26.02.1945
Efri deild: 136. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 215 í C-deild Alþingistíðinda. (2816)
244. mál, vernd barna og ungmenna
Frsm. minni hl. (Steingrímur Aðalsteinsson):
Herra forseti. — Hv. meiri hl. allshn. hefur lagt til að frv. því, sem hér liggur fyrir, verði vísað frá með rökst. dagskrá, sem prentuð er hér í nál. hans á þskj. 1159. Aðalrökin, sem hv. meiri hl. færir fyrir þessari afstöðu sinni, og raunar einu rökin, sem af hálfu hv. meiri hl. hafa komið fram enn þá, eru þau, að málið sé ekki nægilega vel undirbúið, og leggur hann þess vegna til, að frv. verði vísað frá með þessari dagskrá sinni, og skírskotar til þess, að fyrir næsta þ. verði framkvæmdur nánari undirbúningur þessa máls og m. a., að fræðslumálastjóra og mþn. í skólamálum, sem nú er starfandi, verði gefinn kostur á því að leggja nokkuð til þessa undirbúnings.
Þar sem þetta eru meginrök hv. meiri hl., tel ég ástæðu til þess að gera nokkra grein fyrir því, hvernig háttað hefur verið undirbúningi þessa máls, þótt hæstv. menntmrh hafi að vísu sagt nokkur orð um það áður á fundi hér í hv. d.
Frv. þetta er samið upphaflega af 3ja manna n., sem til þess var kvödd af fyrrv. hæstv. ríkisstj.; skipuðu hana þessir menn: Gissur Bergsteinsson, dr. Símon Jóhann Ágústsson og Vilmundur Jónsson. Í grg., sem fylgdi frv. í upphafi, telur þessi n., að í frv. hafi verið sameinuð í eitt ákvæði barnaverndarl. frá 1932, sömuleiðis breyt., sem gerðar hafi verið á þeim l. 1933, og enn fremur ákvæðin í l. um ungmennadóm, sem gefin voru út sem brbl. 1941 og síðan staðfest af hv. Alþ. 1942. Enn fremur segir þessi n., að auk þess, sem ákvæði allra þessara l. hafi verið sameinuð í eitt, hafi þau einnig verið samræmd og gerð ýtarlegri; enn fremur, að tekinn hafi verið upp í frv. fjöldi nýmæla, sem byggð væru bæði á grundvelli þeirrar reynslu, sem fengin vaeri af barnaverndarl., sem sett voru fyrir meira en einum tug ára, og enn fremur, að frv. hafi verið samið með hliðsjón af erlendri löggjöf um þetta sama efni. Undirbúningur þeirrar n., sem samdi frv., virðist þannig strax hafa verið allýtarlegur. — Frv. var þannig fyrst flutt af hæstv. fyrrv. ríkisstj. í ársbyrjun 1943, þ, e. a. s. í lok hins reglulega þ. 1942, sem, eins og hv. þm. muna, stóð fram yfir árslokin. Málið var þá flutt í hv. Nd. og vísað til hv. allshn. þeirrar d. Í allshn. áttu þá sæti: Garðar Þorsteinsson, Gunnar Thoroddsen, Stefán Jóh. Stefánsson, Áki Jakobsson og Jörundur Brynjólfsson. Mælti sú n. eindregið með því, að frv. yrði samþ., og í nál. hennar tekur hún fram, — orðrétt tekið upp — að hún telji, að frv. sé á marga lund til mikilla bóta frá þeirri löggjöf, sem fram til þess tíma hafði gilt. Fékk þessi n. — eins og hún kallar — umsögn fróðustu manna um þessi mál, og hefði hún tekið upp í frv. till. frá þeim aðilum, er hún þannig hafði rætt við um málið, þ. á m. barnaverndarráð, sem n. ræddi þetta mál ýtarlega við, og gerði það till. um