25.01.1945
Efri deild: 110. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1225 í B-deild Alþingistíðinda. (2883)
153. mál, hafnarbótasjóður
Frsm. meiri hl. (Gísli Jónsson):
Herra forseti. Sjútvn. hefur ekki getað orðið sammála um að leggja til, að frv. þetta yrði samþ. óbreytt. Meiri hl. n. hefur skilað nál. á þskj. 842 og lætur fylgja 2 fylgiskjöl, sem sýna, hvernig fara mundi um þennan sjóð í framtíðinni, ef þetta frv. yrði að lögum óbreytt og heimildir þess notaðar að fullu á hverjum tíma. Ég hygg, ef menn kynna sér þessi gögn, þá muni þeir fallast á, að þessi stefna er engan veginn holl í þessu máli. Enda mundu lögin ekki standa þannig óbreytt nema skamma stund. Á næsta þingi mundi verða gerð tilraun til að breyta l. eða afnema þau og sjóðurinn þannig látinn renna aftur inn í ríkissjóð. Það er sjáanlegt, að með þessari stefnu er algerlega gengið á snið við þá hugmynd, sem vakti fyrir flm. frv., þegar frv. var fyrst lagt fram á Alþ. Frv. var borið fram í Nd. á siðasta þingi af þeim Sigurði Bjarnasyni, Sigurði Kristjánssyni og Jóhanni Jósefssyni og var 45. mál. Með leyfi hæstv. forseta leyfi ég mér að lesa upp einn málslið frv. eins og hann var, þegar frv. var lagt fram. Þar stendur: „Skal styrkur úr sjóðnum veittur til viðbótar hinum almennu fjárframlögum til hafnargerða og lendingarbóta samkv. sérstökum hafnarlögum eða l. um lendingarbætur á einstökum stöðum.“ Af þessu er sjáanlegt, að það, sem vakti fyrir flm. og einnig mþn. í sjávarútvegsmálum, sem nokkuð ræddi þetta mál, var, að sjóðurinn sé fyrst og fremst stofnaður til þess að koma upp höfnum á þeim stöðum, þar sem góð skilyrði til útgerðar eru fyrir hendi, en viðkomandi hreppsfélög svo fátæk, að þau eru engan veginn fær um að greiða þann kostnaðarmismun, sem verður samkvæmt venjulegum l. um lendingarbætur og hafnargerð við að koma höfninni upp. Nú má segja, að síðasta Alþ. hafi ekki með öllu fallizt á þetta, þar sem það felldi þetta úr l. og lét standa, að ekki mætti veita fé úr sjóðnum fyrr en Alþ. hefði sett nánari ákvæði um það. En það er samt ekki þar með sagt, að það hafi vakað fyrir þm. að vísa á bug þessari meginstefnu frv., nema síður sé. Og það er áreiðanlegt, að það hefur aldrei vakað fyrir Alþ. og flm., að hægt væri að hirða sjóðinn svona, eins og nú er gert ráð fyrir, og fénu varið eingöngu til ákveðinna hafna. Ég hygg, ef þetta hefði komið strax fram í fyrra, að þá hefðu þessi l. aldrei farið út úr þinginu. Það má segja, að það sé Alþingis að breyta lögunum. En ég tel, að stefnt sé að svo varhugaverðri breytingu með þessu, að mönnum beri að athuga það gaumgæfilega áður en þeir greiða atkv.
Ég ætla að leyfa mér að benda á nokkur atriði, sem koma fram á fylgiskjali nr. 1. Þegar á fyrsta ári fjárlaga eftir að l. þessi væru samþ., árið 1946, væri Alþ. skyldugt að greiða inn í sjóðinn 1,1 millj. kr., miðað við, að ráðh. notaði heimildina að fullu. Þetta stigi síðan upp ár frá ári, og árið 1954 er þetta hvorki meira né minna en 2 millj. og 283 þús. kr., sem Alþ. er skuldbundið til að greiða inn í sjóðinn til að uppfylla ákvæði laganna. Það er ákveðið í l. nú, að aldrei megi lána meira en 2/3 af höfuðstóli sjóðsins. Ég hygg, að þegar þetta ákvæði var sett í l. í Nd., hafi vakað fyrir mönnum að lána 2/3 af hinum upprunalega höfuðstóli, sem er 3 millj., eða aldrei meira en 2 millj. kr. En ég vil leyfa mér að leiðrétta það, að höfuðstóll á hverjum tíma er ekki annað en það fé, sem fylgir sjóðnum að viðbættum útlánum. Höfuðstóll 1954 væri þá 6300000.00 kr., og má þá lána 2/3 af þeirri upphæð. Síðan hækkar þetta og verkar þannig, að með hverri lánveitingu er Alþ. fyrir fram bundið að endurgreiða í sjóðinn næstu 3 ár þá upphæð, sem veitt er. Það sjá allir, sem athuga þetta, hvað hér er á ferðinni, ef þeir bera þetta saman við það framlag, sem ríkissjóður hefur varið til hafnargerða