03.03.1944
Sameinað þing: 25. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 247 í C-deild Alþingistíðinda. (2876)

4. mál, fjárlög 1945

fjmrh. (Björn Ólafsson):

Þingstörfum verður nú brátt lokið og þingi frestað, án þess að umræður fari fram um fjárlög, eins og tíðkazt hefur. Munu þær umræður að líkindum ekki verða teknar upp fyrr en á haustþingi. Af þessum sökum hef ég talið mér skylt að gefa Alþingi sérstakt yfirlit utan dagskrár um afkomu ríkissjóðs á síðasta ári, svo að þingmenn geti glöggvað sig á, hvernig fjármálum ríkisins er nú háttað.

Eins og bráðabirgðaskýrsla sú ber með sér, sem lögð er hér fram á þinginu í dag, hefur afkoma ríkisins verið sæmileg á síðasta ári, þar sem tekjuafgangur er talinn 16409 þús. kr. Þær tölur, sem hér eru birtar, eru settar fram með fyrirvara um, að þær geti breytzt að einhverju leyti, þegar gengið er til fullnustu frá ríkisreikningi.

Ég skal þá gera grein fyrir einstökum liðum í bráðabirgðayfirliti um tekjur og gjöld ríkissjóðs, eftir því, sem ástæða þykir til.

Tekjurnar á árinu hafa orðið samtals 109542 þús. kr., og er það 43790 þús. hærra en áætlað var í fjárl. Hér er að vísu verðlækkunarskattur tekinn með, en fyrir honum var ekki ráð gert í tekjuáætlun fjárlaganna. Þetta eru mestu tekjur, sem íslenzka ríkið hefur haft á einu ári. Til samanburðar má geta þess, að tekjurnar þrjú ár uæstu á undan voru sem hér segir:

1942 kr. 86736 þús. kr.

1941 — 50382 — —

1940 — 27311 — —

Um einstaka tekjuliði er þetta að segja:

1. Tekju-, eignar- og stríðsgróðaskattur voru áætlaðir 23 millj. kr. samtals, en þeir verða 28181 þús. eða 5181 þús. umfram áætlun. Undanfarin 3 ár námu þessir skattar:

1942 kr. 20470 þús. kr.

1941 — 10804 — —

1940 — 2625 — —

2. Tollar hafa farið mikið fram úr áætlun. Vörumagnstollur var áætlaður 6 millj., en varð 8949 þús. Verðtollurinn var áætlaður 21500 þús., en varð 33871 þús. Umframtekjur á þessum tveimur liðum eru samtals 15320 þús. Undanfarin þrjú ár voru þessir tollar svo sem hér segir:

1942 1941 1940

Vörumagnstollur 9420 þús. 6995 þús. 6310 þús.

Verðtollur 39384 — 16699 — 6422 —

Sést á þessu, að verðtollurinn, sem er stærsti einstakur tekjuliður fjárlaganna, hefur lækkað frá árinu áður um 5292 þús. Lækkun þessi stafar af því, að minna var flutt inn af ýmsum hátolluðum vörum, vegna þess að erfiðleikar hafa farið vaxandi í því að fá slíkar vörur, svo sem vefnaðarvörur, og að dregið hefur verið úr innflutningi ónauðsynlegs varnings vegna skorts á farkosti.

Verður ekki annað séð en að tekjur af verðtolli muni halda áfram að lækka á þessu ári, og kem ég að því síðar.

Hins vegar stendur vörumagnstollurinn í stað, enda er þessi tollur miklu traustari tekjuliður en verðtollurinn.

3. Verðlækkunarskatturinn, sem reyndist 6281 þús. í stað 7 millj., eins og gert var ráð fyrir þegar hann var settur á, hefur verið talinn í tekjum umfram fjárlög. Fjárlögin gera ekki ráð fyrir þessum skatti, og honum er ætlað að bera sérstök útgjöld, sem fjárlögin gera ekki heldur ráð fyrir og því ekki rétt að telja þennan skatt í umframtekjum. Eins og kunnugt er, var skattinum ætlað að standa undir útgjöldum samkv. l. nr. 42 1943 um dýrtíðarráðstafanir. Útgjöld samkv. þessum l. eru samtals um kr. 9075 þús., og skortir því 2800 þús. kr. á, að skatturinn standi undir útgjöldum.