ýmsar breyt. á frv. Tók allshn. margar þeirra til greina og gerði að sínum brtt. við meðferð málsins í hv. Nd. þá. Einnig ræddi hún við þáv. dómsmrh., sem líka gerði ýmsar brtt., sem n. telur sig hafa tekið allar upp. Meðferð málsins í hv. Nd. virðist þannig einnig, eftir þann undirbúning, sem gerður hafði verið utan þings, hafa verið mjög ýtarleg á því stigi, sem málið var þá, og virðist n. hafa unnið ýtarlega að því að fá fram álit þeirra, sem n. telur fróðasta menn í þessum efnum. Þær brtt., sem n. síðan flutti með þessum undirbúningi þar, voru þá allar samþ. í hv. Nd., en af því að þá var orðið áliðið þ., dagaði málið uppi að því sinni í þessari d., þ. e. a. s. hv. Ed. Á haustþ. 1943 tekur hv. heilbr.- og félmn. Nd. málið enn til athugunar og umr. og ræðir það þá við ýmsa aðila að nýju, þ. á m. dómn. ungmennadóms, barnaverndarráð og barnaverndarnefnd Reykjavíkur og þáverandi dómsmrh. Málið er þannig enn á ný tekið til allýtarlegrar umr. við alla þá aðila, sem mestar sýnast líkur til, að fróðastir væru um þessi mál, og þá, sem hafa tekið þátt í þeim störfum, sem barnaverndarlöggjöfin fjallar um. Síðan, eftir alla þessa meðferð, er málið flutt enn á ný á þessu þ. af hv. heilbr.- og félmn. Nd. og er þá flutt eins og hv. Nd. hafði gengið frá því áður árið 1943, að öðru leyti en því, að nú eru felld úr frv. ákvæðin um ungmennadóm. Er þetta vafalaust gert vegna þess, að sú reynsla, sem fengizt hafði af ungmennadómi, virðist benda í þá átt, að ekki sé heppilegt að halda þessari stofnun við, enda hafði fyrrverandi dómsmrh. þegar lagt þessa stofnun niður, og eru ákvæðin um ungmennadóm af þessum ástæðum felld nú úr frv., en að öðru leyti er það flutt eins og hv. Nd. hefur gengið frá því í ársbyrjun 1943. Mér virðist þess vegna, að það sé margítrekaður undirbúningur, sem fram hefur farið á flutningi þessa máls. Í fyrsta lagi er það samið af sérfræðingum um þessi efni, þeirri n., sem í fyrstu samdi frv.; eftir það fær málið ýtarlega meðferð í n., og er leitað umsagnar hinna fróðustu manna, og flestar till. þeirra, sem þeir færðu þá fram til breyt. og umbóta á frv., teknar upp í það, og í þriðja lagi er önnur n., sem undirbýr málið að nýju til framhaldsflutnings og ræðir það enn við þá aðila, sem sérstaklega hafa annazt framkvæmd viðkomandi l. að undanförnu.
Mér virðist þess vegna, að þær aðalröksemdir, sem hv. meiri hl. allshn. færir gegn framgangi málsins, sem sé þær, að málið sé ekki nægilega undirbúið, hafi naumast við nein rök að styðjast og virðast tæplega fullnægjandi til þess að vísa málinu frá afgr., nema því aðeins, að önnur og mikilvægari rök komi hér fram við umr.
Að öðru leyti, varðandi efni frv., eins og það nú liggur fyrir, sé ég ekki ástæðu til þess að fara ýtarlega út í að rekja það í einstökum smáatriðum. Þetta er nokkuð langur lagabálkur, og hv. þm. verða að sjálfsögðu að kynna sér málið með því að lesa frv., en ég mun þó drepa aðeins á nokkur stærstu atriðin í frv.
