23.02.1945
Efri deild: 135. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 199 í C-deild Alþingistíðinda. (2785)
129. mál, jarðræktarlög
Gísli Jónsson:
Herra forseti. — Það má sjálfsagt segja, að þetta sé eitt af stærstu málum, sem liggur fyrir þessu þingi, hvort sem miðað er við það fjármagn, sem til þess er ætlað til að framkvæma allar þær aðgerðir, sem frv. kveður á um, eða það gagn, sem það á að veita landsmönnum í framtíðinni. Mér þykir því rétt að láta málið ekki fara svo úr d., að ég lýsi ekki afstöðu minni til þess.
Ég sé, að þetta mál hefur farið í landbn, þessarar d. 8. janúar, og n. hefur afgr. 18. janúar nál., sem er svo útbýtt næsta dag. Síðan hefur ekki þótt tækifæri eða ástæður til að taka þetta mál til umr. allan þennan tíma, rúman mánuð. Ég verð að segja það, að mér finnst hvort tveggja, að annars vegar hafi hv. frsm. lítið rekið á eftir þessu máli og þá kannske ekki haft þann áhuga fyrir því, sem maður kynni að vænta, og hins vegar, að forseti hafi beitt óvenjulegri ósanngirni í að taka málið á dagskrá, sem ég hef ekki orðið var við með önnur mál. En ef svo lítill áhugi er fyrir þessu stórmáli, að sjálfir nm. hafa ekki getað þar neinu um þokað í meira en mánuð, þá er þess varla að vænta, að það verði afgr. á stuttri stundu, jafnumfangsmikið og það er.
Ég minnist þess, að á þinginu 1943 bar hv. þm. Str. fram mikinn lagabálk um breyt. á jarðræktarl., sem fór að nokkru leyti í sömu átt. Ég lýsti þá yfir fylgi mínu við það frv. í grundvallaratriðum. Ég held, að búnaðarþing og Búnaðarfélag Íslands hafi fengið þetta frv. til meðferðar og jafnvel mþn. í búnaðarmálum. Út úr því hefur svo komið það frv., sem hér er borið fram af hv. þm. Mýr. o. fl., en þetta frv. er í rauninni allt annað mál, og það lakasta er það, að það er eins og þeir, sem hafa haft það til meðferðar, hafi ekki komizt að fastri niðurstöðu um, hvað ætti að gera við þetta stórmál. Mér virðist, að sumir af þessum mönnum hefðu átt að vita betur, þar sem í landbn. Nd. eru sumir sömu mennirnir og fjölluðu um málið á búnaðarþingi. Þetta finnst mér mikill galli á málinu sjálfu, auk þess sem það er vitað, að það er ekki nema einn liður í að reisa við landbúnaðinn á Íslandi, sem sé ræktunin, því að þar eru aðrir liðir, sem eru eins þýðingarmiklir eða jafnvel enn þýðingarmeiri. Ég get ekki hugsað mér, hvernig menn geta hugsað sér að láta rækta 600 hesta tún á jörðum eins og t. d. á Rauðasandi, þar sem möguleikar eru til að hafa tugi þúsunda hesta af grasi með litlum ræktunarkostnaði, en á sama tíma er ekki hægt að koma þangað nokkurri vél, nema þá ef fengin væri herflugvél til að flytja þær þangað. Það er ekki lítið atriði, að samhliða því, sem jörðinni er bylt um og landið ræktað, sé komið á sæmilegu vegasambandi. Það segir sig sjálft, að það er ekkert vit í að verja milljónatugum í að stækka túnin á jörðunum, ef það á fyrst að vera útilokað um langan tíma, að hægt sé að koma þangað vélum, og þar næst að unnt sé að koma þaðan nokkrum afurðum. Þetta er einn liður í málinu, sem verður að leysast, eða þá að láta það standa til langframa, að þessu fé verði aðeins varið í þær jarðir, sem áður hafa fengið þau fríðindi að fá vegasamband og aðstöðu til að selja sínar afurðir. En það er að bæta gráu ofan á svart að veita kannske meira en helming þessa fjár til að stækka túnin þar, en láta hina vera afskekkta áfram, slitna út úr vegasambandi og án allra möguleika til að geta selt afurðir sínar. Mér þætti því vænt um, að hv. frsm. vildi athuga þetta og virða mér til vorkunnar, þó að ég geti ekki fellt mig við frv. eins og það er, eftir að hafa heyrt þessa afstöðu mína. Mér finnst þetta fara í gagnstæða átt við það, sem fram kom hjá hv. þm. S.-Þ., því að mér virtist hann leggja mikla áherzlu á, að þetta frv. tryggði fyrst og fremst, að haldið yrði uppi dreifbýli í landinu og hlynnt að því. Mér finnst þetta frv. vinna gagnstætt því, mér finnst það vera spor í áttina til að færa byggðina saman, því að þar er útilokað, að hin fjarlægari býli geti á nokkurn hátt notið þeirra fríðinda, sem frv. gerir ráð fyrir. Og ef það er rétt skilið hjá mér, og ég ætla að ganga út frá því, þangað til mér er bent á annað, þá get ég ekki fylgt þeirri stefnu, því að ég er sammála hv. þm. S.-Þ., að ég met miklu meira en fé sumt af þeim þjóðlegu verðmætum, sem enn þá eru geymd í dreifbýlinu, og dreifbýlið er einmitt líklegasti staðurinn í þessu landi til að geyma þau verðmæti í framtíðinni. Kemur þar margt til greina, og skal ég ekki fara út í það nú, en eftir að ég hef kynnt mér það sérstaklega, hef ég ákveðið að fylgja hverri þeirri krónu, sem veitt er til dreifbýlisins, fylgja því, að það sé gert, af því að ég álít, að því fé sé vel varið, sem fer til að halda uppi þeirri menningu, sem er svo mikils verð, að ég er fullviss um, að það mundi gerbreyta íslenzku lífi, ef hún væri þurrkuð út, en ég sé ekki, að þessar till., sem hér koma fram, séu nokkuð nema stórt spor í þá átt að þurrka hana út, því að það er vitanlegt, að það getur enginn maður látið þau býli njóta þessara kjara, sem enn þá eru svo einangruð, að ekki er hægt að koma þangað nokkurri vél nema skóflu og spaða.
Ég vil í sambandi við þetta einnig benda á, að það er engan veginn nægilegt að tryggja ræktunina, þó að þjóðin gæti greitt 60 milljónir til að koma henni í það horf, sem hér er gert ráð fyrir, ef það er ekki tryggt um leið, að þessari ræktun verði haldið við. Það, sem mér finnst meginatriði í málinu, er að tryggja, að býlin komist í vegasamband, fái rafmagn og markaði fyrir sínar afurðir og viðunandi húsakynni til að búa í. Þetta tel ég frumskilyrðið til að hægt sé að fleygja stórkostlegu fé í ræktunina, því að ef þetta frumskilyrði er ekki fyrir hendi, þá er nákvæmlega sama, hvað mikið er ræktað, því að hvað mikið sem hægt er að slá og hvað mikið sem hægt er að starfa með vélum, þá geta menn ekki haldizt við búskap á þessum jörðum, nema þeir séu settir í lífvænlegt samband við annað atvinnulíf landsins.
Þá tel ég það einnig stórkostlegan ágalla á þessu frv., að þar skuli ekki vera beinlínis tryggt, á hvern hátt skuli greiða það fé, sem ætla þarf til þessara framkvæmda, því að það segir sig sjálft, að þótt sagt sé, að þetta skuli gert, þá er það ekki nóg, ef ekki er á sama tíma fullkomlega tryggt, að hægt sé að veita nægilegt fé til framkvæmdanna árlega, því að annars verður á næsta þingi eða því þingi, sem telur þess þörf, að breyta þessum l. þannig, að þau skuli ekki koma til framkvæmda fyrr en ríkissjóður hefur ráð á að leggja nóg fé til framkvæmdanna.
Þá þykir mér einnig vanta næg ákvæði um það í þessu frv., hvernig skuli fara með það verðmæti, sem ríkissjóður hér á þátt í að skapa, og hefur hv. 3. landsk. nokkuð komið inn á það. Mér finnst alveg ótækt, að það séu engin ákvæði um það í l., hver skuli í framtíðinni vera eigandi að þeim 60 millj. kr., sem hér er ráðgert að leggja í þessar framkvæmdir. Ég tel ekki undir neinum kringumstæðum réttlátt að setja t. d. 30 þús. kr. í einhverja ákveðna jörð, sem liggur nærri markaðsstað, ef það er gert á kostnað þeirra, sem enn þá verða að bíða einangraðir úti á landi, og svo skyldu einhverjir einstaklingar verða þess aðnjótandi á þann hátt, að þeir seldu jörðina með þeim umbótum, sem gerðar hefðu verið fyrir þessar 30 þúsundir, og fengju þannig allt féð í sínar hendur. Mér fyndist þetta alveg óverjandi, og ég tel, að þessa hlið málsins verði að taka til athugunar, ef á að vera hægt að ætlast til þess, að þm. samþ. 60 millj. kr. útgjöld, án þess að tryggt sé, að einhverjir vissir menn geti ekki fengið þetta fé á kostnað annarra.
