05.12.1944
Neðri deild: 87. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1221 í B-deild Alþingistíðinda. (2855)
153. mál, hafnarbótasjóður
Sigurður Bjarnason:
Herra forseti. — Ég hefði gjarnan kosið að geta vesið sammála hæstv. samgmrh. um gagnsemi þessarar ráðstöfunar, en ég get því miður hvorki átt samleið með honum né nefndinni. Hæstv. ráðh. sagði, að með till. sjútvn. væri eigi verið að skerða réttindi sjóðsins eða veita fé úr honum. Þá sagði hæstv. ráðh. nokkru síðar, að sjóðurinn ætti að lána fé vaxtalaust. Ég verð að segja, að ef þessum sjóði er ætlað að lána fé vaxtalaust, þá sé hann að verja fé af fjáreign sinni. Og þótt hann fái kannske ekki vexti núna, tel ég, að svo þurfi eigi að verða framvegis. — Ég vil þess vegna halda fast við að óska þess, að hv. d. samþ. þá rökstuddu dagskrá, sem ég hef borið fram og ég álít, að verði til bjargar þessum sjóði, í þeim þjóðnýta tilgangi, sem liggur til grundvallar með stofnun hans.