02.12.1944
Neðri deild: 85. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 237 í C-deild Alþingistíðinda. (2845)
145. mál, iðnaðarnám
Samgmrh. (Emil Jónsson):
Ég hygg, að í þessu gæti allmikils misskilnings. Þeir halda því fram, að þetta sé gert sökum þess, að menn séu á móti því, að hver og einn fái að velja sér ævistarf að eigin geðþótta. En þetta er ákaflega mikill misskilningur, því að þær hömlur, sem í þessum málum eru settar á iðnaðarnám, eru fyrst og fremst settar til þess að þeir, sem út í þetta fara og nám stunda, fái notið þess til fulls, fái lært það. Það þýðir ekkert að senda nemanda á skóla — við skulum taka það almennt — nema það sé einhver til að kenna honum. Og það þýðir ekkert að senda nemanda á skóla, ef ekki er til húsrúm fyrir hann, ef engin tæki eða möguleikar eru til að kenna honum það, sem hann á að læra. Þetta hefur orðið til þess, að það hefur orðið að takmarka nemendafjölda í mörgum skólum fyrir utan iðnfræðsluna. En þær takmarkanir, sem í iðnlöggjöfinni hafa verið settar um það, hve marga nemendur megi á hverjum stað taka til náms, eru fyrst og fremst miðaðar við það, að þeir, sem teknir eru til kennslu, fái þá kennslu og þann aðbúnað, að þeir njóti kennslunnar til fulls. — Iðnfræðslan gengur fyrir sig hjá okkur öðruvísi en aðrar námsgreinar. Þegar menn ætla að vera iðnaðarmenn, tekur ríkið ekki þátt í því nema að mjög litlu leyti. Iðnfræðslan getur verið á tvennan hátt, svo kölluð skólakennsla annars vegar og svo kölluð starfskennsla hins vegar. Þar, sem skólakennsla er í iðnaði, er hún venjulega á þann hátt, að ríkið — eða stofnanir einhverjar, oftast ríkið — setur á stofn skóla, sem kennir viðkomandi iðngreinar í skóla, og er þá venjulega ekki takmarkaður neitt aðgangur að kennslunni að öðru leyti en því, sem húsrúm og kennslukraftar gera. Hins vegar er það ekki svo hér, að ríkið sjái um þessa starfskennslu, heldur einstaklingar, eða svo kallaðir meistarar. Þeir taka menn til náms af tveimur ástæðum. Bæði til þess að viðhalda fagmönnum í stéttinni og til þess að hjálpa sér á verkstæðinu. Þessi kennsla er talin betri og hagkvæmari heldur en skólakennslan. En þegar kennslan fer fram á þennan hátt, að meistari tekur nemanda á verkstæði til náms, þá verður nemandinn að ganga með iðnaðarmanni til starfa, fylgja honum eftir og læra af honum handbrögðin og njóta hans persónulegu tilsagnar meðan á náminu stendur. — Venjulega taka menn ekki nema einn nemanda til náms í einu. Og það var álitin góð og gild regla, að einn nemandi kæmi á hvern meistara. En eftir að meistarar tóku stærri verk, tóku þeir sveina til vinnu, og þá færðist kennslan að meira og minna leyti yfir á sveinana. Og þá yfirfærðist reglan þannig, að hæfilegt var talið fyrir einn svein að hafa einn nemanda til kennslu, og mátti ekki meira vera. Nú hefur það verið lagt til grundvallar á síðustu tímum í iðnnámslöggjöfinni, að þetta hefur verið bundið við það, að meistari mætti ekki hafa fleiri iðnnema heldur en faglærða menn, sveina og meistara, til vinnu. Þetta er lagt til með frv., sem fyrir liggur, að numið verði alveg úr gildi, en engar takmarkanir verði settar fyrir því, hversu margir nemendur megi vera hjá meistara. Ég held, að þetta sé ekki rétt stefna að nema allar takmarkanir um þetta úr gildi. Því að það hefur sýnt sig, að það yrði herfilega misnotað. — Hv. þm. Vestm. las áðan upp úr þskj. 548, þar sem kom í ljós, að til eru í járniðnaðinum fyrirtæki, sem hafa 10 nemendur í vinnu, en aðeins einn svein. Hvernig halda menn, að kennslan sé á þessu verkstæði? Vélsmiðjur eða járnsmiðjur hafa vinnu í mörgum mismunandi stöðum, og þessi eini sveinn, sem til er í fyrirtækinu, getur ekki verið nema á einum stað og kannske með einn nemanda með sér, ef hann getur þá verið með nokkurn. En hvar eiga hinir nemendurnir að vera á meðan, og hvar eiga þeir að læra? — Hjá öðru fyrirtæki eru hér taldir yfir 20 nemendur, en ekki nema 4 eða 5 fullgildir járnsmiðir, sem geti veitt þeim tilsögn. Það er á vitund allra, bæði þeirra, sem þetta snertir, og annarra, að þessi hlutföll fá ekki staðizt, ef um nokkra eðlilega kennslu á að vera að ræða.