Þá kom hv. þm. Str. hér með upplýsingar, sem mér finnst vera svo athyglisverðar, að ef þær eru réttar, þá er ekkert vit í þessum framkvæmdum. Hann fullyrti, að nú á síðustu árum hefði það verið svo, að stærstu býlin, þar sem væru vel ræktuð tún og unnið á véltæku landi með fullkomnustu vélum, þau gæfu af sér langminnstan arð hlutfallslega. Ef þetta er byggt á nokkurri reynslu, þá vaknar sú spurning, hvort það sé nokkur vitglóra að taka aðra eins byrði á ríkissjóð eins og gera á með þessu frv., ef að l. verður. Ég veit ekki, hvort þetta er rétt, ég á erfitt með að trúa því, en þetta er að vísu frá manni, sem ekki er fyrir löngu kominn úr sæti landbrh. og hefur löngum stært sig af því, að hann þekkti landbúnaðarmálin bezt hér á þingi. Ef hann hefur fullar sannanir fyrir því, að þar, sem mest hefur verið ræktað, þar séu afkomuskilyrðin lökust nú á tímum, þá er ekki glæsilegt að samþ. frv. eins og þetta.
Ég vil einnig leyfa mér að benda á, að eftir því sem ég bezt veit, munu verða nokkuð hörð átök um það nú á búnaðarþingi, hvernig eigi að skipuleggja önnur mál landbúnaðarins, sem vitanlega geta haft miklu meiri þýðingu fyrir bændur en þetta mál, og er það ekki sagt til að halda fram, að þetta mál hafi ekki mikla þýðingu, en það er sumt í skipulagningu búrekstrarins. Ég hygg, að það sé rétt, að það séu orðin nokkuð hörð átök um það, sérhagsmunaátök um það, hvort ákveðnir bændur hér á landi eigi að fá beztu markaðina eins og Reykjavík til að selja kjöt og mjólk, en jafnframt að útiloka aðra, sem þó einnig eru bændur í landinu. Ég veit ekki, hvernig er hægt að hugsa sér að halda þeirri stefnu áfram, sem mér sýnist hafa verið fast sótt af þeim, sem fastast standa utan um þetta frv., að einangra að fullu ákveðna landshluta til að nota ákveðna markaði fyrir aðra landshluta, og þeir, sem búa í því Gósenlandi, eiga að fá aðgang að markaðinum, en aðrir eiga að svelta fyrir þá og fá ekki aðgang að því. Það hefur verið haldið þannig á þessum málum að undanförnu, að ríkissjóður hefur orðið að standa undir verðuppbótum á þeim vörum, ull, gærum og jafnvel kjöti, sem ekki hefur verið hægt að nota í landinu, á sama tíma og þjóðinni hefur verið haldið í mjólkursvelti og er haldið enn þá. Á þessu virðist ekki vera nokkurt skipulag, hvorki frá Búnaðarfélaginu né öðrum aðilum. Það virðist því tími til kominn að skipuleggja þessi mál ekki síður en sjálfa jarðræktina. Ég heyri sagt og hef það eftir blöðum hér, að nú sé verið að flytja inn fyrir milljónir smjör frá Ameríku handa landsmönnum í stað þess að skipuleggja þannig landbúnaðinn, að hægt sé að flytja það frá Norður-, Austur- og Vesturlandi, þeim stöðum, sem geta ekki komið mjólkinni frá sér á mjólkurmarkað. Auk þess er öllum ljóst, að hér er leyfð svo mikil hrossarækt, að hún er að eta upp landið og það svo, að Alþ. hefur þótt ástæða til að taka þar í taumana og samþ. l. um ítölu. Þetta hefur líka orðið til þess að eyðileggja fyrir bændum möguleika til að selja gott dilkakjöt, því að markaðurinn er fylltur á haustin með óætu eða lítt ætu hrossakjöti, sem er selt fyrir minna verð og bolar þar með burt einhverri beztu fæðutegundinni, sem til er í þessu landi. Þetta er ekki gert fyrir alþjóð, heldur fyrir skipulagsleysi og í eiginhagsmunaskyni einstakra manna, sem þykir þægilegra að láta 4050 bikkjur ganga á klakanum, en hugsa ekki um að skapa sér aðstöðu til að búa með nýtízku sniði og á þann hátt, sem hollast er fyrir íslenzku þjóðina. Allt þetta eru atriði, sem vert er að taka til athugunar fyrir bændur og eru ekki síður mikíls verð en fara að veita stórfé í aukna ræktun eins og hér er um að ræða. — Þá er það einnig atriði, sem vert er að minnast á, að nú er þjóðinni haldið í svelti vegna kartöfluleysis. Hér vantar enn þá tilfinnanlega garðávexti. Það er órannsakað mál, hvort ekki mætti með betra skipulagi á þessum hlutum öllum hjálpa bændum heldur en að ausa svo og svo mörgum milljónum að órannsökuðu máli í ræktun, sem mundi skapa mikla óánægju, ef farið væri eftir því, sem þetta frv. ákveður.
