22.11.1944
Neðri deild: 80. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 229 í C-deild Alþingistíðinda. (2826)

145. mál, iðnaðarnám

Frsm. meiri hl. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti. — Eins og segir á þskj. 506, leggur meiri hl. iðnn. til, að þetta frv. verði samþ. óbreytt. Á fundi voru aðeins 4 nm., en hv. 11. landsk. hefur ekki skilað áliti, og mun mega telja hann vera á móti frv., a. m. k. óbreyttu. Ég skal svo ekki fara um þetta fleiri orðum. Málið er ofur einfalt og óbrotið, og kemur fram í nál. álit meiri hl., sem leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt.