23.02.1945
Efri deild: 135. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 180 í C-deild Alþingistíðinda. (2775)
129. mál, jarðræktarlög
Frsm. minni hl. (Páll Hermannsson):
Herra forseti. — Ég kemst ekki hjá því að minnast á forsögu þessa frv., áður en ég ræði sjálft frv.
Eins og hv. þdm. munu muna, þá var borið fram á Alþ. 1943 frv. til l. um breyt. á jarðræktarlögunum. Með þessu var gengið mun lengra en áður hafði verið gert. Í þessu frv. var gert ráð fyrir eftirtöldum atriðum, sem myndu snerta samtök og ræktunarstarfsemi úti um landið og undirbúning að þeim. Í fyrsta lagi, að tryggt yrði svo sem hægt væri að fá vandaðar og stórvirkar vinnuvélar, og þá einnig að fá menn til þess að vinna með þær. Þá er gert ráð fyrir, að ríkið kaupi vélarnar ng síðan verði gerð tilraun til þess eftir góðan og réttan undirbúning að hefja jarðræktarframkvæmdir og vinna yfirleitt að þessum málum þannig, að öll jarðræktarstarfsemi geti verið varanleg eign fyrir þjóðfélagið. — Í öðru lagi var svo í því frv. gert ráð fyrir því, að styrkur samkvæmt jarðræktarl. hækki verulega á flæðiengi landsins. Þessu frv., sem flutt var á þingi 1943, var vísað frá með rökst. dagskrá. Landbn. þessarar hv. d. klofnaði um málið og meiri hl. n. bar fram rökst. dagskrá, sem var samþ., og vil ég leyfa mér að lesa hana upp með leyfi hæstv. forseta. Hana er að finna á þskj. 540 á bls. 766. Hún er svona:
„Með því að mikið skortir á, að nauðsynlegur undirbúningur undir framkvæmdir þær, sem frv. gerir ráð fyrir, sé fyrir hendi, og í trausti þess, að ríkisstj. hlutist til um, að Búnaðarfélag Íslands framkvaemi hið allra fyrsta þessar undirbúningsrannsóknir og aðrar mikilsverðar athuganir, er ákveðnar hafa verið og lúta að eflingu landbúnaðarins, og að jafnframt verði nægilega margar stórvirkar jarðvinnsluvélar útvegaðar, til þess að reynsla fáist af notkun þeirra og nauðsynleg æfing í meðferð þeirra, telur deildin ekki tímabært að afgreiða frv. á þessu þingi og tekur fyrir næsta mál á dagskrá.“
Þessu máli var vísað til mþn. búnaðarþings, sem starfað hefur að undirbúningi þessa máls. Árangurinn af því starfi n. var, að á þessu þingi s. l. haust, líklega í sept., voru lögð fram tvö lagafrv. út af þessari þál. og í sambandi við breyt. á jarðræktarl. Þessi frv. voru bæði flutt af sömu mönnum í n., þ. e. a. s. af þeim hv. þm. Mýr., hv. þm. Borgf. og hv. 2. þm. Skagf.
Þessi tvö frv. voru gerð með tilliti til þess, sem gert var ráð fyrir í jarðræktarlagafrv. 1943, en þó þannig, að efnið var klofið í tvennt. Fyrri liður, sem sé regla um ræktunarsamtök, vélakaup og vélanotkun og undirbúning jarðræktar, og ýmislegt fleira, styrkur til kaupa á verkfærum o. fl., var sett í sérstakt frv., frv. til l. um jarðræktar- og húsagerðarsamþykktir í sveitum, sem nú hefur fengið afgreiðslu og nú fyrir skemmstu var staðfest sem lög.
Þetta frv. er aftur á móti um hinn liðinn, styrkinn, sem ríkissjóður skuli leggja til ræktunar landsins. Þegar frv. var lagt fram í Nd., var það nákvæmlega í samræmi við frv. frá 1943, þannig að það var gert ráð fyrir að hækka styrkinn eftir jarðræktarl. um helming að því leyti, sem hann var annars hækkaður, til jarðabóta, þó ekki lengur en þangað til hvert býli hefði fengið vélfært land, ræktað eða óræktað, sem gæfi af sér 600 hestburði á ári.
