29.09.1944
Neðri deild: 58. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 159 í C-deild Alþingistíðinda. (2750)

129. mál, jarðræktarlög

Flm. (Bjarni Ásgeirsson):

Um þetta frv. er sama að segja og það, sem var til umr. hér áðan, að það er samið og flutt að tilhlutun mþn. Búnaðarþings. Bæði frv. eru samin með hliðsjón af frv. um breytingar á jarðræktarl., sem mþn. fékk til athugunar í vetur. Eftir að n. hafði athugað málið, var fallizt á að skipta því í tvennt, þannig að frv. um jarðræktar- og húsagerðarsamþykktir í sveitum yrði mál út af fyrir sig, en hinn þátturinn yrði tekinn upp sérstaklega, eins og gert er með þessu frv. Ætlun flm. er sú, að þessi frv. fylgist að, vegna þess að tilgangurinn með báðum er einn og hinn sami. Við leggjum til, að þær brtt., sem fram verða bornar í sambandi við þetta mál, komi allar sem brtt. við bráðabirgðaákvæði jarðræktarl. frá 4. júlí 1942. Þar er svo fyrir mælt, að þúfnasléttun skuli styrkt með 100% hækkun, en til viðbótar við þann styrk leggjum við til, að komi styrkhækkun til venjulegrar nýræktunar og til sléttunar engjalands. Þetta er hugsað með tilliti til þess, að innan 10 ára komi upp við sem flest sveitabýli vel ræktaður heyvöllur, er gefi af sér það hey, sem jörðin þarfnast. Styrkurinn er miðaður við það, að hvert býli komi sér upp 600 hesta véltæku heyskaparlandi. Þegar komið er upp fyrir það, er gert ráð fyrir, að hin almennu ákvæði um jarðræktarstyrk taki við. Svo má geta þess, að þótt þetta frv. sé borið fram í beinu sambandi við framkvæmdir, sem ætlazt er til, að gerðar verði á þessum tíma, sáum við okkur ekki fært að binda styrkinn við þá eina, sem gætu framkvæmt þetta. Okkur fannst ekki sanngjarnt, að sveitarfélög, sem eru þannig sett, að þau geta ekki komið sér upp þessu véltæka landi, færu á mis við styrkveitinguna, þó að við leggjum áherzlu á, að allir bændur geti orðið aðnjótandi þessa vinnubragðaléttis, sem hlyti að leiða af fullkomnari tækjum.

Læt ég þetta svo nægja til viðbótar því, sem segir í grg., og legg til, að frv. verði vísað til landbn.