4. Ríkisstofnanir eru nú stór liður í tekjum ríkissjóðs. Er að vísu aðallega um tvær stofnanir að ræða, sem verulegar tekjur gefa, áfengisverzlunina og tóbakseinkasöluna. Í fjárlögum er áætlað að tekjur af ríkisstofnunum verði 7761 þús., en tekjurnar urðu samtals 22006 þús. eða 14245 þús. umfram áætlun.

Tekjur áfengisverzlunarinnar eru 16250 þús., eða 12750 þús. kr. umfram áætlun. Verð á áfengi var hækkað í miðjum septembermánuði um 50%, og stafar hinn mikli hagnaður verzlunarinnar að sjálfsögðu að verulegu leyti af því. Sama er að segja um tóbakseinkasöluna, sem skilar um einni milljón umfram áætlun. Verð á tóbaksvörum var hækkað í september. Aðrar stofnanir, sem skila hagnaði, eru: ríkisútvarpið og viðtækjaverzlunin 904 þús., ríkisprentsmiðjan 250 þús. Hins vegar eru tekjur af landssímanum 738 þús. kr. minni en áætlað var.

Þá eru ótaldir nokkrir smærri tekjuliðir, sem fara fram úr áætlun, og eru þessir helztir:

Stimpilgjald ………… 641 þús. umfram fjárlög

Innlendar tollvörur …. 372 — — —

Erfðafjárskattur …….. 193 — — —

Bifreiðaskattur ……… 178 — — —

Veitingaskattur ……… 105 — — —

Aukatekjur ………….. 82 — — —

Nokkrir smáliðir hafa ekki náð þeim tekjum, sem gert er ráð fyrir í fjárlögum. Er sá halli samtals rúmlega hálf millj. kr. Er stærsti liðurinn fasteignaskattur, og vantar þar 244 þús. kr. upp á áætlun.

Að öðru leyti vísast til heildarskýrslu um tekjur ríkissjóðs.

Ég skal þá í stuttu máli gera grein fyrir helztu umframgreiðslum, sem orðið hafa á síðasta ári á ýmsum greinum fjárlaganna.

(Samkvæmt yfirlitinu námu heildargjöldin á árinu 93.1 millj. kr., og er það 31.9 millj. umfram áætlun fjárlaganna).

Alþingiskostnaður og yfirskoðun ríkisreiknings. Þessi liður hefur farið 300 þús. fram úr áætlun. Sá kostnaður, sem færður er á árið 1943, nemur 854 þús. kr. og er fyrir þingstörf 15. til 21. apríl og 1. sept. til 17. des., eða alls 115 daga. Kostnaður á dag verður ca. kr. 7426.00.

Árið áður var kostnaður við þinghaldið talinn 1478 þús. kr., og var það fyrir þingstörf í 182 daga á því ári og 105 daga fyrri hluta ársins 1943, eða alls 287 daga. Kostnaður í dag verður ca. kr. 5150.00. Þegar tekið er tillit til meðalvísitölu hvort árið verður dagskostnaður nokkru hærri á árinu 1943.

Kostnaður stjórnarráðsins hefur farið 200 þús. kr. fram úr áætlun. Er hér um að ræða hækkun á ýmsum kostnaði. Í þessu er og innifalin breyting, sem gerð var á stjórnarráðshúsinu í sambandi við herbergjaskipun og hitalögn. Gert er ráð fyrir, að þessi fjárhæð lækki eitthvað vegna endurfærslu á aðra liði.

Til hagstofunnar hafa verið greiddar 54 þús. kr. og til utanríkisþjónustunnar 90 þús. kr. umfram áætlun.