Frv. tók nú verulegum breyt. í n., þannig að í staðinn fyrir að hækka ræktunarstyrkinn, breytti n. frv. í það horf, sem það er í nú, en nú er það þannig, að það gerir ráð fyrir, að ríkissjóður kosti vinnslu landsins, þ. e. a. s., beri kostnað af þurrkun landsins og af annarri vinnslu þess. En bændur og aðrir jarðræktarmenn bera kostnað þann, sem stafar af áburði í landið og útsæði.
Í n. var nokkur meiningarmunur um það, hvora þessa leið ætti að fara, en það varð ofan á að haga þessu eins og nú er gert ráð fyrir í frv., og ætla ég, að stuðningsflokkar ríkisstj. hafi einkum barizt fyrir því, að þessu yrði breytt, og fengið því líka ráðið. Mér finnst yfirleitt líta út fyrir það, að menn séu að verða um það sammála, að stefna beri að því marki að rækta landið vel, þó að menn greini eitthvað á um leiðir til þess. Mér finnst það ekkert undarlegt, þó að menn geti komið auga á þá miklu nauðsyn, og það er áreiðanlegt, að eftir því sem menn virða þá hluti betur fyrir sér, sannfærast þeir betur um það, að hér er um stórt nauðsynjamál að ræða, frá hvaða sjónarmiði sem það er litið.
Ég hygg, að menn hafi alltaf vitað það og sjái nú betur og betur, enda oft viðurkennt, að úti í sveitunum, dreifbýlinu, séu fólgnir hinir beztu möguleikar frá uppeldisfræðilegu sjónarmiði. Það eru margir, sem vit hafa á þeim hlutum, sem telja það vera gæfu hverrar þjóðar, að æskan fái að alast upp í dreifbýli, en að henni sé ekki þrengt óeðlilega mikið. Þá er og þess að gæta, að þessi atvinnuvegur leggur fram mikið af fæðu landsmanna og það, sem þjóðin má sízt án vera.
Ég hef hér fengið nýlega merkilega skýrslu eftir einn af þekktustu læknum þessa lands, sem jafnframt mun vera álit og skoðun lækna almennt. Þar talar þessi læknir um það, að fæðu manna sé aðallega skipt í tvo flokka, það sem hann nefnir heilsuverndandi fæðu og orkugefandi fæðu. Og af þeirri fæðu, sem kallast heilsuverndandi, er þar talið, að hver maður þurfi frá 50–100% af allri fæðu, sem hann neytir. Og hverjar eru svo þessar heilsuverndandi fæðutegundir, sem menn þurfa til þess að geta haldið heilsu sinni. Þær eru aðallega þessar: Mjólk, kjöt, egg, ostur, kartöflur, grænmeti, svo og fiskur, lýsi og eitthvað af því, sem hann kallar C-vitamíngefandi fæðutegundir og nefnir þar til fæðutegundir hér á landi, einkanlega ber. Þegar maður lítur yfir þessa skýrslu, sér maður; að meginið af því, sem telst hið allra nauðsynlegasta til þess að þjóðin haldi heilsu, eru þær fæðutegundir, sem ræktunin framleiðir, og geta menn þá skilið og skilja, hvers virði ræktunin og landbúnaðurinn er. Þegar einnig á það er litið, að jafnvel meiri hlutinn af því, sem þjóðin nærist á, er fenginn frá landbúnaðinum, þá fara menn að láta sér skiljast, að þó að sjávarútvegurinn leggi fram mikið af verðmætum, þá má þó ekki gleyma því, að landbúnaðurinn er svo nauðsynlegur til þess að halda lífinu í þjóðinni.
