23.02.1945
Efri deild: 135. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 185 í C-deild Alþingistíðinda. (2776)

129. mál, jarðræktarlög

Eiríkur Einarsson:

Herra forseti. — Ég tel ekki mitt hlutskipti hafa verið að taka hér næstur til máls, því að frá landbn. þessarar hv. d. eru komin fram tvö nál., frá tveimur og aftur tveimur nefndarmönnum. En ég er þar staki hrafninn, fimmti nefndarmaðurinn, án þess að ég hafi sagt álit mitt um málið. En hv. frsm. 2. minni hl. n. er ekki hér til staðar í hv. d., og þess vegna get ég, þar til séð er, hvort hann eða annar hv. þm. verður hér til staðar til þess að ræða afstöðu þess minni hl., sagt mitt álit um málið.

Ég get sagt það strax, að þegar búið var að ræða þetta frv. á nokkrum fundum í n., þá hallaðist ég að því, að ekki væri annað fært en að afgr. þetta mál að þessu sinni með rökst. dagskrá. Og það er skoðun mín enn, að svo sé. Því að þótt sitt hvað gott megi um þetta frv. segja og að meining þess sé tvímælalaust góð og byggð á velvilja til landbúnaðarins og framfarahug, þá finnst mér það ótraustar brautir, sem þarna er farið inn á. Og það gefur mér tilefni til að hika dálítið við afgreiðslu málsins.

Eins og getið var í ræðu hv. frsm. fyrsta minni hl. nú, þá er þetta ekki nýmæli á þingi. Það hefur verið flutt áður, og varð þá ekki að l. Og þau nýmæli, sem þá lágu fyrir, hafa nú verið flokkuð í sundur, ef svo mætti orða það, og er það einn þátturinn, sem hér kemur fram, till. um styrkveitingar ríkisins til þess að koma á almennri ræktun til þess að fullnægja þörf og lágmarksheyfeng á ræktuðu landi á hverri jörð, eftir nánari ákvæðum, sem sett eru í frv. Ég get játað það, að ef nógu væri úr að spila, þannig að hægt væri að haga jarðræktinni eftir vild og öllum óskum manna um jarðrækt væri fullnægt, þá gæti ég léð þessu frv. alveg athugasemdalaust atkv. mitt. Og ég vil bæta því við, að ég tel, að seint verði svo miklu eytt til íslenzkrar jarðræktar, að það beri að telja eftir. En því takmarkaðri sem þær fjárveitingar eru, sem til jarðræktar fara, því betur ber að því að gá, að rétt sé að farið í þessum efnum, til þess að það fjármagn fái notið sín á réttan veg. Það er í sambandi við þetta, sem ég síðast sagði, sem ég sérstaklega steyti við, að því er þetta frv. snertir. Ég er nefnilega ekki bjartsýnni en svo, að mér meir en flýgur í hug, að þegar ætti nú að fara að framfylgja þessu frv., ef að l. yrði, með ræktun víðs vegar um land, svo að lágmarksheyfengur af ræktuðu landi væri eins og tekið er til í frv., og með því fjármagni frá ríkinu til þess að koma málinu í þetta horf, þá gæti svo farið, sem ég vildi, að aldrei kæmi til, að það yrðí að rifa seglin á öðrum sviðum íslenzkrar jarðræktar. Þarna væri eins konar kvöð sköpuð til þessarar lágmarksræktunar á heil búnaðarfélög, hvar sem er um landið, þar sem svona samþykktir væru gerðar, sem í frv. greinir. Og verður ekki séð, hvað til þess þyrfti hverju sinni. En meðan maður er ekki kominn lengra en svo, að því er getu til framkvæmda áhrærir, að legið hefur við, að illa gengi að hafa alltaf tilbúið það fé, sem áætlað hefur verið til sumra hinna stærri aðgerða í samræmi við framkvæmdir jarðræktarl., þá virðist mér einsýnt, að maður verður að viðhafa nokkra gát. Ég vildi, að aldrei kæmi til, að óttast þyrfti neitt getuleysi til jarðræktarframkvæmda, en allur er varinn góður. Og ef nú svo færi, að með samþ. þessa frv. væri boginn að vissu leyti ofspenntur, og ef það yrði aftur til þess, að vegna heimilda þeirra, sem hér yrðu veittar, yrði að draga úr framkvæmdum í jarðyrkju þar, sem búandmannskrafturinn er mestur og jarðvegurinn beztur, þá álít ég, að það gæti orðið til eftirsjónar, einnig fyrir beztu meðhaldsmenn þessa frv., sem fylgt hafa því eftir af beztum hug. Ég er ekki með þessu að halda fram, að það sé ekki nauðsynlegt, sem í frv. er farið fram á, og mér dettur ekki í hug að mótmæla því, að réttilega hafí verið komið auga á þá nauðsyn. En spurninguna tel ég aftur á móti vera þá, hvort hin jafnláta aðstaða til jarðræktarinnar yfirleitt er ekki hentust til þróunar í þessum málum, þannig að þeir, sem eru úti um hinar dreifðu byggðir landsins, sern hafa túnin þýfð og líka ræktað land, nytu samræmilega góðs af framkvæmd hins opinbera í jarðræktarmálum á við aðra landsmenn, án þess að vera dregnir í sérdilk til forréttinda. Nú er stefnt að því að fá sem allra stórvirkust jarðvinnslutæki, sem gefur nokkurt tilefni til bjartsýni í þessum efnum. Og fyrir mér er það grundvallaratriði í öllum þessum málum, að það verði sem allra örust þróunin í jarðræktarmálunum og að sem allra mest verði hægt að útvega af hentugustu jarðvinnslutækjum til útbýtingar eftir skynsamlegustu reglum, sem finnast, til búnaðarfélaga og búnaðarsambanda, hvar sem er um landið, fyrir góðan jarðveg og dugandi bónda, með jöfnum, samræmdum rétti fyrir alla þessa menn, þar sem enginn um allt landið verði settur hjá og enginn um allt Ísland njóti heldur sérstakra forréttinda.