Dómgæzla og lögreglustjórn: Skrifstofukostnaður tollstjóra, lögmanns og sakadómara hefur farið 300 þús. kr. fram úr áætlun. Skiptist það þannig á embættin:

Lögreglustjóri …………………………….. 126 þús. kr.

Tollstjóri ………………………………….. 101 — —

Sakadómari ……………………………….. 37 — —

Lögmaður …………………………………. 36 — —

Toll- og löggæzla 80 þús., saka- og lögreglumál 70 þús., löggildingarstofan 39 þús. kr. Stærsti liðurinn á þessari grein er landhelgisgæzlan. Í fjárlögum er áætlað 1250 þús., en liðurinn hefur farið 1800 þús. fram úr áætlun.

Vegna skattstofu Reykjavíkur og skattanefnda eru umframgreiðslur 248 þús. kr.

Í þessum lið hefur burðargjald og símakostnaður orðið 58 þús. kr. undir áætlun.

Samgöngumál. Umframgreiðslur eru á vegamálum og strandferðum ríkissjóðs.

Til viðhalds og endurbóta þjóðvega hefur af hálfu ríkissjóðs verið varið samtals á árinu 5100 þús. En herstjórnin hefur lagt fram aðra eins fjárhæð til viðhalds veganna, svo að raunverulega hefur til viðhaldsins verið varið yfir 10 millj. kr. Viðhaldið hefur farið 1800 þús. kr. fram úr áætlun fjárlaganna. Til nýrra akvega 60 þús. kr. og til brúargerða 98 þús. kr. Samtals eru umframgreiðslurnar á vegmálum taldar 2041 þús. á móti 4224 þús. árið áður.

Samkvæmt loforði, sem gefið var í sambandi við afgreiðslu fjárlaganna fyrir 1943, hefur það fé, sem veitt var, en ekki notað, verið lagt til hliðar og geymt, og skiptist það svo sem hér segir:

1. Til nýrra akvega 1222 þús. kr.

2. — þjóðvega af bensínskatti 214 — —

3. — brúargerða 694 — —

____________________

Alls 2130 þús. kr.

Þetta er samkvæmt uppgjöf vegamálastjóra.

Kostnaður við strandferðir hefur farið 1818 þús. kr. fram úr áætlun. Þessi umframgreiðsla er nokkuð minni en árið áður, en þá var hún 2672 þús. kr. Þótt ekki sé þess að vænta, að strandferðirnar séu reknar hallalaust eins og sakir standa, þá lítur ríkisstjórnin svo á, að ekki sé fært að reka þær með svo miklum halla sem verið hefur undanfarið og hefur því gert ráðstafanir til að rekstrarafkoman megi breytast eitthvað til batnaðar.

Kirkju- og kennslumál. Fjárhæðin er samtals 422 þús. Af því hefur verið greitt til háskólans 127 þús. kr: Aðrir æðri skólar 103 þús., barnaskólar 80 þús. og húsmæðrafræðsla samkvæmt lögum 112 þús. kr.

Vísindi, bókmenntir og listir. Fjárhæðin á þessum lið er aðeins 47 þús. og skiptist svo: Opinber söfn 30 þús., vísindamenn, skáld og listamenn 17 þús. kr.

Til verklegra fyrirtækja. Stærsti liðurinn á þessari grein er mæðiveikivarnirnar, sem fara 650 þús. kr. frarn úr áætlun. Svo er jarðabótastyrkurinn 90 þús. og nokkrir smærri liðir. Nokkrir smáliðir á þessari grein eru undir áætlun. Af fjárveitingunni 500 þús. til framleiðslubóta og atvinnuaukningar hefur verið notað 50 þús. og verður væntanlega notað 50 þús. í viðbót.

Almenn styrktarstarfsemi. Það eru alþýðutryggingar 590 þús. kr., sem stafar aðallega af almennri iðgjaldahækkun sjúkrasamlaga, meðlimafjölgun og hækkunum á framlagi ríkissjóðs samkvæmt lagabreytingum, gerðum á árinu.

Til nauðstaddra Íslendinga erlendis 10 þús. og sumardvöl barna 32 þús. kr.

