13.12.1944
Neðri deild: 91. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 177 í C-deild Alþingistíðinda. (2761)

129. mál, jarðræktarlög

Skúli Guðmundsson:

Ég vil gera fyrirspurn til flm. brtt. á þskj. 630. Í fyrsta lagi, hvort ekki sé rétt skilið, að gert sé ráð fyrir eða ætlazt til, að framkvæmdirnar séu í höndum bænda í búnaðarfélögum, sem búið er að stofna, þó að ríkið kosti framræslu og vinnslu landsins. Svo skildist mér á hv. frsm., en vil fá það skýrt fram tekið. Ef það hins vegar væri markmið brtt., að komið geti til mála, að ríkið annist þessar framkvæmdir með vélum sínum og vinnuflokkum, þá vildi ég spyrja, hvort ekki væri ástæðulaust að setja það skilyrði fyrir framkvæmdum, að ræktunarsamtök hefðu verið sett á svæði viðkomandi jarða.

Önnur spurning mín er um það, hvort ekki sé rétt skilið, að ríkið kosti framræslu og vinnslu landsins og eigi að greiða hana eins og hún kostar, eftir reikningi.