25.01.1945
Efri deild: 110. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1240 í B-deild Alþingistíðinda. (2893)

153. mál, hafnarbótasjóður

Frsm. meiri hl. (Gísli Jónsson):

Mér hefði fundizt tilhlýðilegt, að hæstv. ráðh. blési sig ekki svo mikið út af þessu máli, sem er vandamál, að hann hallaði svo réttu máli sem raun var á. Ég hef aldrei sagt, að hann færi með falsrök. Ég sýndi það með rökum, en hæstv. ráðh. hefur undirstrikað það. (Samgmrh.: Er það ekki það sama?) Nei, það er ekki alveg sama. Hann skrifaði nafn sitt á víxilinn, en það er ekki sama og að lána féð. Annars held ég hæstv. ráðh. hljóti að fyrirgefa mér, ef ég hef orðið óþinglegur, því að óþingleg orð notaði hann sjálfur. (Samgmrh.: Að gefnu tilefni.) Er hæstv. ráðh. þá svo veikur á svellinu, að hann hlaupi út af línunni og út í foraðið óðar en hann fær tilefni? Ég hélt hann væri meiri persóna en svo, að það þyrfti meira en að kippa í hann til þess.

Ég vil benda hæstv. ráðh. á það í fullri alvöru, að hann gekk alveg fram hjá aðalrökunum, nefnilega, að það skapast ekki meira fjárframlag til hafnarbóta, þó að þessi leið sé farin, en það er aðalatriðið. Þess vegna nær sjóðurinn ekki tilgangi sínum eftir að búið er að fara svona með hann. Og með því að taka burt endurgreiðsluskylduna er kippt valdinu frá ráðh. um það að ráða yfir fénu síðar meir. Hann getur þá ráðið því aðeins einu sinni. Möguleikarnir til að leggja til hafnarbóta meira og meira eru fyrir hendi, þó að þessi leið sé farin. En möguleikarnir til þess, að einn maður ráði því, eru alltaf fyrir hendi, svo lengi sem Alþ. vill láta endurgreiða féð. Hæstv. ráðh. segir, að það komi ekki þessu máli við að ræða um tekjurnar. Ég verð að segja, að ég er undrandi yfir því. Það kemur sannarlega málinu við, hvort ríkisstj. eða Alþ. eru að veita sérréttindi, og það stórkostleg sérréttindi, til allra þeirra hafna, sem fá úr þessum sjóði, fram yfir það, sem ríkisstj. getur veitt á hverjum tíma. Þetta getum við orðið sammála um. En ef slík sérréttindi eru veitt, þá er engin goðgá að athuga gaumgæfilega, hvort þær leiðir hafi verið farnar að fullu, sem á að fara samkv. l. um innheimtu gjalda. Það hefur ekki þótt tiltækilegt að veita áframhaldandi einn þriðja til hafnarbóta í Reykjavík, vegna þess að talið er, að bærinn geti, ef hann framfylgir þeirri reglugerð, sem hann hefur fengið með l., fengið nægilegt fé til hafnarinnar, og það er alveg rétt. Ég er ekki að segja, að Akranes þurfi ekki hjálp. En ég held fram, að Akranes eigi ekki að fá neina opinbera hjálp á þann hátt, að með henni sé verið að útiloka, að aðrar hafnir, sem hafa jafnmikla þörf fyrir hjálp, geti einnig fengið hana í náinni framtíð. Og það er hægt að ná þessu með því að hafa ekki endurgreiðsluskyldu inn í ríkissjóð aftur. Það er ekkert vit að vera sí og æ að greiða í sjóðinn eins og hér er gert ráð fyrir, það væri miklu meiri hjálp að lána Akranesi fé, sem hafnarsjóður Akraness greiddi á ákveðnum tíma inn í sjóðinn vaxtalítið eða vaxtalaust. En fram hjá þessu meginatriði gengur hæstv. ráðh., en snýr máli sínu upp í persónulegar aðdróttanir til þeirra manna, sem eru að skýra málið. Og hann er það fær í þessu máli, að hann finnur, að grundvöllurinn er að gliðna undir fótum hans, og þess vegna grípur hann til þess að fara að tala um, að ég hagi mér svona eða á hinn veginn. Þetta tel ég engan veginn þinglegt né heldur ráðherralegt, og það í stórmáli. Það er meginatriðið í þessu máli, að ríkissjóði verði ekki bundnir þeir baggar með lagaákvæðum, að við eigum á hættu að geta ekki veitt í framtíðinni nauðsynleg framlög til þeirra staða á landinu, sem þess þurfa með, en að því er stefnt, ef frv. verður samþ. óbreytt. Og ég vona, að þessi hæstv. ráðh. sitji lengur í ráðherrastól en þessi l. verði látin óbreytt standa. Því að ég er viss um, að ef þau verða samþ. á þessu ári, verður þeim breytt á næsta ári vegna þeirra áhrifa, sem þau hafa á margan hátt. Og ég veit, að þegar núverandi formaður fjvn. hefur athugað þessi mál, mun hann finna, þegar hann er búinn að fá sinn hlut, að ekki er viturlegt að vera lengur á þessari braut.

Að gefnu tilefni skal ég skýra frá því, að ég reyndi alls konar samningaleiðir í þessu máli, en till. mínum var hafnað. Hv. þm. Borgf. hefur talið, að ef honum tækist ekki að vinna virkið á. þessu ári og ná í féð, þá væri fyrirbyggt, að hann gæti unnið það með stórskotahríð á næsta ári. Þetta veit hæstv. ráðh., enda ræddi ég um það við hann.