Berklavarnir hafa kostað 155 þús. minna en áætlað var.

Óviss útgjöld. Verðlagsuppbótin hefur orðið miklu hærri en gert var ráð fyrir, og nemur það 1955 þús. Eins og kunnugt er, voru fjárlögin byggð á vísitölu 250, en meðalvísitala ársins var 256, auk þess var verðlagsuppbótin í fjárlögunum lauslega áætluð og hefur að sumu Ieyti reynzt hærri en gert var ráð fyrir.

Aðrar helztu greiðslur, sem komið hafa á þessa grein, má telja: Nefndakostnaður 188 þús. kr. Starfandi hefur verið fjöldi nefnda (yfir 50 að tölu) um ýmis málefni. Mörg þessara nefndastarfa hafa orðið æði dýr. Vilja menn oft fá mikið fé fyrir lítið starf. Er mikil nauðsyn, að settar væru fastar reglur um slíkar greiðslur og nefndunum fækkað. Enn fremur má telja: Gengistap á erlendri víxilskuld 239 þús., málskostnaður og skaðabætur 102 þús. og yfirfærslukostnaður 55 þús. og ýmsir smærri liðir.

Heimildir handa ríkisstjórninni. Þær heimildir, sem notaðar hafa verið á árinu, nema samtals 308 þús., auk greiðslu vegna sjómannaskóla 500 þús. Þessir liðir eru helztir: Byggingarstyrkur til Gagnfræðaskólans í Reykjavík 50 þús. Til sauðfjárræktarbús 50 þús. kr. Styrkur til bátakaupa handa útgerðarmönnum, sem misst hafa skip sín, 126 þús. Byggingarstyrkur listamanna 68 þús.

Sérstök lög. Hér er um óvenjulega háa fjárhæð að ræða, 19,7 millj., sem greidd er samkvæmt sérstökum lögum, alveg utan við sjálf fjárlögin. Stærstu liðirnir eru þessir:

Til verðlækkunar á kjöti ……………………. 7000 þús. kr.

— verðlækkunar á mjólk …………………… 2780 — —

— hafnarbótasjóðs ………………………….. 3000 — —

— alþýðutrygginga …………………………. 3000 — —

— fiskveiðasjóðs …………………………… 2000 — —

Sumir þessara liða hafa ekki verið greiddir enn þá og eru taldir með „geymdu fé“ hjá ríkissjóði.

Þingsályktanir. Útborgað 580 þús. kr. Hér er aðallega um að ræða verðuppbætur, er nema 500 þús. kr., á síldar- og fiskimjöli, sem selt var innanlands af framleiðslu ársins 1942. Á síðasta ári tók ríkissjóður ekki þátt í verðlækkun á þessum vörum.

Væntanleg fjáraukalög. Fjárhæðin er samtals 590 þús. kr. Helztu greiðslurnar eru: Til loftvarna 215 þús. kr., viðgerð á menntaskólum, Akureyri 80 þús., Reykjavík 37 þús., viðgerð á safnahúsinu 80 þús., bryggjugerð í Keflavík 30 þús., prestsseturshús í Reykjavík 30 þús., og nokkrir smærri liðir.

Þegar frá eru dregnar þær fjárhæðir, sem greiddar eru samkvæmt sérstökum heimildum, lögum eða þingsályktunum, þá verður eftir 11,2 millj., sem eru hinar raunverulegu umframgreiðslur, greiðslur, sem fara fram úr heimildum fjárlaganna. Af þessari fjárhæð eru rúmar 8 millj. á 4 greinum fjárlaganna, á þeim liðum, sem oftast fara fram úr áætlun, en þeir eru landhelgisgæzla, strandferðir og vegamál, en í þetta sinn bætist við verðlagsuppbót, eins og áður er frá skýrt. Allt eru þetta útgjöld, sem erfitt er að halda í skefjum samkvæmt áætlun.

Eignabreytingar. — Ég skal þá gera grein fyrir greiðsluyfirliti ársins, er sýnir eignabreytingar þær, sem orðið hafa.

