09.03.1944
Efri deild: 25. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 193 í B-deild Alþingistíðinda. (298)

27. mál, skipun læknishéraða

Frsm. meiri hl. (Bjarni Benediktsson):

Það mætti ef til vill ætla, að þeir, sem voru með að fjölga læknishéruðum við fyrri umr. þessa máls, yrðu einnig með þeim brtt., sem nú eru fram komnar. En hér er ólíku saman að jafna, því að fullvíst má telja, ef enn verða gerðar frekari breyt. á frv., að því sé mjög stefnt í voða. Ef nú á að fara að bæta við mörgum læknishéruðum frá því, sem samþ. var við fyrri umr., þá hlýtur það að tefja málið mjög, og þótt eitthvert samkomulag kynni að takast síðar um fjölgun læknishéraða, þá hlyti það að ríða málinu að fullu að þessu sinni. Auk þess er það eftirtektarvert, að hér er mestmegnis um ný héruð að ræða, sem öðruvísi er ástatt um en þau, sem samþ. voru við 2. umr. Það er eftirtektarvert, að það var beinlínis fellt að stofna læknishérað í Grindavík, sérstaklega vegna þess, að þar væri svo fámennt, aðeins 500 menn. Aftur á móti um þau héruð, sem ég hef upplýsingar um, af þeim, sem ég hef stungið upp á, þá mundi í Hrútafjarðarhéraði ekki verða nema kringum 490 manns, þ.e.a.s. fullum tveim hundruðum færra en í hinu nýja læknishéraði á Snæfellsnesi og ámóta margir og eru í Grindavík. Og er þá einnig mjög deilt um það, hvort takmörk Hrútafjarðarhéraðs væru rétt mörkuð í till., vegna þess að ýmsir mundu telja, að Staðarhreppur mundi verða betur kominn í sambandi við Hvammstanga, eins og verið hefur. Þeir Hrútfirðingar hafa ekki yfir neinn fjallveg að fara til þess að vitja læknis, eins og þeir Snæfellingar margir hafa þurft að þessu.

Um Suðureyri eða Súgandafjörð má aftur á móti segja það, að þar munu vera kringum 440 manns. Þar væri því líka töluvert fámennara hérað en Grindavíkurhérað mundi vera. En vegna aðstæðna þarna vestra gæti verið fullkomin ástæða til þess að setja þar nýtt læknishérað. En þar er þó um 250 manns færra en í þessum suðursveitum Snæfellsness, sem á var minnzt, og færra fólk en í Grindavík, sem menn treystu sér ekki til að samþ., að yrði gerð að sérstöku læknishéraði.

Um Raufarhöfn vil ég geta þess, að þar hafa verið læknar að sumrinu til, og það hefur verið talið nægja. Og nákunnugur maður á þessum slóðum, sem starfar hér við þingið, hefur látið svo um mælt hér í dag, að engin þörf væri talin á þessum slóðum fyrir lækni þar. Þetta er náttúrlega ekki fullgild umsögn um málið. En ég hygg, að ekki sé þörf nema fyrir sumarlækni á þessum stað. Og auk þess munu vera í þessu héraði töluvert færri menn en í Snæfellsneshéraði, sem samþ. var að stofna, án þess að ég hafi þó um það nákvæmar skýrslur. Það sýnast því öll rök hníga að því, að minni ástæða sé til þess að stofna sérstakt læknishérað á Raufarhöfn, — þó að náttúrlega sé einhver ástæða til þess, — en að stofna þau sérstöku nýju læknishéruð, sem samþ. voru brtt. um hér í þessari hv. d. Sýnist nokkuð svipað standa á um þennan stað, Raufarhöfn, og um Grindavík, sem fellt var að gera að sérstöku læknishéraði. Virðist því eðlilegt, að Raufarhöfn verði nú látin sæta sömu meðferð og Grindavík, ekki sízt þegar heilbr.- og félmn. þessarar hv. d. hefur lagt til að skipa n. til þess að athuga þessi mál, sem gæti starfað í sumar og skilað áliti í haust.

Loks má á það benda, að hv. flm. þessara till. nú töldu ekki svo brýna ástæðu til þess að samþ. á þessum hluta þessa þings að stofna þessi nýju læknishéruð, sem þessar síðustu till. eru um, að þeir bæru þessar till. fram, fyrr en þeir sáu, að sum önnur héruð voru samþ. sem ný læknishéruð. Sýnir það, að þeir álitu ekki beinlínis velferð þessara héraða komna undir því að samþ. skiptingu læknishéraða á þessum stöðum, heldur að það væri sanngirni í samanburði við aðra staði. En þetta má athuga með undirbúningi málsins í sumar og flutningi málsins í haust. Þessar nýju brtt. hafa ekki verið bornar undir heilbr.- og félmn. í heild, og ég get ekki talað fyrir munn þeirrar n. í heild. En mér sýnist, að ekki muni vera fært að samþ. þessar brtt. úr því, sem komið er, sérstaklega vegna þess, að þær voru ekki bornar fram við 2. umr. malsins hér í .hv. d., og því var ekki hægt að þreifa fyrir sér um fylgi við þær í hv. Nd.