30.01.1945
Efri deild: 114. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 136 í C-deild Alþingistíðinda. (2711)
104. mál, húsmæðrafræðsla í sveitum
Gísli Jónsson:
Ég vil fyrst þakka fyrir undirtektir undir mína till. En út af ræðu hv. 6. þm. Reykv., þar sem hann gat þess, að hér virtist fremur um að ræða persónulegt kappsmál einstakra þm. en almennan áhuga heima í sveitum, þá vil ég benda á þær samþykktir á undanförnum þingum, sem gerðar hafa verið viðvíkjandi Reykhólum. Á síðasta þingi bar ég fram frv. þessu viðvíkjandi, en því var vísað til mþn. í skólamálum með rökst. dagskrá. Ég fór svo að spyrjast fyrir um þetta í haust. Kom þá í ljós, að mþn. höfðu verið send öll plögg málinu viðvíkjandi, en hún hafði glatað þeim öllum. Hvort það hefur verið vegna gleðskapar á Laugarvatni í sumar eða af öðrum ástæðum, er mér ekki kunnugt. Loks þegar álit hennar fékkst, þá var það á þá leið, að slík mál hefði hún ekki tekið til athugunar. Hún hefði einungis fjallað um barna- og unglingafræðslu. Það varð þess vegna ekki til annars en drepa málið að senda það til þessarar mþn. Ég get fallizt á, að athuga þyrfti þetta mál nánar, en það er tvímælalaust vilji Barðstrendinga að fá húsmæðraskóla á Reykhólum, og þegar ég er að gera breytingu á l. um húsmæðrafræðslu, þá ber ég þetta fram til þess að ekki þurfi að breyta þeim síðar vegna þessa.
Viðvíkjandi ræðu hv. þm. Dal., þá kann það að vera rétt, að „teoretiskt“ skuldi ríkissjóður þessa upphæð. En ég hygg, að ef eitthvert hérað vill leggja út í það að taka á sig sinn hluta af kostnaði við byggingu húsmæðraskóla, þá sé þörfin þar orðin svo brýn, að ekki verður til lengdar undan því komizt að verða við óskum þess.
Um mikilvægi þessa máls vil ég segja það, að það hefur jafnan verið skoðun mín, að því fé, sem varið er til menntunar íslenzkri alþýðu, sé betur varið en flestu öðru fé, því að það bregzt varla, að það endurgjaldist ekki margfalt með fjölþættari og betri framleiðslu þjóðarinnar og bættri afkomu á margan hátt. Ég hef persónulega kynnzt t. d. sjómönnum annarra þjóða og getað borið þá saman við íslenzku sjómannastéttina og séð við þann samanburð, hversu langt sjómenn okkar bera af flestum stéttarbræðrum sínum í öðrum löndum. Tel ég þetta stafa langsamlega mest af því, hve sjómenn okkar fá betri menntun. Sama má einnig segja um marga verkamenn og iðnaðarmenn. Er þess skemmst að minnast, er margir hv. alþm. skoðuðu nýlega hin nýju húsakynni Landssmiðjunnar og sáu þar hópa almennra verkamanna við óþrifaleg störf, en mættu þessum sömu mönnum nokkru síðar skrautklæddum í hófi á Hótel Borg, þar sem þeir hver af öðrum fluttu skipulagðar ræður, frumort kvæði, gamanvísur og sögur. En allur annar háttur þeirra og framkoma var sem meira hefðu þeir iðkað veizlufagnað og bókmenntir en óþrifalegustu verk.
Menntun kvenna er þá ekki heldur minna virði, hvort heldur fyrir þeim á að liggja að veita heimili forstöðu á Íslandi eða bera hróður lands og þjóðar út um fjarlæg lönd, eins og þær margar hverjar hafa gert með prýði og m. a. vegna þeirrar fræðslu, sem þær hafa notið hér í skólum okkar. Mér er það alveg ljóst, að það kostar töluvert fé í fámennu og strjálbyggðu landi að halda uppi mörgum skólum á þann hátt, sem til er ætlazt með þessu frv., en mér er jafnljóst, að það kostar þjóðina raunverulega meira fé að gera það ekki. Það leynast svo margir dýrmætir hæfileikar með íslenzkri alþýðu, sem koma ekki í ljós né fá notið sín, fyrr en þeir hafa fengið næringu frá vizkulindum skólanna, og það verður að vera takmark okkar að hlúa að öllum þeim eiginleikum hjá æskunni, sem gera henni léttara fyrir að lyfta þjóðinni á hærra stig, bæði andlega og efnalega. Og húsmæðraskólarnir munu að minni hyggju reynast drjúgir í baráttunni að því marki.