11.09.1944
Neðri deild: 47. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 271 í C-deild Alþingistíðinda. (2946)
89. mál, ráðstafanir vegna dýrtíðar o.fl.
Forseti (JörB):
Þá fara fram útvarpsumr. um frv. ríkisstj. um ráðstafanir vegna dýrtíðar o. fl., 89. mál, Nd., þskj. 281, 1. umr. Verður umr. tvær umferðir. Af hálfu ríkisstj. mun fjmrh., Björn Ólafsson, tala fyrst. Því næst tala eftir röð fulltrúar Sósfl., Sjálfstfl., Alþfl. og loks Framsfl., en því næst hefst síðari umferð. Í fyrri umferð má ræðulengd verða um 30 mín. hjá hverjum flokki eða lítið eitt meiri, ef svo stendur á, en tími hvers flokks í báðum umferðum 45 mín. alls.
Þá tekur til máls hæstv. fjmrh. og talar af hálfu ríkisstj.