15.02.1945
Neðri deild: 130. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 157 í C-deild Alþingistíðinda. (2743)

104. mál, húsmæðrafræðsla í sveitum

Sigfús Sigurhjartarson:

— Herra forseti. — Ég vildi sízt vera meinsemdarmaður þess, að sá skóli gæti risið upp í N.-Þingeyjarsýslu, sem þetta frv. fjallaði fyrst um og hv. 2. þm. S.-M. bar fram. Ég hef fengið upplýsingar um það, að það mál er vel undirbúið í héraði og sennilega bezt allra þeirra mála, sem hér um ræðir.

Hv. 2. þm. S.-M. staðhæfir, að ljóst sé, að hér sé þingmeirihluti fyrir þeirri stefnu, sem í frv. felist, stefnu hinna mörgu skóla og smáu. Þetta er ákaflega hæpin staðhæfing. Eins og við höfum báðir rakið, kom málið fyrst þannig inn, að rætt var um einn nýjan skóla. Ég hygg, að í þessari hv. d. hafi verið bætt við fjórum skólum, einhverjum var bætt við í hv. Ed., og enn þá er lagt til, að bætt verði við tveimur skólum. Ég veit ekki, hvernig þátttaka hefur verið í atkvgr., þegar málið hefur farið gegnum deildirnar, en hitt vitum við allir, að fjöldinn allur af málum fer í gegn með litlu atkvæðamagni. Ég ætla því, að það sé engin móðgun, þótt sagt sé, að á engan hátt sé kannað, hvort hv. þm. hafi gert gert sér grein fyrir því til hlítar, hvort réttari stefna sé að hafa marga og smáa skóla eða fáa og stóra. Ég ber engan kinnroða fyrir því, þótt ég hafi ekki gert þetta upp við sjálfan mig, en til þess tel ég mig þurfa nánari athugun á þörf fyrir skólana og svo mörgu öðru, sem þetta mál varðar.

Þá drap hv. þm. á það, að mþn. í skólamálum hefði sýnt þessu máli nokkuð aðra meðferð og annan áhuga en öðrum skólamálum, sem hér hafa verið á ferðinni. Þetta er ekki rétt. Það er Alþ., sem hefur hér haft aðra meðferð, en ekki mþn. Mþn. í skólamálum var spurð um álit sitt á stofnun eins húsmæðraskóla í sveit, þ. e. í N.-Þingeyjarsýslu, og það álit gaf fræðslumálastjóri, og var mælt með því, að skólinn risi upp. Síðan hefur n. ekki verið að spurð, og ætla ég, að hv. Alþ. mundi kalla slíkt slettirekuskap, ef n., þótt stjórnskipuð sé, færi að gefa umsögn um mál, sem þ. hefði ekki kvatt hana til. Ég er ekki form. þessarar n., en á þar sæti, og þótt ég væri form. hennar, mundi ég ekki gefa umsögn um mál, nema Alþ. hefði á formlegan hátt beint málinu til hennar. Ég vil staðhæfa það, að áhugi okkar á málefnum húsmæðraskólanna er engu minni en fyrir málefnum háskólans.

Þá er að svara því nokkrum orðum enn, hvort það mundi hafa nokkra raunhæfa þýðingu í sambandi við framgang málsins, þótt málinu yrði frestað til haustsins. — Hv. þm. viðurkennir, að það sé ekkert fé í fjárl. á þessu ári ætlað til þess að reisa þennan skóla, og eru því ekki líkur til, að hann verði reistur, fyrr en til kemur, að Alþ. veiti fé til þess. Alþ. kemur næst saman í síðasta lagi 1. okt. n.k., og höfum við þá tækifæri til þess að taka málið upp að nýju, og lofa skal ég hv. 2. þm. S.-M. því, ef frv. liggur þá fyrir, sem ég er sannfærður um að verður, að ég mun ekki tefja þennan skóla, sem hann ber hér fyrir brjósti. Gæti það þá farið saman, að skólinn færi yfir á l. um fjárveitingar eða gengizt yrði fyrir því á þ., og mundi málið þá ekki tefjast, heldur aðeins gefast tækifæri til þess að athuga það rækilega frá öllum hliðum.

Hv. 2. þm. S.-M. sagðist ekki leggja mikið upp úr áliti mínu um þörfina fyrir þessa skóla og sagði, að þeir mundu ekki síður verða sóttir af stúlkum úr kaupstöðum og sjávarþorpum en úr sveitum. Þó að þetta sé rétt, er líka þess að geta, að í kaupstöðunum starfa hliðstæðir skólar samkv. hliðstæðum l., og má segja, að þeir skólar séu ekki aðeins sóttir af kaupstaðastúlkunum, heldur einnig af stúlkum úr sveitinni. Hitt erum við sammála um, að með stofnun svona margra skóla yrði ekki um að ræða nema fámenna skóla, og hygg ég, að við séum sammála um það, að þessir skólar yrðu ekki sóttir af fleiri nemendum en 15–25, enda tæplega reistir fyrir fleiri nemendur.

Skal ég svo láta útrætt um mál þetta. Ég hef gert grein fyrir rökst. dagskr. og mun ekki taka frekari þátt í umr., nema sérstakt tilefni gefist.