Af yfirlitinu sést, að afborganir lána hafa orðið 3919 þús., en af því eru dönsk lán 673 þús., sem ekki hefur verið hægt að koma til réttra aðila og stendur því inni hjá ríkissjóði. Til greiðslu á lausaskuldum, sem þannig hafa safnazt, hafa verið keypt dönsk skuldabréf fyrir 1577 þús. kr., sem geymd verða fyrst um sinn.

Ríkisskuldirnar. — Skuldir ríkisins 31. des. 1942 eru taldar að vera 51012 þús. Samkvæmt bráðabirgðayfirliti 31. des. 1943 eru skuldirnar 63733 þús., eða 12721 þús. hærri. Þetta stafar eingöngu af því, að geymt fé, sem ríkissjóður er talinn skulda, er nú 15 millj. kr. hærra. Lán hafa engin verið tekin á árinu. Hins vegar hefur verið greitt lán í Ameríku, um 1680 þús. kr., og venjulegar afborganir af brezkum og innlendum lánum. Afborganir og vexti af lánum í Danmörku hefur ekki verið mögulegt að greiða, og hafa þessar fjárhæðir verið settar á „lausaskuldir“, og er að sjálfsögðu gert ráð fyrir að greiða þær strax og þess er kostur.

Ég skal geta þess, að þótt skuldir ríkisins séu nú taldar 63 millj. kr., þá þarf ríkissjóður ekki að bera alla þá fjárhæð. Bankarnir og síldarverksmiðjurnar skulda af þessu 7794 þús. kr. Bankavaxtabréf standa undir 7696 þús. kr. Þegar svo frá er dregið hið geymda fé, sem ríkissjóður hefur handbært, er hin raunverulega skuld, sem ríkissjóður verður nú að bera, 31272 þús. kr.

Getur það varla talizt þungur baggi, eins og nú standa sakir, og þótt minna hafi verið lagt til hliðar en skyldi af tekjum ófriðaráranna, þá eru þó nú til sjóðir í sérstökum reikningum, er nema tugum millj. á móti áður greindri skuld ríkisins. Kem ég að því síðar.

Geymt fé. — Ríkissjóði eru undir þessum lið taldar til skuldar ýmsar væntanlegar greiðslur, sem koma til útborgunar bráðlega. Þessar eru helztar:

Stríðsgróðaskattur ……………………………… 5439 þús.

Hafnarbótasjóður ……………………………….. 3000 —

Alþýðutryggingar ………………………………. 3000 —

Útflutningsgjald …………………….………...... 1046 —

Skemmtanaskattur …………………………….... 1242 —

Fiskimálasjóðsgjald …………………………….. 930 —

Eignaaukning ríkisins: — Rekstrarhagnaður ríkissjóðs fjögur síðustu ár er samtals 29284 þús., er sundurliðast þannig:

1940 …………………………………….. 5497 þús.

1941 …………………………………….. 5129 —

1942 …………………………………….. 2249 —

1943 …………………………………… ca. 16409 —

_______________________ 29284 þús.

Við þetta bætast sérstakar sjóðmyndanir,

sem færðar hafa verið út af rekstrarreikningi ………………… 24375 —

___________________

53659 þús.

Tekjuafgangur þessi kemur fram í aðaldráttum á þennan hátt:

1. Raforkusjóður ………………… 10000 þús.

2. Framkvæmdasjóður …………… 11375 —

3. Hafnarbótasjóður ……………… 3000 —

___________________ 24375 þús.

4. Afborganir lána ……………….……………………………. 8149 —

5. Eignaaukning ríkisstofnana og aukið

rekstrarfé þeirra …………………………………………… 15598 —

6. Aðrar eignir ………………………………………………… 5206 —

7. Aukning sjóðs og innstæða í banka ……………………….. 15790 —

______________________

69118 þús.

8. Frá þessu dregst geymt fé etc. ……………………………. 15459 —

______________________

53659 þús.

