhitinn er. Við skulum vona, að þjóðin finni nauðsyn þess að halda við sögufrægum stöðum og láta þá vaxa inn í líf samtíðarinnar, en það er ekki hægt, nema hver sýsla hafi sinn skóla á sínum fornfrægu stöðum.

Ég vil í þessu sambandi geta þess, að nú er víða verið að koma upp byggðasöfnum, en erfitt er um geymslu fyrir þau, meðan ekki eru komnar upp stofnanir, sem gætu varðveitt þau. Þar mundu skólarnir geta komið að góðu liði, og væri þar í raun og veru um að ræða eðlilega framþróun.