Að hafa engar hömlur í þessu sambandi, álít ég ekki koma til greina, því að ég álít, að þessi dæmi sýni bezt og sanni, að það geti leitt til öfga á hinn bóginn.
Ég viðurkenni hins vegar fúslega, að þetta er vandamál, sem þarf mikillar athugunar við og skilnings frá beggja hálfu, til þess að á þessu fáist einhver skynsamleg lausn.
Það mun nú vera svo, bæði í járniðnaði og í öðrum iðnaði, að ákveða tölu nema þannig, að það er miðað við þá sveinatölu, sem á þeim tíma er á viðkomandi stað, eins og löggjöfin segir fyrir um. Og ég hef ekki ástæðu til þess að ætla, að þrátt fyrir þetta misræmi, sem á sér stað, þá sé yfirleitt sú heildartala, þó að annað komi fram í þessu skjali, mjög svipuð þeirri sveinatölu, sem hér er í heild í bænum. Ég hygg, að samanlögð tala nema í járniðnaði sé mjög svipuð þeirri sveinatölu í heild, sem til er í bænum. Hins vegar flytjast þeir til á milli staða, sem erfitt er að gera við, og það er af því, sem getur skapazt það óheilbrigða fyrirkomulag, að það hafa orðið 10 nemar á móti einum sveini til að kenna þeim, sem er auðvitað alveg ófullnægjandi.
Hv. frsm. sagði, að þannig hefði lífið sjálft tekið öðrum tökum á málinu heldur en löggjöfin. Þetta er náttúrlega ekki rétt nema að nokkru leyti, því að starfandi eru nú iðnfulltrúar, sem eiga að sjá um og hafa fullkomið eftirlit með því, að ákvæðum þessarar löggjafar sé fylgt. Svo að ef misræmi á sér stað eða löggjöfin er brotin, þá er það a. m. k. að einhverju leyti af því, að þess hefur ekki verið gætt sem skyldi, að þeim ákvæðum væri fylgt.
Þróunin hefur að vísu orðið miklu örari í þessum málum en nokkurn óraði fyrir. Iðnnematalan hér í Reykjavík mun vera 660, eftir því sem mér er sagt. Þannig að ætla mætti, að viðkoman væri allt að því nægileg. A. m. k. er hún svo mikil, að sá skóli, sem hér er til þess að kenna hinar bóklegu greinar námsins, rúmar ekki alla þá nemendur, og hefur orðið að fara með þá í húsnæði úti um bæinn og kennslan fyrir það orðið miklu erfiðari.
En það, sem ég vildi aðallega og fyrst og fremst um þetta segja, er það, að sú takmörkun, sem er í löggjöfinni um iðnaðarnám, er fyrst og fremst gerð til þess að tryggja þeim nemendum, sem í námið fara, fullkomið og gott nám. Því að hvorki nemendur sjálfir né þjóðin í heild er bættari með mönnum í iðngreinum, ef engin skilyrði eru til þess að kenna þeim það, sem þeir eiga að læra. Þótt það þyki skerðing á mannréttindum, eins og hv. þm. Vestm. orðaði það, að leyfa ekki ótakmarkaða tölu nema í iðngreinum, þá verður að sjá til þess, að nemendur fái fullkomna kennslu, eins og til er ætlazt, en það takmarkast af þeim fjölda faglærðra manna, sem þar eru fyrir hendi.
Hv. þm. Vestm. minntist á kaup iðnnema og taldi, að kauphækkun gæti valdið fyrirstöðu hjá meisturum til þess að taka nema til náms. Ég álít, að ekki sé hætt við því. Því að mér hafa borizt frá iðnfulltrúum, sem hafa sent með þessu frv. umsögn sína, bréf, þar sem þeir skýra frá því, að yfirleitt séu iðnnemar hér svo illa launaðir, að þeir áliti það nauðsyn og telji sig, eftir núgildandi l., mega grípa þar í taumana og þeir muni upp úr næstu áramótum koma inn fleiri reglum en nú eru í l. um það, hvernig nemum þessum skuli greitt kaup. Áður var það svo hér, að iðnnemar fengu, meðan þeir voru við nám, frítt fæði, húsnæði og einn fatnað á ári fyrir utan vinnuföt. Nú telja iðnfulltrúar, að laun iðnnema séu miklu lægri en þessu nemur, jafnvel þótt þeim sé reiknað kaup í iðnskólastundunum eins og hv. þm. Vestm. sagði. Kaupið er borgað með öðrum hætti; það er borgað sem tímakaup. En áður var það borgað með fæði, húsnæði og fötum, sem sagt, piltunum var gert fært að lifa án kaupgreiðslu. En að dómi iðnfulltrúa virðist það ekki vera eins auðvelt fyrir nema að lifa við þau kjör, sem þeir nú hafa, eins og áður var hægt.