Af þessu yfirliti er ljóst, að nokkuð hefur verið lagt til hliðar af þeim miklu tekjum, sem ríkissjóði hafa fallið í skaut á undanförnum ófriðarárum. Af því, sem sparazt hefur og lagt í sérstaka sjóði og til er í handbæru fé, er sem hér segir:

1. Áður greindir sjóðir ………………………………………. 24375 þús.

2. Til alþýðutrygginga (hjá ríkissjóði) ………………………. 3000 —

3. Varasjóðsaukning ríkisstofnana ………………...………… 5000 —

Sjóðsaukning ríkisstofnana. — Þremur ríkisstofnunum hefur verið leyft að auka varasjóði sína á árinu með því að leggja fé til hliðar vegna væntanlegra húsbygginga. Áfengisverzlunin leggur 750 þús. kr. í húsbyggingu og áhaldasjóð, og er hann nú 1250 þús. kr. Tóbakseinkasalan leggur nú í fyrsta sinn til hliðar 500 þús. kr. í sama skyni. Enn fremur ríkisútvarpið 500 þús. kr. Öllum þessum stofnunum er nauðsyn að geta reist byggingar við sitt hæfi hið allra fyrsta, en úr slíkum framkvæmdum getur þó ekki orðið fyrr en stríðinu er lokið.

Verðlækkun innanlands með framlagi úr ríkissjóði. — Til þess að halda verðbólgunni í skefjum, hefur fé verið greitt úr ríkissjóði á árinu, er nemur 10480 þús., og hefur það gengið til þess að lækka verð á kjöti, mjólk og smjöri. Greiðslan sundurliðast þannig:

Kjöt (áætlað) ………………………………………… 7000 þús.

Mjólk ………………………………………………… 2780 —

Smjör (áætlað) ……………………………………….. 700 —

Núverandi framlag ríkissjóðs í þessu skyni er áætlað 10—12 millj. kr. yfir árið. Þótt þessum greiðslum sé enn haldið uppi, er með öllu óvíst, hversu lengi það verður gert. Ef sýnilegt þykir, að kaupgjald í landinu verði knúið upp, svo að verðlaginu verði ekki haldið í skefjum, þá er líklegt, að hætt verði að greiða niður dýrtíðina með framlagi úr ríkissjóði og verðbólgunni leyft að leita jafnvægis og stöðvunar á annan hátt. Árangur þess yrði samdráttur atvinnuveganna og minnkandi eftirspurn um vinnukraft og vörur, innlendar og erlendar. Það verður beizk lækning. En ef þjóðin vill ekki sjá kviksyndið, sem hún stefnir í, og lokar eyrunum fyrir öllum aðvörunum, getur enginn máttur forðað henni frá afleiðingum þeirrar háttsemi.

Verðbætur á útfluttar landbúnaðarvörur. Samkvæmt greiðsluyfirliti voru á árinu greiddar verðbætur á útfluttar landbúnaðarvörur af framleiðslu ársins 1942, er námu alls 16764 þús. Verðbætur þessar færast á reikning ársins 1942. Þær sundurliðast þannig:

Ull ……………………………………… 5678 þús.

Gærur …………………………………... 8773 þús.

Kjöt …………………………………….. 2313 þús.

________________

Samtals 16764 þús.

Verðbætur á útfluttar afurðir af framleiðslu ársins 1943 hafa engar verið greiddar enn og koma því til útborgunar á þessu ári, samkvæmt ákvörðun í fjárlögum 1944.

10% útflutningsgjald á fiski. — Þetta gjald var sett á útfluttan afla togaranna í ágústmánuði 1942, samkvæmt heimild í lögum nr. 98 frá 9. júlí 1941.

Í júnímánuði 1941 var lækkað fiskverð í Bretlandi, og varð þá ljóst, að margir togarar mundu ekki þola þetta háa útflutningsgjald. Var gjaldinu þá létt af, og hefur það ekki verið sett á aftur, þótt fiskverðið hafi aftur hækkað í Bretlandi. Verður að teljast óeðlilegt, að slíkur tollur sé lagður á afla togaranna, þegar rekstrarhagnaður útgerðarfélaganna fer að mjög verulegu leyti í ríkissjóð. Tekjur ríkissjóðs af þessu gjaldi á síðasta ári urðu 2350 þús. kr.

