23.02.1945
Efri deild: 135. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 197 í C-deild Alþingistíðinda. (2784)

129. mál, jarðræktarlög

Frsm. minni hl. (Páll Hermannsson):

Herra forseti. — Ég var að gera mér vonir um, að samnefndarmaður minn, hv. 2. þm. Árn., mundi máske rétta þessu frv. hjálparhönd. En nú hefur mér skilizt, að ekki þurfi að gera ráð fyrir því.

Hæstv. fjmrh. hefur minnzt á þetta mál, og hann hefur dregið í efa, að ríkissjóður hafi bolmagn til að taka á sig þær byrðar, sem fylgja því að samþ. þetta frv. Og eftir að hafa heyrt undirtektir þessara tveggja flokksbræðra, er ég nokkuð uggandi um afdrif frv. Ég býst því við, að langar umr. um málið hafi litla þýðingu, eins og raunar er um fleiri mál.

Út af því, sem hæstv. landbrh. sagði um kostnaðinn, sem er náttúrlega mikill, þá finnst mér hans afstaða sem fjmrh. skiljanleg. Ég skal játa, að ríkissjóður hefur í mörg horn að líta, og mér finnst því eðlilegt, að hæstv. landbrh. vildi gjarnan hafa hugmynd um það, hvernig hann fengi staðið við þær skuldbindingar, sem þarna eru lagðar á herðar ríkissjóðs. En þó ég skilji hann að þessu leyti, er ég honum ekki sammála, ef hann er á þeirri skoðun, að ríkissjóður gæti ekki innt þessi gjöld af höndum. Heldur er ég þeirrar skoðunar, að hann verði að gera það, af því að ég held, að landbúnaðurinn geymi að nokkru leyti lykilinn að heilsulind þjóðarinnar, bæði að því leyti, sem hann leggur þjóðinni til þá fæðu, sem hún má ekki án vera, og ekki síður vegna þess, að sveitalífið verður alltaf heilsulind allrar þjóðarinnar.

Að því er viðvíkur ummælum hv. 3. landsk. um þetta mál, bæði í nál. hans og hv. 7. landsk. og í umr., vildi ég gera örfáar athugasemdir.

Í nál. á þskj. 1194 er á það bent, að hv. Nd. hafi gerbreytt grundvelli frv. eins og hann var, þegar það var lagt fram, með því að ákveða, að ríkissjóður skuli kosta framræslu og vinnslu landsins í stað þess að greiða aukinn jarðabótastyrk, eins og frv. gerir ráð fyrir. Þetta virtist hv. Nd, og að þessari skoðun í þeirri hv. d. stóðu einkanlega, að því er mig minnir, eingöngu menn úr þeim flokkum, sem styðja núverandi hæstv. ríkisstjórn, og hefði maður getað búizt við, þegar ráðizt var í þessa fjárveitingu, að nokkur trygging hefði verið fengin fyrir því, að stuðningsflokkar hæstv. ríkisstjórnar í þessari hv. d. gætu fallizt á þessa breyt. Sérstaklega hefðu þeir menn, sem vildu framgang þessa máls, þurft að hafa kynnt sér þetta. En mér sýnist annað hafa orðið uppi á teningnum, og verð ég að segja, að mér þykir það mjög miður, að sá ráðandi meiri hl. í þinginu skuli ekki geta haft betra samræmi í sínum vinnubrögðum í svona stóru máli en það, að þar sem annar hlutinn leggur áherzlu á að verði í jákvæðu formi, einmitt það form verður til þess, að hin d. getur ekki samþ. frv.

Í nál. á þskj. 1194 er komizt svo að orði, að ef þessum grundvelli, sem áður var, sé gerbreytt, þá sé óhjákvæmilegt að taka jarðræktarlögin í heild til endurskoðunar eða a. m. k. setja ýtarlegt ákvæði í þau um það, hvernig þessum framkvæmdum ríkisins skuli hagað, en slíkt sé tæpast á færi þingnefndar, sem er önnum kafin við önnur störf.

Hv. 3. landsk. benti á, að l. um ræktunarsamþykktir og húsagerð í sveitum, sem hafa orðið til fyrir nokkrum vikum síðan, gengju út frá því, að jarðræktarlögunum yrði breytt á þennan hátt. Mun þetta vera alveg rétt. En ég held, að það þurfi ekki að standa í vegi fyrir framkvæmd þessara l. Þegar l. voru sett um jarðræktarsamþykktir, hafði verið gengið út frá öðru fyrirkomulagi á jarðræktarlögunum, og er það af því, að í þessu frv. er ekki neitt ákvæði um það, hvernig skuli framkvæma þau fyrirmæli, sem í því eru. Það er óbundið.

Hv. 3. landsk. talaði um, að það yrði að tryggja það, að fyrst yrðu unnin auðunnustu löndin, sem jafnframt hefðu markaðsskilyrði. Þar sem t. d. svo stendur á, að mjólk vantar sérstaklega, álít ég sjálfsagt að greiða fyrir því í frv. Heyrzt hefur um það, að upplýst hafi verið á búnaðarþingi núna nýlega, að vanti um 40% og þyrfti að fjölga kúm um 1/3 til að fullnægja þörfinni. Þessar kýr þyrftu ekki allar að vera þar, sem mjólkurmarkaður er, því að mikið af mjólkurafurðum mætti líka selja í unnu ástandi, svo sem smjör, skyr o. s. frv. Slíkt mætti gera víðar en þar, sem mjólkurmarkaður er.

Ég skal svo ekki orðlengja meira um þetta mál. Vildi ég mega vænta þess, að frv. yrði samþ. En ef svo færi, að það yrði ekki samþ., þá vildi ég a. m. k. vænta þess, að það yrði lagt vandað frv. um þetta mál fyrir næsta þing.

Hv. 3. landsk. sagði, að þess væri tæplega að vænta, að þm., sem hlaðnir eru fleiri störfum, geti leyst af hendi það verk, sem þarf til undirbúnings. Ég er honum ekki sammála um þetta. Mér finnst, að þingnefndir þær tvær, sem hafa haft þetta mál til meðferðar í hér um bil sex mánuði samfleytt, hefðu vel getað unnið nokkurt umbótaverk á þessu frv., ef þær hefðu viljað leggja verk í það. En það þýðir ekkert að ræða það atriði úr þessu. Annaðhvort verður frv. samþ. eins og það er eða það verður fellt eða vikið frá á einhvern annan hátt. En ég er ekki alveg viss um það, að næstu sex mánuðina, sem nú væntanlega líða þangað til þing kemur saman næst, verði miklu betra tækifæri til að athuga þetta mál, endurskoða það og gera sér grein fyrir því en jafnvel landbn. þingsins hefðu getað á öllum þessum langa þingtíma, ef þær hefðu tekið sér það fyrir hendur fyrir alvöru, en svo sker reynslan úr því.