Í fyrsta lagi er það, sem mestu máli skiptir, hvað vernd barna og ungmenna tekur yfir, en um það er rætt í 1. gr. frv. Er þar fyrst upp talið almennt eftirlit með aðbúð og uppeldi á heimili; í öðru lagi eftirlit með hegðun og háttsemi utan heimilis, síðan ráðstöfun í vist, í fóstur, til kjörforeldra eða á sérstakar uppeldisstofnanir, eftirlit með uppeldisstofnunum og eftirlit með börnum og ungmennum, líkamlega, andlega eða siðferðislega miður sín, heilsu- og vinnuvernd, eftirlit með skemmtunum og loks fræðslu- og leiðbeiningastarfsemi varðandi uppeldismál. — Þetta eru meginþættirnir, sem vernd barna og ungmenna á að ná yfir, og síðan eru ýmiss konar nánari skilgreiningar í hinum ýmsu öðrum gr. frv. Framkvæmdir til verndar börnum og ungmennum eiga að rækja samkv. l. þessum: barnaverndarnefndir og barnaverndarráð. — Barnaverndarn. skal vera í hverjum kaupstað landsins og kosin af viðkomandi bæjarstj. og til sama tíma og bæjarstjórnir. Í Reykjavík á barnaverndarn. að vera skipuð 7 mönnum, en í öðrum kaupstöðum 5 mönnum, og er gert ráð fyrir því, að utan kaupstaða verði það skólanefndir, sem eiga að gegna hlutverki barnaverndarn. og hafa að því leyti réttindi hennar og skyldur, þ. e. a. s. hafa á hendi barnavernd samkv. l. Þó er heimild til þess, ef viðkomandi staður óskar eftir því, að einnig þar sé kosin sérstök barnaverndarn., og skal hún þá kosin af viðkomandi hreppsn. Þetta er viðvíkjandi barnaverndarn. og samsetningu þeirra; en sá annar aðilinn, sem hefur á hendi framkvæmd l., er barnaverndarráð. Barnaverndarráð skal skipað af ráðh. til 4 ára í senn, og í því eiga að vera 3 menn. Einn skal skipaður eftir till. Prestafélags Íslands, annar samkvæmt tillögu Sambands íslenzkra barnakennara, en hinn þriðja skipar ráðherra án tilnefningar, og skal hann vera formaður ráðsins. Barnaverndarráð á að hafa með höndum yfirumsjón með störfum barnaverndarn. í kaupstöðum og annars staðar á landinu, þar sem þær eru starfandi. Almennt eftirlit á að vera með börnum og ungmennum til 16 ára aldurs, en eins og kunnugt er, öðlast ungmenni sjálfsforræði samkv. l. nr. 60 1917, er þau ná 16 ára aldri, og þess vegna, eftir að hætt hefur verið við þá skipan, sem sett var á með l. um ungmennadóm 1941 — eftir að sú skipun hefur verið felld niður — þá er ekki eðlilegt, að barnaverndarn. geti haft svo óskorað vald til ráðstöfunar á ungmennum, sem náð hafa sjálfsforræðis aldri, nema því aðeins, að viðkomandi ungmenni séu svipt sjálfsforræði sínu með dómi. Þess vegna er gert ráð fyrir því, að þetta almenna eftirlit nái til 16 ára aldurs, en að vísu er þó ætlazt til þess, að barnaverndarn. og barnaverndarráð leitist við eftir þörfum og getu að hafa uppeldisleg eða leiðbeinandi áhrif á ungmenni allt til 18 ára aldurs, en réttinn til ráðstöfunar yfir þeim hafa þessir aðilar ekki nema til 16 ára aldurs, en eftir þann tíma aðeins með samþ. viðkomandi aðila til þess að ráðstafa ungmennum t. d. á hæli eða uppeldisstofnun. Annars nær vald barnaverndarn. og barnaverndarráðs til þess að geta jafnvel ráðstafað barni af heimili, ef sérstök ástæða þykir til.
Í frv. sjálfu er auk þessa gert ráð fyrir, að rekið verði hæli fyrir vandræðabörn, en þessu var breytt í Nd. og gert að heimild, en í samræmi við önnur ákvæði, þá liggur í hlutarins eðli, að ekki er hægt að framkvæma þetta, svo að í lagi sé, nema að til séu slík hæli fyrir börn, sem ekki er hægt að vista á annan hátt.
Þá er og gert ráð fyrir því í frv., að Reykjavíkurbæ verði lögð sú skylda á herðar að starfrækja heimili fyrir vandræðabörn og börn, sem taka þarf af heimilum, á sinn kostnað, en að öðru leyti er ætlazt til, að sett verði á stofn almenn heimili fyrir þau börn, sem þurfa á því að halda.
Þetta eru helztu atriði frv., en það tæki of langan tíma að rekja öll atriði þess. Það er skoðun mín, að þetta mál sé svo mjög áríðandi, að því verði ekki frestað, og á meðan ekki koma fram önnur rök en þau, að málið sé ekki nægilega undirbúið, þá ætla ég, að fjöldi mála hafi verið afgr. verr undirbúinn. Ég legg því til, að dagskrártill. hv. meiri hl. verði felld.