05.12.1944
Neðri deild: 87. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1220 í B-deild Alþingistíðinda. (2847)
153. mál, hafnarbótasjóður
Samgmrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Ég vil, út af þessu máli, taka það fram, að hv. sjútvn. hefur rætt við mig um þessa till., og er ég henni fullkomlega samþ. Ég tel, að með þessu megi greiða fyrir hafnargerðum, án þess að hinn upphaflegi tilgangur sjóðsins sé skertur. Hér er einungis um lán til skamms tíma að ræða. Mér er kunnugt um, hve mörg sveitarfélög eiga erfitt með að standa undir hafnargerðum, ef ríkissjóður getur ekki hjálpað. Ég tel því, að með þessari till. sé fundið nýtt og nauðsynlegt verkefni fyrir hafnarbótasjóð, án þess að hans upphaflegi tilgangur sé að nokkru leyti skertur. Ég undirstrika, að hér er ekki um neina fjárveitingu eða styrk að ræða. Ég veit, að hreppsfélög hafa átt erfitt með að útvega sér lán, jafnvel þótt ríkissjóður standi að baki með væntanlegum lánum úr honum, en ég tel, að þetta sé að nokkru leyti leyst með till. sjútvn., því að það ætti að mega tryggja það, að þetta fé verði endurgreitt eins og ákveðið er. Háttv. þm. N.-Ísf. fann þessu það til foráttu, að hér væri verið að binda fjárveitingarvaldið fyrir fram með eindæmi fjmrh., en í frv. segir svo:
„Til þess að flýta aðkallandi hafnarbótum á þeim stöðum, sem hafizt er handa um framkvæmdir, og framlög úr ríkissjóði samkvæmt fjárlögum að hverju sinni hrökkva ekki til að greiða að þeim hluta, sem ákveðið er í hafnarlögum viðkomandi staða, er ríkisstjórninni heimilt að leggja fram úr hafnarbótasjóði viðbótarframlag, jafnóðum og verkinu miðar áfram, þó aldrei hærra en svo, að framlagið í heild nemi þeirri hlutfallsupphæð af verkkostnaði, er hafnarlög staðarins ákveða.
Framlög, sem þannig eru greidd úr hafnarbótasjóði, skulu endurgreidd honum úr ríkissjóði á næstu þrem árum.“
Gangur málsins er þá sá, að fjvn. fyrst og Alþingi síðar samþykkja að leggja fram fé í þessum tilgangi. Ef til vill er þá ekki hægt að standa straum af verkinu í bili, og þá hjálpar hafnarbótasjóður. Þá var minnzt hér á vexti og með hvaða kjörum lán skyldu veitt úr sjóðnum. Ég tel, að reglur sjóðsins hljóti að fara eftir því, sem ég nú hef lýst, og því tel ég, að sjóðurinn eigi, að lána féð vaxtalaust þennan ákveðna tíma. Ég hygg því, að með þessu sé unnt að hjálpa fleiri aðilum en frv. gerði upphaflega ráð fyrir, án þess að dragá þyrfti úr framlögum, sem ákveðin voru upphaflega.
Háttv. 2. þm. S.-M. hefur borið fram brtt., og er enginn munur annar en sá, að í þeirri brtt. er gert ráð fyrir, að framlög eða lán íu. sjóðnum skuli veitt eftir fyrir fram ákvæðum Alþingis. Ég er ekki á því, að þessi till. sé til bóta, og legg því til, að till. sjútvn. verði samþ. óbreytt.
Tilgangur þessa hafnarbótasjóðs er sá, ef ég man rétt, að styrkja þær hafnir, sem við erfið skilyrði eiga að búa, og þarf þessi starfsemi á engan hátt að torvelda það, að þessum tilgangi sé náð.