25.09.1944
Neðri deild: 55. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 335 í C-deild Alþingistíðinda. (3071)
135. mál, loftferðir
Atvmrh. (Vilhjálmur Þór):
Herra forseti. — Hv. þm. Vestm. gat þess, að hann væri á þeirri sömu skoðun, er kom fram í grg. þessa frv., um að flugmálin gætu orðið og væntanlega ættu að verða mikill þáttur í samgöngubótum hér á landi, ekki síður en í öðrum löndum. Hann gat þess og, að það væri rétt að minnast þeirra, sem hefðu haft dugnað til þess að hrinda flugmálunum áfram hér á landi. Nefndi hann þar til m. a. Lufthansa, félag, sem fyrir nokkru rak flugferðir hér og flaug mest með erlendum mönnum, og síðan h/f Flugfélag Íslands. Það er rétt að geta þeirra, sem með dugnaði og ósérplægni hafa unnið að framkvæmd þessara flugmála. En hv. þm. sleppti þar því úr af vangá, að upphafið að Flugfélagi Íslands var það, að fyrir 7 árum kom Agnar Kofoed-Hansen og vildi koma í framkvæmd flugferðum hér á landi. Hann fékk þá ekki á þeim tíma áheyrn til að koma sínum áhugamálum nokkuð á leið fyrr en hann fór til Akureyrar, og þar var þá það félag stofnað, sem varð upphafið að Flugfélagi Íslands. Þeir, sem höfðu forustu um þetta mál þar nyrðra, gerðu það ekki í von um peningagróða, heldur af sannfæringu um, að þetta væri þarft mál og mál framtíðarinnar. Svipað má segja um þá, sem tóku við, þegar félagið var flutt frá Akureyri til Reykjavíkur og stofnað Flugfélag Íslands, að menn hafa þá unnið að flugmálunum af sannfæringu um, að um mikið og gott framtíðarmál væri að ræða fyrir þjóðina.
Í sambandi við frv. það, sem hér liggur fyrir, er aðalatriðið þetta: Er það heppilegt og æskilegt fyrir góðan framgang og árangur flugmálanna í landinu, til þess að þau komi að sem beztum notum fyrir fólkið í landinu, að hafa flugmálin í brotum, hafa þau á höndum margra félaga, eða er æskilegast fyrir fólkið í landinu, að þau séu á einni hendi hér eins og á öllum öðrum Norðurlöndum? Þetta er aðalatriði þessa máls, sem hv. þm. hljóta að gera upp við sig fyrst og fremst, þegar um þetta frv. er að ræða. Ríkisstj. lítur svo á, að svo hagi til hér á landi, ekki síður en á öðrum Norðurlöndum, að til þess að öryggi fáist og sem mestur árangur af flugmálunum í landinu, verði þau að vera á einni hendi. Og þá kemur tvennt til greina: Á ríkisvaldið sjálft að taka þau að sér, eins og það hefur gert um póst og síma, eða er sú leið fær, sem hér í frv. er lagt til, að farin verði, að sameina einstaklingsátökin og átök þess opinbera til framkvæmdar flugmálunum, þannig að samvinna sé á milli þessara aðila, báðir leggi fram fé til þessa og starfi að þessu? Ég lít svo á, og ég held, að ríkisstj. öll líti svo á, að þessi síðarnefnda leið sé heppilegri heldur en að ríkisvaldið taki þetta eingöngu í sínar hendur.
Hv. þm. Vestm. dvaldi nokkuð lengi við það að skýra frá því, að hér væru tvö félög í landinu, sem rækju flugstarfsemi. Það er rétt. Annað félagið kom fyrir stuttu. Ég ætla, að það eigi eina flugvél nú, því að það varð fyrir óhappi með flugvél fyrir ekki löngu. Hef ég heyrt, að það muni vera í þann veginn að kaupa flugvél frá Vesturheimi, en er kannske ekki búið að því enn. En af viðkomandi Flugfélagi Íslands er það að segja, að það hefur í fullu gengi hér nú þrjár nokkuð stórar flugvélar og er búið að kaupa stórt flugskip í viðbót, sem er að dómi kunnugra manna nægilega stórt til þess að geta flogið milli Íslands og nærliggjandi landa. Er það svo stórt, að ætlað er að fljúga því frá Vesturheimi til Íslands áður en margar vikur líða. Þegar um er að ræða í frv. að lögfesta einkarétt annars þessara flugfélaga sem aðalfélags, þá virðist greinilegt, að það félagið kemur til greina, sem búið er að starfa í sjö ár og þrátt fyrir ýmis óhöpp alltaf hefur haft dug til þess að byggja upp í skörðin, þannig að það á nú 4 vélar. Hitt félagið, — ég veit ekki, hvort það er ársgamalt. Og þó að það hafi að ýmsu leyti farið vel af stað, þá er það ungt og lítið og getur þar af leiðandi ekki komið til mála, að það verði tekið fram yfir hitt félagið, sem er stærra og eldra. Með þessu er ég ekkert að draga úr því, að þeir ungu menn, sem þarna eru að verki í h/f Loftleiðum, séu dugandi menn. Ég er ekki að efast um, að þeir hafi góða flugmenn. En þegar um annað félagið á að vera að ræða sem aðalfélag í framtíðinni í sambandi við flugmálin, þá virðist augljóst, hvort félagið á að taka fram yfir hitt. — Um þetta unga félag vil ég líka segja það, að samkv. umsögn kunnugra manna í Flugfélagi Íslands, þá var reynt að fá þessa ungu menn í h/f Loftleiðum til samvinnu, þó að það misheppnaðist þá. Og með framlagningu þessa frv. er það ætlun ríkisstj. að sjálfsögðu, að flugfélaginu h/f Loftleiðum sé gefinn kostur á því að koma inn í Flugfélag Íslands, bæði með sitt fé og sínar flugvélar, sem það kann að eiga, og með þá menn og orku, sem það hefur til þess að byggja upp flugmálin í landinu. Frv. er gert, eins og það er nú, með þetta fyrir augum. Og ég hef átt tal um þetta við stjórnarmenn Flugfélags Íslands, og hafa þeir fyrir sína hönd lýst því ákveðið yfir, að slíkt væri opið hvenær sem væri.
Ég vildi hafa tekið þetta fram, áður en málið fer til hv. n., til þess að það liggi skýrt fyrir, að þetta var fyrst og fremst hugmynd ríkisstj., þegar frv. var lagt fram, og í öðru lagi, að þetta stendur og hefur staðið hinu nýja félagi til boða og mun standa opið framvegis.
Um hitt atriðið, sem kom fram í ræðu hv. þm. Vestm., að hann mundi ekki, nema að gefnu tilefni, fara að skýra frá viðskiptum þessa nýja flugfélags, h/f Loftleiða, við ríkisvaldið, vil ég segja það, að ég ætla ekki að biðja mig undan því. Ég veit ekki til þess, að í sambandi við mitt ráðuneyti hafi nokkuð átt sér stað í þeim viðskiptum, sem þarf að leyna.