23.02.1945
Efri deild: 135. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 206 í C-deild Alþingistíðinda. (2787)

129. mál, jarðræktarlög

Frsm. minni hl. (Páll Hermannsson):

Ég ætla aðeins að gera stutta athugasemd út af ræðu hv. þm. Barð. Hann átaldi mig og nokkra aðra þm., sem hann taldi, að hefðu áhuga fyrir framgangi málsins, fyrir þann drátt, sem frv. hefur fengið. En ég tek þessar átölur ekki nærri mér, af því að mér finnst þær ekki vera á rökum byggðar. Það mun vera rétt, að minni hluti landbn. gaf út álit um málið 18. jan. s.l. Því var fljótlega útbýtt, en þessi tími hefur þó liðíð, þar til málið var tekið á dagskrá. Ég vil minna hv. þm. Barð. á, að ég hef hér í d. utan dagskrár vakið athygli hæstv. forseta á þessum drætti, auk þess hef ég oftar en einu sinni minnzt á þetta við forseta þar fyrir utan. Þótt þetta hafi dregizt, vil ég bera blak af forseta vegna þessa dráttar. Ástæðan fyrir þessum drætti er fyrst og fremst sú, að ekkert hefur heyrzt frá meiri hl. n. um málið fyrr en nú 21. febr. með útgáfu nál., sem var útbýtt á fundi í gær. Mér finnst mjög eðlilegt, að forseti hafi viljað bíða eftir þessu nál., þótt langlundargeð manna sé takmörkunum háð, einkum þegar líða tekur að þinglokum.

Í þessu nál. er mælzt til, að málinu sé vísað frá með rökstuddri dagskrá, sem mér skildist, að hv. þm. Barð. gæti hallazt að. Hv. þm. sagðist ekki geta fylgt frv. og taldi á því marga annmarka. Og mér skildist á honum, að ég ætti að svara fyrir eitthvað af þessum annmörkum. En það get ég ekki. Hann verður að ræða um það við flokksbróður sinn, hv. þm. A.-Húnv. Hann hefur ráðið mestu um það form, sem frv. er í nú.

Þetta er helzt að segja um þær breyt., sem orðið hafa á frv. og valdið hafa því, að hv. þm. telur sig ekki lengur geta fylgt því. Hins vegar vil ég benda á það, að eins og frv. var lagt fram, var það mjög í samræmi við frv. um breyt. á jarðræktarl., sem lá fyrir þingi 1943 og hv, þm. fylgdi. Neðri deild er búin að ákveða að hafa málið þannig og ekki öðruvísi, og við, sem fylgjum þessu máli, verðum að þiggja það heldur svona eða ekki neitt. Annars held ég, að frv. sé ekki eins slæmt og hv. þm. Barð. telur það. En ég get ekki borið ábyrgð á þeim breytingum, sem gerðar hafa verið á því. Um þær verður hv. þm. að tala við flokksmenn sína, aðallega þó hv. þm. A.-Húnv., sem mestu hefur ráðið um þann búning, sem frv. er í nú.