27.11.1944
Efri deild: 77. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1247 í B-deild Alþingistíðinda. (2992)
194. mál, eyðing á rottum
Flm. (Bjarni Benediktsson):
Þetta litla frv., sem hér er flutt, er samið af bæjarráði Reykjavíkur og er byggt að mestu leyti á till. heilbrigðisfulltrúanna í Reykjavík. Það er vitað, að þessi vágestur er kominn miklu víðar um land en áður var og er nú verri og illkynjaðri.
Hér í Reykjavík hefur verið gerð tilraun til að eyða þessum vágesti, en með frekar litlum árangri. Og það hefur komið í ljós, að tilgangslaust er að reyna að eyða þessu, nema nágrannahéruðin geri slíkt hið sama. Og ég er þeirrar skoðunar, að fyrir lítil sveitarfélög verði þetta svo kostnaðarsamt, að eigi sé ástæðulaust, þó að þau fái styrk frá ríki. Ég vænti því, að frv. nái fram að ganga, og legg til, að því verði vísað til allshn.