Ég er alls ekki að telja eftir, þó að veita þyrfti fé til iðnskólastækkunar eða iðnskólabyggingar út af fyrir sig, en ég hefði viljað, að möguleikar væru fyrir hendi með kennslu í skólanum, áður en fleiri nemendur væru teknir, og ég álít, að það þurfi að athuga það, hvaða möguleikar séu til þess.
Hér eru á þskj. 548 umsagnir frá Alþýðusambandi Íslands, Iðnnemasambandi Íslands, Meistarafélagi járniðnaðarmanna og iðnfulltrúum. Þessar umsagnir eru á ýmsan veg, og mæla sumar með frv. og aðrar á móti frv. og sumar ekki nema að nokkru leyti. En eitt er sameiginlegt hjá öllum þessum fjórum aðilum, sem er eftirtektarvert, að þeir leggja allir til, að iðnlöggjöfin verði endurskoðuð. Alþýðusamband Íslands segir í niðurlagi álits þess, er það sendir til iðnn. Nd. Alþ., með leyfi hæstv. forseta: „Viljum vér lýsa því áliti voru, að æskilegt væri, að lög um iðnaðarnám yrðu tekin til rækilegrar endurskoðunar.“
Iðnnemasamband Íslands segir í sínu bréfi: „Leggjum vér því til, að báðar þessar umræddu breytingar verði felldar, en iðnnámslöggjöfin í heild verði tekin til endurskoðunar með hagsmuni þjóðarheildarinnar fyrir augum, en ekki nokkurra atvinnurekenda, eins og flm. þessa frv. hefur orðið á.“
Meistarafélag járniðnaðarmanna segir, að það telji, að frv. sé góð byrjun á lagfæringum, sem það telji, að iðnlöggjöfin þyrfti að fá. Þar með benda þeir á, að meira þurfi við. Loks eru það iðnfulltrúarnir. Þeir hafa fyrir nokkru mætt á fundi með iðnn. Alþ., og létu þeir í té í frumvarpsformi ásamt grg. nokkrar brtt. við iðnnámsl., og var ein þeirra samhlj. 1. gr. frv. á þskj. 363. Allir þessir aðilar, sem hafa verið hér kvaddir til umsagna um málið, telja, að endurskoðun þurfi að fara fram á iðnskólalöggjöfinni.
Lög um iðnskóla voru sett fyrst árið 1927 og hefur verið breytt nokkrum sinnum síðan. Þetta er vitaskuld frumsmíð, þar sem þetta var nýtt atvinnusvið og líka alveg nýtt með þjóðinni, þegar löggjöfin var sett, og er ekkert undarlegt við það, þótt reynslan hafi síðar kennt, að á löggjöfinni þurfi að gera ýmsar breytingar.
Ég fyrir mitt leyti tel það sjálfsagt, að það verði farið að óskum þessara aðila; löggjöfin í heild, bæði einstök atriði, sem er um að ræða, og önnur verði tekin til rækilegrar og ýtarlegrar athugunar og meðferðar.
Hv. minni hl. iðnn. hefur lagt til, að frv. verði vísað til ríkisstj. Ég fyrir mitt leyti get lýst því hér yfir, að ef það verður úr að vísa frv. til ríkisstj., og reyndar hvort sem er, þá mun ég reyna að sjá um það, að þessi löggjöf verði tekin fyrir til gagngerðrar endurskoðunar svo fljótt sem unnt er, og niðurstaða af þeim athugunum verði í frumvarpsformi lögð fyrir hæstv. Alþ., þegar sú athugun hefur farið fram. Þetta vildi ég láta koma fram vegna tilefnis frá hv. frsm., þar sem hann virðist álíta það, að ef frv. væri vísað til ríkisstj., þá mundi það vera sama og að leggja málið á hilluna. En ég tel mig geta lofað honum því, að það verði leitað till. allra eða flestra þeirra málsaðila, sem hér eiga hlut að máli, bæði þeirra, sem eru með hans frv. og móti, og reynt að vinna þannig að og úr, að endum verði náð saman. Þetta verður að gera með samkomulagi; það er varla unnt með öðru móti.
Ég hefði óskað eftir því, ef þeir sæju sér það fært, frsm., að þessari lagasetningu, sem hér liggur fyrir, yrði þá frestað, þangað til þessi athugun hefur farið fram. Ég teldi það betra heldur en að setja einhliða ákvæði eins og þetta, sem vitað er, að ef sett verður, jafnvel þótt eftirlits iðnfulltrúa gæti framvegis eins og hingað til, þó að frv. verði samþ., þá óttast ég, að það muni torvelda samkomulagið um þá endurskoðun, sem ég tel vera nauðsyn og mér virðist allir aðilar vera sammála um að þurfi að fara fram.