09.03.1944
Efri deild: 25. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 191 í B-deild Alþingistíðinda. (293)
27. mál, skipun læknishéraða
Hermann Jónasson:
Herra forseti. — Það er ekki ástæða til að eyða mörgum orðum að brtt., sem hér liggur fyrir á þskj. 187. — Ég hefði verið fylgjandi að láta athuga þessa læknaskipun og gera íhugaðar breyt. á henni, en eftir að þær breyt. hafa verið gerðar, sem nú liggja fyrir og frv. komið til 3. umr., virðist mér óhjákvæmilegt að gera þessa brtt., sem hér liggur fyrir, til samræmis við það, sem orðið er. Er ég ekki í vafa um, að d. telur fullkomið réttlætismál, að þessi brtt. sé samþ.
Ég þarf sennilega ekki að fara inn á að skýra fyrir mönnum, hvernig aðstaðan er á þessum stað. Hv. þm. eru svo gagnkunnugir í íslenzkri landafræði, að þeir þekkja þessa staði og vegalengdir. Að sækja lækni frá Óspakseyri yfir Bitruháls til Hólmavíkur er, eins og hv. þm. geta gert sér ljóst, ekki eins og 2ð fara til næsta bæjar. Vegalengdir eru miklar og fjallvegir, sem yfir er að fara, næsta erfiðir oft og einatt. Aðstaðan hefur þess vegna verið svo í Óspakseyrarhreppi, að mjög oft er næsta erfitt að ná til læknis, og sama er að segja um Bæjarhrepp, einkum norðurhluta hans. Eins og kunnugt er, er hann einn af lengstu sveitum landsins. Þegar vitja .þarf læknis þar, verður að fara inn fyrir Hrútafjörð, og þekkja allir, að það er ekki nein smáræðis leið, því að fjörðurinn er ekki stuttur. Og þegar komið er inn fyrir fjörðinn, verður að halda út með honum að austan og alla leið út á Hvammstanga eða þá að brjótast sjóleiðina á báti, og er ekki alltaf auðvelt að koma þar báti á flot í hafnleysu og misjöfnum veðrum. — Því er það, að ég legg til, a,ð stofnað verði nýtt læknishérað með læknissetur á Borðeyri, og þykir þá rétt, að Staðarhreppur sé látinn heyra til þessu nýja læknishéraði. — Ég get fullvissað hv. þm. um, að þótt læknissetur komi á Borðeyri, þá eru vegalengdirnar, sem sækja þarf til þess læknis, svo miklar og erfiðar, að þeir, sem búa í því héraði, eru áreiðanlega, eftir að þeir hafa fengið lækninn, miklu verr settir en þeir, sem búa á suðurhluta Snæfellsness, áður en nýr læknir kemur þangað, og einnig stórum verr settir en Eyrarbakkabúar og Stokkseyrar, þótt þeir þyrftu að sækja lækni upp að Selfossi, svo að þar er ólíku ,saman að jafna. Það verður að reyna að sýna jöfnuð og réttlæti, þó að vitanlega sé ekki hægt að fá nærri því fullan jöfnuð.
Þessi brtt. sem ég ber hér fram, er ekki borin fram með þeim hætti, að þetta mál, læknissetur á Borðeyri fyrir Bæjarhrepp, Bitru og Staðarhrepp, sé neitt augnabliksmál. Um þetta hefur verið krafa ár eftir ár frá þessum hreppum, en ég hef ekki treyst mér að verða við þeim kröfum og bera þetta mál fram, af því að ég hef álitið, að þessi mál ætti að undirbúa gaumgæfilega með till. frá heilbrigðisstj. Það hefur legið við hvað eftir annað, að heilbrigðisstj. féllist á að bera fram brtt. í þá átt, sem þessi brtt. mín fer, því að hvað eftir annað hefur verið um þetta rætt og legið við, að það væri gert. Ég er þess því fullviss, að ekki þurfi að mæla frekar fyrir þessari till. Þessi breyt. hefur alltaf verið talin eitt af því, sem fyrst lægi fyrir, þegar breyt. yrðu gerðar. Það er álit heilbrigðisstj., en alls ekki krafa, sem aðeins sé fram komin frá þessum hreppum eða mér sem þm., heldur fullkomið réttlætismál að dómi óhlutdrægs aðila, sem um þetta mál fjallar.
Ég vænti, að ég þurfi ekki að taka frekar til máls um þetta atriði, og get því látið máli mínu lokið.