Takmark bænda og stærsta sjónarmíð er það að koma landinu í rækt. Við vitum, að mikið af heyfeng landsmanna er fengið á ræktuðu og einnig á óræktuðu landi, og mikið af því er óvéltækt og ræktaða landið svo misjafnt, að það á ekki saman nema að nafninu til. Það er hægt að rækta einn ha. þannig, að hann gefi af sér 25 hestburði, slík ræktun er til. Af þess háttar ræktun er ekki hægt að lifa. Það kann að vera, að það sé hægt aðeins undir þeim kringumstæðum, að þessi uppskera sé notuð til fóðurs handa sauðfé í beztu og kjarnmestu beitar- og útigangshéruðum landsins. En það mætti kannske segja, að það væri í rauninni útigangshlunnindi, sem menn lifa þar á, en varla heyfengur. Það er hægt að rækta ha. þannig, að hann gefi af sér 40 hestburði, og það er það, sem yfirleitt er ræktað hér á landi nú. Af þeirri ræktun má lifa, með því að um leið fylgi góð markaðsskilyrði fyrir þær afurðir, sem heyfengnum er breytt í. En svo er hægt að rækta landið, að það gefi af sér 60 hestburði, og það er meira að segja ekki mikill vandi þar, sem jörðin er góð til ræktunar og vel ræktað og vel borið á. Enda er það áreiðanlegt, að sá mikli munur, sem er á. ræktaða landinu, stafar af því, hve áburðurinn er mismunandí mikill.
Vitanlega er þetta mál stórmál fyrir ríkissjóð beinlínis í sambandi við þau útgjöld, sem honum er ætlað að hafa af þessu frv. Það er erfitt að gera sér grein fyrir, hvað mundi kosta að rækta landið eins og frv. gerir ráð fyrir: að rækta það þannig, að hvert byggilegt býli landsins hafi 600 hesta véltækt land, og það langsamlega mest á ræktaða landinu sjálfu, en þó kannske að einhverju leyti á óræktuðu. Það er erfitt að segja nokkuð ákveðið um það, en það er talið, að túnstærð á öllu landinu hafi verið 1944 37 þús. ha. Um 15 þús. ha. eru ræktaðir og sléttaðir á s. l. 25 árum. Það er talsvert af þeim sléttað, en eðlilega meiri hlutinn þýfður.
Ef gert er ráð fyrir nálægt 40 heyhesta uppskeru af ha., eins og er meðaluppskera af túnum nú, þá lítur út fyrir, að þurfi í viðbót við þessa ræktun 22 þús. ha. lands til þess að hvert býli, en þau eru um 5-6 þús., fái þennan umtalaða heyfeng á véltæku landi. Þessu til viðbótar verður að gera ráð fyrir, að til séu í landinu nálægt 10 þús. ha. af véltæku útengi. Ef við göngum út frá að þurfa að rækta 22 þús. ha. lands til þess að fá landið í góða rækt og hvert býli hefði þetta mikla rækt og véltækt land, þá mætti telja, að slíkum málum væri komið í gott horf, miðað við mannfjöldann, sem kynni að vera að 10 árum liðnum í landinu, að minnsta kosti ágætlega séð fyrir þörf landsmanna á landbúnaðarafurðum, ef þessi heyfengur getur orðið eins og nú er gert ráð fyrir.
En hvað myndi kosta að rækta hvern ha? Um það verður ekki neitt fullyrt, en Búnaðarfélag Íslands hefur leitazt við að gera áætlun um það, hvað það myndi kosta að vinna og rækta einn ha. lands nú, og er áætlun þess á þessa leið: Ef það þarf að fullþurrka ha., rækta upp mýri, þ. e., sem alveg þarf að þurrka, þá verður þurrkunarkostnaður á ha. 2330 kr., og er þar gert ráð fyrir, að opnir skurðir séu og unnir með vélum, en lokræsi gerð með handafli. Annar vinnslukostnaður á ha., án þess að þurrkun komi til greina, telur Búnaðarfélagið, að ætti að vera 1040 kr., og þar er gert ráð fyrir, að unnið sé með beztu vélum og hentugustu sem menn nú hafa. Kostnaður af áburði og útsæði til þess að koma einum ha. í rækt 1880 kr. og ræktunarkostnaður alls 5250 kr. Frá þessum upphæðum telur jarðræktarráðunautur Búnaðarfélagsins, að megi draga nálægt 600 kr., sem komi fyrir uppskeru, sem fengin er með eins árs forrækt og reiknast sem hagnaður. Og eru þá eftir 4650 kr.