Þó að ég sé, af ástæðum, sem ég hef greint, með því, að málinu að þessu sinni verði vísað frá með rökst. dagskrá, hef ég ekki skrifað undir nál. þess minni hl., sem það leggur til. Hv. annar minni hl. landbn. talar um í sínu nál., að 17. gr. jarðræktarl. þurfi að endurskoðast og bætir svo við, að koma þurfi í veg fyrir, að almannafé, sem varið er til ræktunarinnar, verði notað til þess að auðga einstaka menn og gera jarðirnar að braskvöru. Ég get tekið undir það með þeim, að ég vildi ekki stuðla að því að gera jarðir að braskvöru. En ég vildi hins vegar vinna að því, að jarðir verði gerðar yfirleitt sem allra eigulegastar. En þeir, sem leggja sig í brask og eru gróðamenn, vilja leggja sig eftir því, sem er einhvers virði. Og hvað sem um allt brask má segja, vildi ég gjarnan, að það, sem gert er í krafti jarðræktarl., yrði til þess að auðga sem allra flesta búendur í sveitabyggðum landsins, og ég vildi, að þeir allir yrðu ríkir. Þá hætti allur jarmur um uppbæturnar, af því að þeir væru allir orðnir forríkir, vegna þess, hve jörðin er góð og mild til ræktunar. Og þau efni, sem íslenzkir bændur hafa nú hlotið á þessum peningatímum, því að þeir hafa losað sig af skuldaklafanum, eru ekki meiri en svo, að ef gerði harðindaár, er ég hræddur um, að ekki yrði lengi að fara kúfurinn af því. Og hamingjan forði Íslendingum frá því að fara inn á nýjar kreppuráðstafanir. Ég er óhræddari við auðsöfnun bænda en kreppuráðstafanir. Þær er ég hræddur við. En það er eðlilegt, að hæstv. Alþ. vilji setja sínar skorður við því, hve mikið er veitt til jarðræktarframkvæmda og að það sé ekki meira en þarf. En sízt vil ég segja, að það sé óhentugt, að bændur auðgist af þessu. Þeir þyrftu að auðgast af þessu. Það skapar þeim manndóm, sjálfstæða lífsskoðun og öryggi allri framtíð Íslands, ef þeir auðgast af þessu, ekki til þess að verða braskarar, heldur sjálfstæðir menn á óðulum sínum, og það megi svo haldast með íslenzkum manndómi frá kyni til kyns. Þetta yrði heildinni fyrir beztu. En hugurinn er ekki meiri en svo allvíða hjá bændum, því er verr og miður, að þeir þurfa margháttaðrar örvunar við, til þess að finna öryggi fyrir sig á bújörðum sínum. Ég vildi, að þetta væri ekki rétt hjá mér, en ég er hræddur um, að svo sé. En þetta öryggi eykst ár frá ári, þegar þeir verða þess varir, hve hæstv. Alþ. verður með góðum skilningi við þörfum þeirra og þeirra viðleitni til að afla góðra tækja til þess að bæta jarðir sínar. Og er einn þáttur þeirra málefna það frv., sem hér liggur fyrir, sem, þó að ég vilji ekki, að það verði samþ. nú, er á sinn hátt góðra gjalda vert.