Ég vil út af því, sem hv. þm. S-Þ. minntist á tvö atriði, leyfa mér að benda á hvernig hefur farið með framkvæmdir í Síberíu. Það sýnir bezt, hversu það er afar nauðsynlegt, að þetta stórmál sé rannsakað gaumgæfilega, áður en tekið er svona stórt spor. Ég hygg, að allir séu sammála um, að það sé engum manni til sóma að hafa komið nálægt þeim verkum. Það eru ekki til svo bjartsýnir menn í Búnaðarfélaginu, á búnaðarþingi eða nokkurs staðar annars staðar, sem gera sér nokkurn tíma von um, að það verði að gagni, sem þar hefur verið gert. Það væri sorglegt, ef svo og svo mikið af því fé, sem ætlað er til þessara framkvæmda, væri látið jafnóhugsað í einn og annan stað á landinu.
Út af því, sem hann sagði um Korpúlfsstaði, þá vil ég leyfa mér að benda á, að hann veit vel, af hverju þessi mikla jörð er nú komin eins og hún er komin. (JJ: Nei, nei). Það er fyrst og fremst fyrir hreina og beina ofsókn frá Framsfl. Þessi jörð var þannig komin, að sá, sem þar bjó, var fyrsti bóndinn á Íslandi, sem hafði gengið svo langt, að hann hafði fengið sér vélar til að hreinsa mjólkina heima. Það var vitað, að ekki var sótt eins mikið eftir mjólk nokkurs framleiðanda og hans, svo viðurkennd var hans framleiðsla fyrir gæði. Þá kom Framsfl. með mjólkurlögin. Hann kom með sérstakan skatt á kýr hér í nágrenni bæjarins, mér er tjáð allt upp í 200 kr. á kú. Það má nærri geta, hvað þungur þessi skattur hefur verið á þetta bú. Stærsta og fullkomnasta bú landsins varð að leggja niður fyrir ofsókn frá framsóknarmönnum. Síðan hefur sömu stefnu verið haldið áfram gagnvart öllum bændum vestan Mosfellsheiðar, þeir hafa orðið að greiða þennan þunga skatt, sem afurðasölul. lögðu á þá. Það varð til þess, að þeir urðu að hrökklast frá jörðum sínum. Þetta er ástæðan til þess, að gera varð þetta mikla og velræktaða tún að hrossabeit, eins og hv. þm. S-Þ. lýsti svo sorglega hér áðan. Það verður því, ef á að samþ. þetta frv., að setja ákvæði til að fyrirbyggja, að svona verði farið með jarðirnar, þegar búið er að rækta þær sumpart fyrir ríkisfé og sumpart fyrir dugnað einstakra manna. (BBen: Það er bezt að gera það með því að láta Framsókn ekki komast til valda aftur. — JJ: Ekki ræður hún yfir Reykjavíkurbæ). Mér fannst það koma úr hörðustu átt, þegar hann fór að tala um, að þetta mikla tún væri nú haft til hrossabeitar, því að það var fyrir aðgerðir hans flokks. (JJ: Draumórar). Nei, hreinn veruleiki. (IngP: Ekki hefði Reykjavíkurbær þurft að beita túnið hestum þrátt fyrir það. — BBen: Hefur það ekki átt sér stað á Austfjörðum, að hestum væri beitt á tún? — IngP: Nei, svo lélegir bændur eru ekki á Austfjörðum, það er áreiðanlegt). Ég vil segja hv. þm. S-M. það, að þótt ég hefði mikla löngun til að fylgja þessu frv., þá treysti ég mér ekki til þess í því formi, sem það er. Og ef það færi samt sem áður í gegn, þá tel ég nauðsynlegt á næsta þingi að bera fram stórkostlegar breyt. við þau l. Eftir að hafa fengið þá skoðun, sé ég ekki annað réttara en að fylgja þeirri dagskrá, sem fram er komin um að fela ríkisstj. að undirbúa málið betur en gert hefur verið í stað þess að láta samþ. það nú og verða síðan að gera stórkostlegar breyt. á því á næsta þingi.
Ég vil leggja alveg sérstaklega áherzlu á, að ef þetta frv. er samþ. í meginatriðum eins og það liggur fyrir, þá tel ég, að það sé fyrsta og stærsta sporið til að færa byggðina saman, og það er hlutur, sem ég vil ekki gera. Ég tel einnig, að tryggja verði í frv. sjálfu, að fé sé fyrir hendi til að ljúka framkvæmdum, og til að skapa þeim stöðum, sem framkvæmdirnar fá, viðunandi möguleika til að koma frá sér ekki eingöngu þeim afurðum, sem nú eru framleiddar þar, heldur þeim afurðum, sem á að framleiða þar við að ríkið leggur svo og svo margar milljónir í framkvæmdir á þessum stöðum, því að án þess að það sé gert, verður þessi ræktun fjarstæða ein frá mínu sjónarmiði.