Nú er það alveg víst, að það er svo og svo mikið af landi, sem ekki þarf að þurrka, það er mikið af landi, sem er alveg fullþurrkað, en sumt þarf lítilla umbóta, þó að ekki þurfi að ræsa það eins og þar, sem er reglulega votlent.
Það gæti því varla talizt óvarlegt að gera ráð fyrir, að draga mætti frá þessum vinnslu- og ræktunarkostnaði 150 kr. á ha., sem sé að gera ráð fyrir því, að það þurfi engan veginn að fullþurrka allt landið, sem ræktað verður. Yrði þá eftir 4500 kr., sem væri ræktunarkostnaður á hvern ha. Þá kemur í ljós, að öll ræktun eftir þennan umreikning ætti að kosta 99 millj. kr., og segjum þá 100 millj. kr. Og virði maður fyrir sér, hvernig þessi kostnaður skiptist eftir frv. á milli ríkis og ræktunarmanna, þá kemur í ljós, að skiptingin að heita má er nákvæmlega eftir hlutfallinu 3/5 og 2/5, þannig að ríkið borgar stærri en ræktunarmenn minni partinn. Og miði maður við 100 millj. kr. kostnað á verkinu í heild, verður kostnaðurinn fyrir ríkið 60 millj. kr., en fyrir ræktunarmenn 40 millj. kr. Þetta eru vitanlega geysilegar fjárhæðir, en það er líka mikið í aðra hönd, ef heppnin fylgir þessurrt framkvæmdum, sem sé sú heppni, að með þessum tilkostnaði sé hægt að rækta landið vel. Gangi maður út frá því, að þetta kostaði ríkið í heild 60 millj. kr. og það legði þetta fé fram á næstu 10 árum með nokkurn veginn jöfnum afborgunum, þá verða útgjöld ríkisins á ári um 6 millj. kr. Það er há fjárhæð, en er nú samt ekki allt útlit fyrir, að Alþ. treysti sér til að bæta við laun embættis- og starfsmanna ríkisins sem þessum útgjöldum nemur og kannske meiru? Ég bendi nú svona bara á þetta til samanburðar og til skýringar og upplýsingar fyrír hv. deildarmenn.
Þetta frv. hefur legið hér fyrir hv. d. síðan um áramót. Landbn. gat ekki orðið sammála um það. Tveir nm., sem sé ég og hv. þm. Dal., skiluðum um þetta nál. 18. jan., þar sem lagt er til, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir. En þrír nm. (EE, HG og KA) voru ekki þá reiðubúnir til þess að mæla með því, að frv. yrði samþ. Síðan hafa tveir nm. lagt fram nál. alveg nýlega, þar sem þeir leggja til að vísa málinu frá.
Ég skal geta þess fyrir mína hönd og hv. þm. Dal., að þó að við leggjum til, að frv. verði samþ. eins og það er, þá er það ekki einungis fyrir það, að við séum vissir um það, að það sé í hinu heppilegasta formi, heldur hitt, að við viljum leggja áherzlu á, að þetta mál nái fram að ganga, og við töldum það einu vonina til þess, að það gengi fram eins og það liggur fyrir. Ég verð að telja, að það sé álitamál, hvort verði kostnaðarsamara fyrir ríkissjóð að vinna að ræktun landsins eftir þessu frv. eða eftir frv. eins og það var þegar það var lagt fram. Það mun velta á ýmsu um þetta. Ég býst þó við því, að þar, sem þarf að þurrka landið, verði þátttaka ríkisins eftir frv. kostnaðarmeiri en eftir frv. eins og það var fyrst. En þar, sem lítið þarf að þurrka, geri ég ráð fyrir, að þátttaka ríkisins verði ódýrari en eftir jarðræktarl. með tvöfölduðum styrknum. En náttúrlega mundi verða alls heldur dýrara fyrir ríkið að fara eftir frv. eins og það er en hinu upphaflega frv., sem sé þótt jarðræktarstyrkurinn hefði verið tvöfaldaður. En sá kostur er á þessu fyrirkomulagi, þ. e. eftir frv. eins og það er, að þarna er greitt fyrir þurrkun og vinnslu landsins það, sem þetta kostar. En það er varla hægt, býst ég við, að haga styrkveitingum úr ríkissjóði þannig, að nákvæmlega sama hlutfall komi á jarðvinnsluna alls staðar, vegna þess að aðstaða og jarðvegur eru svo misjöfn á hinum ýmsu stöðum.
