28.09.1944
Neðri deild: 57. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 340 í C-deild Alþingistíðinda. (3075)
135. mál, loftferðir
Atvmrh. (Vilhjálmur Þór:
) Herra forseti. — Út af ræðu hv. þm. Vestm. þykir mér þörf á að taka þetta fram:
Að því er snertir vélaeign félaganna, má um það deila, hvort það á að telja vél, sem ekki er í flugfæru standi. En það skiptir ekki miklu máli. Munurinn á vélaeigninni er sá, að vélar Flugfélags Íslands bera svo af um stærð og möguleika til farþegaflutnings, að auðsætt er, og það vildi ég segja, að þegar um er að ræða, hvort fél. ætti að hafa forgöngu í flugmálum, væri ekki vafi á, að það væri Flugfélag Íslands, enda eru báðir hv. þm., sem talað hafa, á sama máli.
Það er á misskilningi byggt, að ég sem utanríkisráðh. hafi neitað h/f Loftleiðum um meðmæli. Form. fél. leitaði til mín í sambandi við kaup á 8 sæta vél, og ég leiðbeindi honum um, hvað gera þyrfti til þess að fá meðmæli, en hann kom ekki aftur. Þessu félagi hafa verið veittar svo miklar undanþágur, að það þarf ekki að kvarta. Það er rétt, að flugmenn þess eru duglegir, og er óþarfi að taka frekar fram um það, en það haggar ekki því, að hitt félagið hefur líka duglega flugmenn í þjónustu sinni með meiri æfingu og lengri starfsaldri.
Ég vil endurtaka það, að það, sem er aðalatriði málsins, er þetta: Er hagkvæmt fyrir Ísland eins og fyrir Svíþjóð, Danmörku og Noreg, að flugmál landsins séu á einni hendi? Og ef svo er, — sem ég er ekki í vafa um —, þá er meginmál frv. það, að koma slíkri skipun á hér líka.
Tilgangur ríkisstj. með þessu frv. er, að sú leið verði farin, sem í frv. er stungið upp á. Ef hv. þm. hins vegar finna aðra leið betri til þess að ná sama marki, að hafa flugmálin í landinu undir einni stjórn, til þess að þau fyrir það verði sem gagnlegust fyrir fólkið í landinu, þá er sjálfsagt að taka það, sem bezt er. Annars virtist mér af ræðu hv. síðasta ræðumanns, að hann væri samþykkur þessu, sem er meginatriði málsins, og hann væri þar á sama máli og ég, og þykir mér vænt um það.
Um hitt atriðið, hvort það er 50% af hlutafé, sem ríkissjóður ætti að leggja fram í þessu efni, eða minna, t. d. 25%, það er matsatriði, og má nánar ræða um það.
Ég vænti þess, að hv. samgmn. athugi sérstaklega þetta, sem ég hef talið aðalatriði málsins, og geri sínar till. út frá því.