Sérstakt fyrningargjald framleiðslutækja. — Samkvæmt þingsályktun 6. desember síðastliðinn var ríkisstjórninni heimilað, í sambandi við álagningu skatta, að ákveða, að sérstakt fyrningargjald væri dregið frá tilteknum eignum, sem komið hefði verið á fót með styrjaldarverði. Þessar eignir voru nánar taldar: Fiskiskip og vélar í þau, fasteignir og vélar í sambandi við fiskveiðar og fiskiðnað, mjólkurvinnslustöðvar, sláturhús, kjötfrystihús og ullarverksmiðjur.

Að athuguðu máli var það ekki talið gerlegt að framkvæma þessa ályktun, nema upplýsingar lægju fyrir um það, hver áhrif þetta gæti haft á afkomu ríkissjóðs. Þess vegna auglýsti fjármálaráðuneytið eftir upplýsingum um, hvaða eignir hér kæmu til álita og hversu mikla fjárhæð hér var um að ræða. Þær upplýsingar, sem ráðuneytinu hafa borizt, eru á þá leið, sem hér segir, að því er snertir tegund eigna og verðmæti:

Núv. verð Hæfil. verð

1. Fiskiskip og vélar ………………………………… 15400 þús. 3800 þús.

2. Fasteignir og vélar í sam-

bandi við fiskveiðar og fiskiðna𠅅…………… 14700 — 4700 —

3. Kjötfrystihús ……………………………………… 176 — 42 —

4. Sláturhús ………………………………………….. 311 — 112 —

____________________________

30587 þús. 8654 þús.

Nauðsynleg afskrift talin …………………………………………… 2193 —

Það mat af afskriftum, sem hér er um rætt, er mat eigendanna sjálfra. Þær skýrslur, sem sendar hafa verið, eru ekki allar nákvæmar, og úr þeim hefur ekki verið unnið til hlítar. Þessar tölur eru því gefnar með fyrirvara. Eignir þær, sem þarfnast þessara afskrifta, eru um 50 skip og vélar og um 40 fasteignir í sambandi við fiskframleiðslu.

Líklegt er, að við nánari athugun mundi ekki talin þörf á allri þessari afskrift, en hins vegar má gera ráð fyrir, að eitthvað bætist enn við.

Ríkisstjórnin hefur ekki enn tekið afstöðu til þessa máls og ekki gert sér enn grein fyrir, hvernig eða hvort tiltækilegt væri að leyfa sérstakar afskriftir með hliðsjón af áhrifum þeirra á afkomu ríkissjóðs. En ég hef talið rétt að minnast á þetta hér, því að sú verðþensla, sem hér hefur átt sér stað í sambandi við framleiðslutækin, snertir ríkissjóðinn beint og óbeint.

Hvernig verður afkoman 1944? — Rúmlega tveir mánuðir eru liðnir síðan Alþingi samþykkti fjárlög fyrir yfirstandandi ár. En þótt ekki sé lengra liðið, er nú þegar útlit fyrir, að stærsti tekjuliður fjárlaganna muni hvergi nærri ná áætlun. Sá liður er verðtollur. Þegar fjárlög voru til umræðu, kom það í ljós, að hv. fjvn. vildi álíta, að þessi liður mundi á síðasta ári verða svipaður því, sem hann varð 1942, eða nálægt 40 millj. Þess vegna mundi óhætt að áætla þessar tekjur 30 millj. í fjárlögum 1944. Ég hélt því hins vegar fram, að þær mundu verða 32–33 millj. á árinu 1943 og þess vegna væri óverjandi bjartsýni að áætla þær 30 millj. í núgildandi fjárlögum. Verðtollurinn varð síðasta ár 33871 þús. kr., eins og áður er frá skýrt.

