25.01.1945
Efri deild: 110. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1239 í B-deild Alþingistíðinda. (2892)
153. mál, hafnarbótasjóður
Jónas Jónsson:
Ég hef leyft mér að bera fram brtt. við þetta frv. í því skyni að reyna að miðla málum milli þeirra tveggja stórvelda, sem hér eigast við, sem er sessunautur minn, hv. þm. S.-M. (IngP), og hv. þm. Barð. (GJ), en þeir heyja hér harða styrjöld við ríkisstj. og ýmsa hennar fylgjendur. Það, sem mér finnst þessir menn hafa sterklega sér til stuðnings, er þetta: Ef það er fortakslaust skylda ríkisstj. að borga svo að segja strax það, sem venjulegt er að greiða til að fullgera hafnir, þá verður útkoman sú, ekki sízt þegar harðnar í ári og ríkið getur lagt minna í heild til hafnarvirkja, að valdið færist raunverulega þessu viðvíkjandi frá Alþ. til ríkisstj. Hins vegar álít ég rétt, sem líka var haldið fram af hæstv. ráðh., að með þessu móti sé hægt að flýta fyrir höfnunum, sem landið er að vinna að. Það kemur viðbótarkraftur inn í. Og þetta er a.m.k. annar höfuðtilgangur sjóðsins og sá, sem mest er rætt um hér. Legg ég til, að niðurlagsorð gr. verði eins og hér segir: „Framlög, sem eru þannig greidd úr hafnarbótasjóði, skulu endurgreidd úr ríkissjóði eftir því, sem fé er veitt til einstakra hafna á fjárl.“ Þetta þýðir, að ríkissjóður þarf ekki að flýta sér að borga þetta lán meir en góðu hófi gegnir. Þá er hafnarbótasjóður eins og banki, sem hefur lánað peninga og fær ekki strax aftur. Þetta verða bankar og að sætta sig við. Ég hygg því, að með þessu móti sé í raun og veru valdið yfir fjárveitingunni hjá Alþ., eins og á að vera. Að því leyti er þetta betra en till. meiri hl. Og það er nokkuð þungfært að gera l. í hverju tilfelli um það, hvort eigi að lána hinni eða þessari höfn. Samkv. minni till. er ríkisstj. bankastj. yfir hafnarbótasjóði, en Alþ. hefur fjárveitingarvaldið yfir hafnargerðum, eins og á að vera.