23.10.1944
Neðri deild: 69. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 267 í C-deild Alþingistíðinda. (2917)

87. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. — Mér þykir allundarlegt, að hv. þm. N-Ísf. skuli ekki finna, að íþróttamál eru menningarmál, því að af því hlýtur till. hans að vera fram komin. Hún sker úr um, að hann álítur íþróttamál ekki menningarmál, ella væri hún óþörf. En eftir frv. virðist ljóst, að ráðh. skuli úr því skera, til hvaða menningarmála skuli veitt.

Ég er á móti þessu frv., af því að ég lít svo á, að það sé skálkaskjól til að koma undan skatti, því að fullerfitt mun reynast fyrir skattan. að henda reiður á slíkum frádrætti. — Í öðru lagi getur þetta munað ríkissjóð allmiklu, vegna þess að þetta er tekið af toppnum á tekjum manna, og auðvitað verður erfitt að ákveða, hvar draga skuli mörkin í þessu máli.

Ég heyrði á hv. frsm., að hann hafði ekki gert sér grein fyrir, hversu langt skal farið í þessu. Og ég álít, að þetta kæmi einatt ekki rétt niður. Við skulum t. d. hugsa okkur, að maður yrði fyrir stórfelldum skaða af eldsvoða eða öðrum orsökum og hafin væru samskot honum til styrktar. Ég tel hæpið, að ráðh. gæti tekið tillit til slíkrar líknarstarfsemi, og er hennar þó full þörf. Þess vegna á ekki að samþ. þetta frv.