Í áliti frá öðrum minni hl. landbn. er nú lagt til enn á ný að vísa þessu máli frá með rökst. dagskrá. Annars er það um þetta nál. að segja, að út af fyrir sig er það vinsamlegt í garð málsins. Aðalástæðan fyrir því, að þeir hv. nm. vilja láta vísa málinu frá, er sú, að þeir telja, að frv. hafi tekið svo gagngerðum breyt. í hv. Nd., að það þurfi að athuga það betur og að ríkisstjórninni eigi að vera falið að athuga þetta allt betur með aðstoð Búnaðarfélags Íslands og nýbyggingarráðs og að síðan verði lagt fyrir næsta reglulegt Alþ. nýtt frv. Það er því ekki hægt að segja annað en að undirtektir undir málið eru út af fyrir sig góðar. En mér finnst koma á þessar undirtektir annar blær, þegar maður tekur jafnframt til greina till. hv. Nd. Stuðningsflokkar hæstv. ríkisstj. í Nd. lögðu nokkra áherzlu á það og færðu fyrir því sín rök, að málið ætti að komast í það form, að ríkið léti vinna vissan hluta af ræktunarstarfinu, sem sé þurrkun landsins og vinnslu, í staðinn fyrir að greiða háan styrk á flatareiningu. Og þessir hv. þm. í Nd. léðu ekki máls á því að fylgja frv. í öðru formi. Þegar svo þetta frv. kemur í þessu nýja formi hingað til hv. Ed., þá virðist mér, að a. m. k. nokkrir af stuðningsmönnum hæstv. ríkisstjórnar hér setji það einkum út á frv., að það hefur tekið á sig þennan búning í hv. Nd., og það sé þess vegna, sem þeir telji nauðsyn á að taka sér enn frest til þess að undirbúa málið. Það er slæmt, að það skuli vera svona ósamræmi á milli hv. stuðningsflokka hæstv. ríkisstjórnar í Nd. og Ed. Það getur orðið til tafa, ef það reynist svo, að sá búningur, sem hv. Nd. vill hafa á máli, sé sá búningur, sem hv. Ed. getur ekki tekið til greina, a, m. k. ekki fyrst um sinn. En ég geri mér sjálfur vonir um það, að þetta frv. verði samþ. eins og það er. Einn fulltrúi stjórnarflokkanna í landbn. hefur nú ekki sagt sitt álit enn, og það getur allmikið oltið á hans áliti. En þó að svo færi, að rökst. dagskráin á þskj. 1194 yrði samþ., sem yrði töf á málinu, þá ylti mest á því að sú töf yrði ekki lengri en fram að næsta þingi, eins og rökst. dagskráin leggur til.
Ég ætla ekki að fjölyrða um málið meira að sinni. Ég þykist hafa lagt það greinilega fram frá sjónarmiði fyrsta minni hl. landbn. Við álítum, að þetta ræktunarmál sé svo stórvægilegt mál, að það megi ekki dragast ár frá ári að taka alvarlega á því. Og þó að ýmislegt geti orkað tvímælis í frv., viljum við ekki setja það fyrir okkur og ráðum hv. d. fastlega til þess að samþ. frv. eins og það liggur fyrir.