Ég varaði eindregið við því að gera ráð fyrir þeim miklu verðtollstekjum, sem settar voru í núgildandi fjárlög. Þessi tekjustofn er að bresta af þeirri einföldu ástæðu, að vörurnar, sem tollinn eiga að bera, eru ekki fáanlegar nema af skornum skammti. Því lengur sem stríðið stendur, því meiri þurrð verður í ýmsum vörugreinum. Þurrðin er mest í ýmsum vörum, sem bera háan verðtoll.

Þessi tollur komst hæst 1942 og var þá rúmar 39 millj. kr. Næsta ár, 1943, var hann 5 millj. kr. lægri. Á þessu ári verður lækkunin mun stórfelldari. Ég mundi ekki telja neinni furðu sæta, þótt verðtollstekjurnar á þessu ári yrðu ekki hærri en 20–25 millj. kr. Í janúar- og febrúarmánuði þessa árs eru þessar tekjur nálega helmingi lægri en á sama tíma í fyrra.

Að því er séð verður nú, er útlitið þannig, að gera verður ráð fyrir mjög verulegum greiðsluhalla í fjárlögum yfirstandandi árs. Fjárlögin voru afgreidd frá þinginu með greiðsluhalla, að vísu ekki miklum, en þar að auki var tekjuáætlunin óvarleg.

Sumir hv. þm. hafa opinberlega látið í ljós undrun sína yfir því, að ég skyldi taka við fjárlögunum eins og þingið gekk frá þeim, með jákvæði þessara hv. þingmanna. Ég er fyllilega sammála þessum hv. þingm. um það, að fjárlögin voru óvarlega samin, en mér skilst, að orsakar þess sé að leita hjá þinginu sjálfu og þess pólitísku erfiðleikum, því ekki veldur sá, er varir. Ef ég hefði neitað að taka við fjárlögunum, eins og málum var þá háttað, hefði það að líkindum aukið erfiðleika þingsins og skapað ástand, sem fáir hefðu talið æskilegt.

Eins og áður er frá skýrt, er gert ráð fyrir, að verðlækkunarframlag ríkissjóðs á þessu ári muni nema 10–12 millj. kr. Til þess að greiða þau útgjöld hefur Alþingi veitt stjórninni heimild, en ekkert fé.

Stjórnin hefur leitað fyrir sér hjá stjórnmálaflokkunum um lagaheimild til tekjuöflunar til þess að standast þessi útgjöld. Undirtektirnar hafa verið á þann veg, að ekkert samkomulag virðist mögulegt með flokkunum um heimildir í þessu skyni. Telur stjórnin því tilgangslaust að leggja fram frumvarp um þetta, eins og sakir standa. En með þeim greiðsluheimildum, sem hún hefur, telur hún sig hafa fullan rétt til að meta það, hvaða útgjöld fjárlaganna skuli mæta afgangi, ef þess verður freistað að halda verðbólgunni í skefjum á þann hátt, er verið hefur.

Vegna þeirra merkilegu tímamóta, sem þjóðin stendur á, telur ríkisstjórnin skyldu sína að verjast áföllum og forðast alla árekstra, meðan undirbúningur um stofnun lýðveldis fer fram og þar til því máli er komið heilu í höfn. Eftir þann tíma er líklegt, að meðferð knýjandi viðfangsefna verði ekki slegið á frest.

Ég hef áður lýst yfir því, að ég muni ekki stofna skuldir til þess að annast útgjöld fjárlaganna, ef tekjurnar hrökkva ekki fyrir þeim öllum. Ef að því kemur, er ekki annað fyrir hendi en að draga úr þeim útgjöldum, sem ekki snerta beinlínis nauðsynlegan og lögboðinn rekstur ríkisins. Aðra leið tel ég ekki fært að fara, ef skynsamlegt vit á að ráða, þegar tekjustofnar ríkisins bresta eða fjárlög eru samin af lítilli varúð.

Þótt nokkur tekjuafgangur hafi orðið á rekstri síðasta árs, þá er þess að gæta, að miklum hluta þess afgangs hefur þegar verið ráðstafað samkvæmt greiðsluyfirliti.