09.03.1944
Efri deild: 25. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 198 í B-deild Alþingistíðinda. (306)
27. mál, skipun læknishéraða
Brynjólfur Bjarnason:
Herra forseti. — Ég ætla ekki að vekja deilur við hv. 3. landsk., því að eins og ég tók fram, álít ég fulla þörf á læknum bæði á Suðureyri og Raufarhöfn. Mér hefur aldrei dottið í hug að vefengja, að kröfur um þetta efni hafi komið frá héruðum þessum. Slíkt hefur mér aldrei til hugar komið.
En það, sem ég álít aðalatriði í málinu, er að stofna því ekki í hættu. En það má búast við, að þm. komi fram með fleiri till. í Nd., og svo getur farið, þar sem komið er að því, að þinginu verði frestað, að málið nái ekki fram að ganga. En það tel ég það versta, sem fyrir gæti komið.
Því fleiri læknisbústöðum sem völ er á, því hægara er að fá lækna út í útkjálkahéruðin, vegna þess að þeir hafa þá meiri von um að losna þaðan. Ef ekkert af þessum úrræðum dugir, að gefa læknunum fleiri kosti en nú og að þeir fái betri kjör, þá fyrst geta komið til greina úrræði eins og t.d. að koma á nokkurs konar þegnskylduvinnu fyrir unga lækna í útkjálkahéruðunum. Þá fyrst er hægt að tala um það, þegar búið er að skapa þessum mönnum sæmileg kjör, og það er það, sem þarf að gera, en ekki hefur verið gert.
Hæstv. forsrh. talaði um, að læknaskorturinn væri stríðsfyrirbrigði. Ég skil þetta nú ekki vel, og ég er hræddur um, að læknaskorturinn haldi áfram, ef haldið verður áfram á sömu braut í þessum málum og verið hefur, þó að stríðinu ljúki.
Ég vildi svo óska þess, að málið fengi þá afgreiðslu í þessari hv. d. — og svo skjóta afgreiðslu, að frv. nái fram að ganga, því að það er fyrst og fremst höfuðnauðsyn.