á undanförnum árum, eins og fylgiskjal nr. 2 sýnir. Framlag ríkissjóðs til þessara mála var undir og yfir 300000.00 kr. á árunum 1936–41, en árið 1943 um 112 millj., 1944 rúmar 2 millj. og 1945 rúmar 3 millj. kr. Nú er það sagt, að þrátt fyrir hátt framlag í ár til þessara mála, þá þurfi enn meira fé í þessu skyni, og ætlunin er að taka það úr sjóðnum. Þess vegna er nú þetta frv. fram komið. En það er vanhugsað að samþ. það nú og binda ríkissjóði stórkostlegar byrðar fyrir komandi ár, það er verið að taka 3 ára víxil, sem ekkert er vitað um, hvort Alþ. getur greitt á þeim tíma. Og það er alveg vitað, að Alþ. getur það ekki nema skera niður fjárveitingar til annarra hafnarframkvæmda. Og þá rekur að því, að allar fjárveitingar til hafnarmannvirkja fari beint inn í hafnarbótasjóð, og síðan ræður viðkomandi ráðh., hvernig fénu er varið, Alþ. ræður þar engu um. Og það má geta nærri, hvert öngþveiti yrði í fjármálum landsins, ef einnig yrði þannig farið með brúafé, vegafé, símafé og annað, sem veitt væri til verklegra framkvæmda í landinu. Það væri þá hægt að láta hætta störfum fjvn. alla og stytta þingtímann um þann tíma, sem fer í að ræða fjárveitingar. En ég er ekki trúaður á, að menn yrðu á einu máli um, að sú tilhögun væri heppileg.
Ég get trúað því, að mér verði svarað, að engin hætta sé á því, að féð yrði notað eins og heimildin leyfir. Þá leyfi ég mér að benda á, að þess þekkist ekki nokkurt dæmi, að viðkomandi ráðuneyti noti ekki allt fé, sem heimilað hefur verið, nema einhverjar sérstakar ástæður komi til. Ég vil því til sönnunar benda á landsreikninginn; það hefur verið varið 300 þús. kr. til brúargerða, en þó er heimilað í fjárlagafrv. aðeins að ver ja 30 þús. kr. í því skyni. Og svona er það í flestum greinum, heimildirnar eru notaðar til hins ýtrasta. Ég vil taka það fram, að ég stefni þessari gagnrýni ekki að núverandi samgmrh., sá maður hefur margra ára reynslu í þessu starfi, og þess utan ber ég fullt traust til hans, að hann misnoti ekki þetta vald. En það er engan veginn æskilegt, að Alþ. semji lög með tilliti til þess, hvaða maður situr í þeirri stöðu á hverjum tíma, og breyti þeim, ef skipt er um mann. Sú stefna er algerlega röng, og ber því að athuga frv. með það fyrir augum, að ekki þurfi að breyta því strax á næsta þingi.
Mér er sagt, að þetta frv. sé í raun og veru fram komið vegna þess, að aðkallandi þörf sé að leggja meira fé í hafnargerð á Akranesi og Keflavík. Nú vil ég í sambandi við þetta spyrja hæstv. samgmrh., hvort hann hugsi sér að nota sjóðinn til þessara hafna og þá að hve miklu leyti á þessu ári, einnig hvort hann hugsi sér að nota hana til annarra hafna. Ég hef heyrt, að hugsað sé að nota eitthvað af þessu fé til hafnargerðar á Akureyri. Ef það er gert, þá er algerlega brotið í bága við fyrstu gr. l., nema henni verði breytt. Í 1. gr. l. er ákveðið, að féð skuli veitt til hafnargerðar á þeim stöðum, sem vel liggja til útgerðar og sjósóknar og framleiðslu sjávarafurða. Nú er svo með Akureyri, að hún uppfyllir ekki þessi skilyrði, þar sem hún meðal annars liggur langt frá fiskimiðum, og er því engin ástæða til að eyða í því augnamiði stórkostlegu fé í hafnargerð þar. Ég vildi benda á þetta, ef það er rétt, sem mér hefur borizt til eyrna, að minni hl. sjútvn. hafi léð máls á að beita sér fyrir því, að fé sé varið í hafnarframkvæmdir þar. Einnig er talað um, að einhverju af þessu fé skuli varið til hafnarframkvæmda á Norðfirði og einnig Hornafirði. Ég vildi gjarnan fá það upplýst, hvað hæstv. ráðh. hugsar sér að gera í þessum málum öllum á yfirstandandi ári, ef frv. verður samþ. óbreytt.
Að sinni mun ég ekki fara inn á till. minni hl., e.t.v. mun gefast tilefni til þess síðar, þegar frsm. hefur gert grein fyrir máli sínu. Læt ég þetta nægja að sinni og vona, að hæstv. samgmrh. gefi d. skýr svör í sambandi við þetta mál.