Ég mun, samkv. þessu, sem ég nú hef sagt, mæla með því, án þess að ég hafi gefið út sérstakt nál. um það, að frv. verði afgr. á þessu stigi með rökst. dagskrá, er feli það í sér, að málið þurfi víðtækari og betri undirbúning, svo að þau sérréttindi, sú sérstaða, sem á að skapa með samþykkt þessa frv., ef að l. yrði, komi ekki í l. án frekari athugunar. Ég hygg, að það sé ekki búið að lesa það ofan í kjölinn, til hvers það kynni að leiða að samþ. frv. eins og það er.

Ef hæstv. ríkisstjórn kæmist að þeirri niðurstöðu, að svo mikið beri nú að leggja til jarðræktar sem frekast er unnt miðað við fjárhaginn, og ég þykist vita, að sú verði niðurstaðan, þá mundi það gleðja mig. Það er í trausti þess, að hæstv. ríkisstjórn, með aðstoð þessa ráðuneytis, sinni framkvæmdum þessum fyrir næsta þ., svo að leitt geti til sem beztrar niðurstöðu á víðtækum grundvelli, að ég fyrir mitt leyti vil, að frv. verði afgreitt með rökst. dagskrá. Ég vildi, áður en ég sezt niður, segja, að ég tel þá rökst. dagskrá, sem hér liggur fyrir frá hv. minni hl., á þann hátt, að ég gæti vel samþykkt hana, en ég vildi fyrir mitt leyti þó gjarnan, að orðalag dagskrárinnar af hálfu þessarar hv. d. í hendur hæstv. ríkisstjórnar væri dálítið meira örvandi til jákvæðra aðgerða en orðalag dagskrárinnar, sem fyrir liggur á þskj. 1194, en með tilliti til þess, að ég vildi gjarnan, að hún feldi í sér meira örvandi ákvæði, vildi ég leyfa mér að bera fram brtt. við hina rökst. dagskrá um, að hún verði þannig orðuð:

„Þar sem deildin telur, að breytingar þær, sem frv. gerir ráð fyrir á fyrirkomulagi jarðræktarmála, kunni að valda verulegri röskun á grundvelli þeim, sem jarðræktarlögin eru reist á, og gera framkvæmd þeirra ótrausta, og í trausti þess, að ríkisstjórnin undirbúi endurskoðun jarðræktarlaganna í samráði við Búnaðarfélag Íslands og nýbyggingarráð fyrir næsta reglulegt Alþingi og leggi síðan frv. fyrir þingið, þar sem miðað verði við sem öruggasta þróun íslenzkrar jarðræktar með þeim hætti, að góður jarðvegur og framtakssemi bændastéttarinnar fái sem bezt notið sín, álítur deildin ekki rétt að af greiða frv. á þessu þingi og tekur fyrir næsta mál á dagskrá.“

Ég vildi leyfa mér að afhenda hæstv. forseta þessa brtt. mína um orðalag dagskrárinnar.